Leiðtogar

Fjöldi fólks kemur í hverri viku að barna- og unglingastarfi í kirkjum Eyjafjarðarprófastsdæmis, ýmisst í hlutastarfi eða sjálfboðnu starfi. Til þess að styðja þetta frábæra fólk stendur kirkjan fyrir margskonar námskeiðum og leiðtogaþjálfun. Þar ber hæst svokallað ,,Innandyra” námskeið sem boðið er upp á í byrjun starfsins á hverju hausti og ,,Sólheimanámskeiðið” sem fer yfirleitt fram í febrúar ár hvert. Flestir hefja feril sinn núorðið sem leiðtogar með því að sækja svonefndan ,,Farskóla leiðtogaefna.” Þá stendur ÆSKEY fyrir margs konar fundum og námskeiðum fyrir leiðtoga úr prófastsdæminu. Hin síðustu ár hafa ,,leikjakvöld leiðtoga” reynst vinsælust.
Mikilvægt er að leiðtogar þekki þær siðareglur sem unnið er eftir í barna- og unglingastarfi kirkjunnar. Þá er að finna hér á síðunni heilræði til leiðtoga og útdrátt úr fræðslustefnu þjóðkirkjunnar.
Demantasalinn
Ríkur hollenskur kaupmaður var á höttunum eftir ákveðinni demantstegund sem hann vantaði í glæsilegt demantasafn sitt. Amerískur kaupmaður í New York komst yfir slíkan demant og kallaði hollenska manninn á sinn fund til að sýna honum steininn.
Sá hollenski tók næstu vél til New York þar sem ameríski kaupmaðurinn beið ásamt demantasérfræðingi sem átti að sjá um viðskiptin. Eftir að hafa heyrt sérfræðinginn lýsa demantinum í smáatriðum, fegurð hans og verðmæti ákvað hollenski kaupmaðurinn að kaupa hann ekki. Áður en hann yfirgaf verslunina spurði sá ameríski, „Mætti ég sýna yður demantinn aftur?“ Hollendingurinn ákvað að leyfa honum það.
Ameríski kaupmaðurinn endurtók ekki neitt úr ræðu sérfræðingsins. Hann tók einfaldlega demantinn í hönd sér, starði á hann og lýsti fegurð hans. Augljóst var að hann hafði aldrei séð fegurri stein á ævinni. Viðskiptavinurinn keypti demantinn án þess að hugsa sig um.
Um leið og hann setti nýja demantinn sinn í brjóstvasann sagði sá hollenski, „Ég velti því fyrir mér hvers vegna þér gátuð selt mér þennan demant fyrst sérfræðingi yðar tókst það ekki.“
Sá ameríski svaraði, „Sérfræðingurinn er sá allra hæfasti. Hann veit meira um demanta en nokkur annar, þar með talinn ég, og ég greiði honum fúlgur fjár fyrir þekkingu hans og sérfræðiálit. En ég væri tilbúinn að greiða honum helmingi meira ef ég gæti gefið honum hluta af því sem ég bý yfir en hann skortir. Sjáið til, hann veit allt um demanta, en ég elska þá.“
Nálgun
Þegar kemur að því að segja öðrum frá Kristi skiptir þekking okkar á Honum ekki mestu máli, heldur hve heitt við elskum Hann. Guð spyr ekki hve mikið við vitum heldur hve heitt við elskum. Ef við elskum Jesú af öllu hjarta, elskum við einnig annað fólk og það er einmitt aðferðin að útbreiða fagnaðarerindið. (Sjá 1.Jóhannesarbréf 4:7-12.)
Þessa og fleiri sögur frá Youth Specialties er að finna í sögusafninu ,,Sporin í sandinum” á Kirkjustarfsvefnum.
Smellið hér til að sjá nýjustu tilkynningar til leiðtoga hér á vef Eyjarfjarðarprófastsdæmis.