Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

ÆSKEY

Héraðsfundur Eyjafjarðarprófastsdæmis sem haldinn var í safnaðarheimili Ólafsfjarðarkirkju vorið 2005 samþykkti að stofnað yrði æskulýðssamband í prófastsdæminu. Með stofnun Æskulýðssambands Kirkjunnar í Eyjafjarðarprófastsdæmi (ÆSKEY) var þar með skapaður samstarfsflötur fyrir sóknir í prófastsdæminu um foreldramorgna, sunnudagaskóla, barnaguðsþjónustur, kirkjuskóla, TTT, barna– og unglingakóra, æskulýðsfélög og annað starf fyrir 2 til 27 ára börn, unglinga og ungt fólk. Sérstaklega er horft til árvissra atburða og námskeiðahalds.

Hugmyndin á bak við ÆSKEY er að móta farveg til þess að auðvelda starf í sóknum prófastsdæmisins án þess að búa til eitthvað íþyngjandi kerfi. Þannig er gert ráð fyrir því að aðalfundir séu hluti af eða í beinum tengslum við héraðsfundi, stjórn sé lítil og verkefnin unnin út í söfnuðunum. Við undirbúning stofnunar ÆSKEY var sérstaklega horft til aðstæðna í prófastsdæminu og þarfa safnaðanna og því þjónar ÆSKEY m.a. mun víðari aldurshópi en systursamband þeirra ÆSKR.

Við stofnun ÆSKEY áttu sæti í Æskulýðsnefnd Eyjafjarðarprófastsdæmis, Sólveig Halla Kristjánsdóttir þá æskulýðsfulltrúi Akureyrarkirkju, Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir sóknarprestur í Ólafsfjarðarprestakalli og Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni í Glerárkirkju og skipuðu þau fyrstu stjórn ÆSKEY.

Stjórn ÆSKEY skipa nú:

  • Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju, formaður
  • Sunna Dóra Möller, æskulýðsfulltrúi í Akureyrarkirkju, ritari
  • Rakel Ösp Aðalsteinsdóttir, æskulýðsleiðtogi í Einarstaðakirkju, meðstjórnandi.

ÆSKEY, Æskulýðssamband kirkjunnar í Eyjafjarðarprófastsdæmi, Kirkjubæ við Ráðhústorg, Brekkugötu 1, 600 Akureyri, kt. 420369-3529.

 

Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS