Fjölskyldumessa á mæðradaginn
Næsta messa verður sunndaginn 3. apríl í sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street kl. 15.00. Þetta verður fjölskyldumessa og verður lítil stúlka borin til skírnar í messunni. Þemað er “Fræ í frosti sefur” og við tölum um nýtt líf sem kviknar á vorin og um páskaundrið. Ekki er ólíklegt að páskaeggið sjálft komi þar við sögu.
Sungin verða létt og skemmtileg lög, meðal annars úr sunnudagaskólanum undir stjórn Friðþjófs og Braga og kórinn flytur einnig lag.
Eftir messu flytur kórinn nokkur lög sem hann hefur æft fyrir kóramót síðar í apríl og svo hefst hið vinsæla páskaeggjabingó í umsjón Íslendingafélagsins. Páskaeggin verða að sjálfsögðu frá Íslandi og með málsháttum.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 28/3 2011 kl. 15.35