Fermingarfræðsla, íslensk guðsþjónusta og Tómasarmessa
Fermingarfræðsla hefst 2. október kl. 12.30 og verður í sænsku kirkjunni - athugið breyttan tíma og stað. Messa hefst kl. 15.00. Eftir messukaffi er aðalfundur Íslendingafélagsins.
Kl. 18.00 hefst Tómasarmessa í International Lutheran Student Centre, 30 Thanet Street, London, WC1H 9QH (næstu lestarstöðvar Russell square og Kings Cross). Hún fer fram á ensku en þar verða einnig prestar frá ýmsum kirkjum Norðurlanda. Mikil áhersla verður á tónlist og íhugun.
Allir alltaf velkomnir.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 1/10 2011 kl. 9.42