Kórastarf

Æskulýðskór Glerárkirkju. Myndina tók Páll Jóhannsson.
Þó nokkrir barna- og unglingakórar eru starfandi í kirkjum í Eyjafjarðarprófastsdæmi.
Akureyrarkirkja
Barnakórar Akureyrarkirkju eru tveir. Í yngri kórnum eru krakkar á aldrinum 7 til 9 ára en í eldri kórnum eru 10 til 12 ára krakkar. Kórarnir syngja að jafnaði einu sinni í mánuði í fjölskylduguðsþjónustu og koma m.a. fram á aðventukvöldi og við önnur tækifæri í kirkjunni.
Stúlknakór Akureyrarkirkju var stofnaður haustið 2003. Í kórnum eru 35 – 40 stúlkur á aldrinum 13 – 20 ára. Kórinn kemur reglulega fram í helgihaldi kirkjunnar, við ýmiss tækifæri í kirkjunni og utan hennar. Kórinn æfir tvisvar í viku, fer reglulega í æfingabúðir auk þess sem tónleikaferðir eru fastur liður í starfi kórsins.
Glerárkirkja
Barnakór Glerárkirkju var stofnaður haustið 1991. Í kórnum eru 60 – 70 börn á aldrinum 7 – 11 ára. Kórinn kemur reglulega fram í fjölskylduguðsþjónustum kirkjunnar og við önnur tækifæri utan kirkju og innan. Kórinn æfir einu sinni í viku auk þess að æfa stöku sinnum um helgar.
Drengjakór Glerárkirkju var stofnaður haustið 2008. Í kórnum eru 15 drengir á aldrinum 10 til 12 ára. Kórinn kemur fram við ýmiss tækifæri í kirkjunni. Æfingar eru einu sinni í viku en starf kórsins er í mótun.
Æskulýðskór Glerárkirkju var stofnaður formlega í janúar 2007 en þá hafði um nokkurt skeið verið starfandi unglingakór við hlið barnakórsins í kirkjunni. Í kórnum eru um 30 börn á aldrinum 12 til 18 ára. Kórinn kemur reglulega fram í helgihaldi kirkjunnar, heldur eigin tónleika og tekur þátt í margskonar dagskrá innan kirkju og utan. Kórinn æfir einu sinni í viku, stöku sinnum um helgar og fer reglulega í æfingabúðir.