Íslenski söfnuðurinn í London

 

Helgistund í Hull fellur niður

Helgistund sem vera átti í Hull laugardaginn 4. desember 2010 fellur niður vegna fannfergis. Helgistund verður í London þann 5. desember. Börn úr íslenska skólanum leika leikrit og kór Íslendinga í London syngur undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur. Á eftir verður jólaball á eftir.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 3/12 2010

Jólahelgistund í London og Hull

Helgina 4. - 5. desember verða jólahelgistundir í London og Hull. Í London verður helgistundin í Sænsku kirkjunni og að henni lokinni verður jólaball í safnaðarheimilinu í umsjá Íslendingafélagsins. Í Hull verður helgistundin í Dönsku sjómannakirkjunni og samvera á eftir. Félagar úr Kór Íslendinga í London taka þátt í helgistundunum.

Helgistundin í Hull verður laugardaginn 4. desember og hefst kl. 16.00. Kirkjan heitir Sömandskirken og er staðsett við 104 Osborne Street, Hull. Eftir helgistundina verður samvera í boði Freyjanna.

Helgistundin í London verður sunnudaginn 5. desember og hefst kl. 15.00. Hún verður í sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone). Að henni lokinni verður árlegt jólaball sem Íslendingafélagið sér um.

Fermingarfræðsla verður á sínum stað í London á sunnudegi kl. 12.00 í sendiráði Íslands. Fermingarbörn eru hvött til að koma með verkefnin sem þau hafa fengið og farið verður yfir. Í Hull verður einnig fermingarfræðsla fyrir messu, samkvæmt samkomulagi.

Vakin er athygli á því að hægt er að bóka viðtal við prest með tölvupósti eða símleiðis (sjá upplýsingar í hægri dálki).

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 19/11 2010

Messa og skírn á sunnudag

Næsta messa hjá íslenska söfnuðinum í London verður sunnudaginn 24. október og hefst kl. 15.00. Þær verða venju í sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone).  Sunnudagaskóli verður að venju, kirkjukaffi og söngur.

Svo skemmtilega vill til að tvö lítil börn verða skírð í messunni og tekin in í kirkju Krists og samfélag safnaðarins í London.

Verið hjartanlega velkomin.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 21/10 2010

Messur á haustmisseri

Messur næsta hausts hjá íslenska söfnuðinum í London verða sunnudagana 19. september, 24. október og 5. desember og hefjast alltaf kl. 15.00. Þær verða venju í sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone).  Sunnudagaskóli verður að venju, kirkjukaffi og söngur. 5. desember verður einnig jólaskemmtun. Nánar verður sagt frá hverri messu síðar.

Laugardaginn 4. desember verður messa í Hull í samvinnu við Íslendingafélagið þar.

Fermingarfræðsla hefst 19. september kl. 12. Hún verður í sendiráði Íslands og er gert ráð fyrir að fermingarbörn mæti tvo sunnudaga í fræðslu á haustönn, 19. september og 5. desember. Fermingarbörn munu einnig vinna verkefni rafrænt. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Þau sem hafa áhuga á að nýta þessa fræðslu geta haft samband við prest safnaðarins.

Þau sem vilja ræða við prest safnaðarins geta haft samband í gegnum tölvupóst eða síma. Presturinn verður næst í London til viðtals 17. og 18. september. Gott er að bóka tíma fyrirfram sé þess kostur.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 24/8 2010

Fermingarundirbúningur fyrir 2011

Fermingarfræðsla næsta vetrar hefst í september. Hægt er að skrá börn í fermingarfræðsluna með tölvupósti á steinunn.bjornsdottir@kirkjan.is

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 19/7 2010

Helgistund og þjóðhátíðargleði

Sunnudaginn 20. júní næstkomandi verður helgistund í dönsku kirkjunni við Regent’s Park. Stundin er ætluð fyrir alla fjölskylduna og verða barnasöngvar sungnir auk ættjarðarsálma. Ávarp flytur sendiherra Íslands í Bretlandi, Benedikt Jónsson. Fjallkona verður Hera Hilmarsdóttir og flytur hún ljóð í lok helgistundarinnar.

Kór Íslendinga í London syngur og leiðir söng undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur. Friðþjófur Þorsteinsson stýrir söng með yngsta fólkinu. Prestur er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.

 Heimilisfang kirkjunnar er 5 Saint Katharine’s Precinct, London NW1 4HH, næsta lestarstöð Mornington Present.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 16/6 2010

Messur og ferming

Helgina 15. - 16. maí verða messur í Grimsby og London.

Þann 15. maí næstkomandi kl. 14 verður messa í St James kirkju, St James Square, DI31 1EP  Grimsby. Svo gleðilega vill til að einnig verður ung stúlka, Victoria Cleland, fermd við þá athöfn. Góður hópur söngvara úr Íslenska kórnum taka þátt í messunni undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur.
Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.
Freyjurnar“ bjóða í kaffi að vanda á St. James Hotel eftir athöfnina.

Þann 16. maí kl 15 er messa hjá íslenska söfnuðinum í London. Hún verður að venju í sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone).  Kór Íslendinga syngur undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur. Sunnudagaskóli verður í umsjá vaskra félaga. Kaffi í boði safnaðarins eftir messu. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 10/5 2010

Næsta messa er 25. apríl

Sunnudaginn 25. apríl kl. 15 verður messa  hjá íslenska söfnuðinum.  Kór Íslendinga syngur undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur. Andrew Cauthery leikur einleik á óbó.   Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.

Sunnudagaskóli verður á sama tíma undir stjórn vaskra liðsmanna. Að venju verður kaffi og meðlæti eftir messu.

Messan verður haldin í Sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone).

Fermingarfræðsla verður einnig á sunnudag. Hún hefst í sendiráðinu 12.00 og lýkur eftir messu í sænsku kirkjunni.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 9/4 2010

Messa sunnudaginn 28. febrúar

Sunnudaginn 28. febrúar verður messa kl. 15.00 hjá íslenska söfnuðinum. Fermingarbörn aðstoða við messuna. Kór Íslendinga syngur undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur. Helgi Jóhannsson syngur einsöng. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.

Messan verður haldin í Sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone).

Fyrir messu verður fermingarfræðsla í sendiráðinu. Hún hefst kl. 12.00.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 24/2 2010

Messur á vormisseri

Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir mun þjóna íslenska söfnuðinum í London á vormisseri. Fjórar messur eru áætlaðar, þann 24. janúar, 28. febrúar, 25. apríl og 16. maí. Allar verða messurnar klukkan þrjú í Sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone).

Fermingarfræðsla verður sömu daga klukkan 12:00 í sendiráði Íslands í Lundúnum (2 A Hans Street, SW1X 0JE, næstu jarðlestarstöðvar eru Knightsbridge og Sloane Square) og lýkur eftir guðsþjónustunni í Sænsku kirkjunni um klukkan 16:00.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 18/12 2009

Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir mun þjóna söfnuðinum áfram á haustmisseri 2010 og vormisseri 2011 að beiðni biskups Íslands með messuhaldi og fermingarfræðslu. Hún starfar á biskupsstofu í Reykjavík og svarar fúslega erindum í síma +354 5284000, farsíma +354 856 1570 og netfangi steinunn.bjornsdottir(hjá)kirkjan.is. Hún er einnig til viðtals í London þær helgar sem messað er og er hægt að biðja um viðtöl símleiðis eða bréfleiðis.





Regluleg dagskrá:

Guðsþjónusta er mánaðarlega í London. Sunnudagaskóli er í hverri guðsþjónustu. Sjá nánar dagskrána hér á vefnum.


Tenglar:

· Sendiráðið í London
· Þjóðkirkjan
· Íslendingafélagið í London
· Hið íslenska Biblíufélag
· Sálmabókin
· Kirkjunefnd íslendingafélagsins í Luxemburg
· Skálholtsskóli
· Tryggingastofnun
· Skálholtsútgáfan
· Lutheran Counil of Great Britain
· Kóramót
· Ný dögun

 

Íslenski söfnuðurinn í London,b/t sr. Steinunnar Arnþrúðar Björnsdóttur, Embassy of Iceland London, 2A Hans Street, London SW1X 0JE. Sími tel. 44 (0) 20 7259 3999. · Kerfi RSS