Íslenski söfnuðurinn í London

 

Messa og ferming í Grimsby

Messa og ferming verður í St. James í Grimsby 14. maí kl. 14.00. Fermdur verður Ísak Arnarson. Hópur frá Vestmannaeyjum tekur þátt í messunni og heiðrar James Findlater, síðasta eftirlifandi sjómaðurinn af Hull City sem bjargaði áhöfninni af Glað VE 270 úr sjávarháska 1952.

Prestar verða sr. Steinunn A. Björnsdóttir og sr. Kristján Björnsson. Kór Íslendinga í London syngur undir stjórn Matthildar Önnu Gísladóttur.

Eftir messuna verður afhjúpaður minningar- og þakkarskjöldur frá aðstandendum sjómannanna af Glað, útgerðum í Eyjum og Björgunarfélagi Vestmannaeyja.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 9/5 2011 kl. 10.36

     

    Íslenski söfnuðurinn í London,b/t sr. Steinunnar Arnþrúðar Björnsdóttur, Embassy of Iceland London, 2A Hans Street, London SW1X 0JE. Sími tel. 44 (0) 20 7259 3999. · Kerfi RSS