Jólahelgistundir í London og Hull
Aðra helgi í aðventu, helgina 3. - 4. desember verða jólahelgistundir í London og Hull. Í London verður helgistundin í Sænsku kirkjunni og að henni lokinni verður jólaball í safnaðarheimilinu í umsjá Íslendingafélagsins. Í Hull verður helgistundin í Dönsku sjómannakirkjunni og samvera á eftir. Félagar úr Kór Íslendinga í London taka þátt í helgistundunum.
Helgistundin í Hull verður laugardaginn 3. desember og hefst kl. 16.00. Kirkjan heitir Sömandskirken og er staðsett við 104 Osborne Street, Hull. Eftir helgistundina verður samvera í boði Freyjanna, sniðin að þörfum barnanna.
Helgistundin í London verður sunnudaginn 4. desember og hefst kl. 15.00. Hún verður í sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone). Að henni lokinni verður sem fyrr segir árlegt jólaball sem Íslendingafélagið sér um.
Fermingarfræðsla verður á sínum stað í London á sunnudegi kl. 12.00 í sendiráði Íslands. Fermingarbörn eru hvött til að koma með verkefnin sem þau hafa fengið og farið verður yfir. Í Hull verður einnig fermingarfræðsla fyrir messu, samkvæmt samkomulagi.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 2/12 2011 kl. 12.28