Unglingastarf

Æskulýðsfélag Akureyrarkirkju, ÆFAK, var stofnað 19. október 1947 og markar sá dagur formlegt upphaf unglingastarfs kirkjunnar á Akureyri og í reynd við Eyjafjörð og á Norðurlandi öllu. Frumkvæði að þessu starfi átti sr. Pétur Sigurgeirsson sem þá var nýkominn til starfa við Akureyrarkirkju. Stofnun félagsins hafði átt sér stuttan aðdraganda, en þetta sama ár hafði sr. Pétur staðið fyrir æskulýðsfundum í samstarfi við templara. Ítarlega er fjallað um stofnun félagsins í Sögu Akureyrarkirkju (bls. 357-397). Í dag eru starfandi tvö æskulýðsfélög í kirkjum í Eyjafjarðarprófastsdæmi, annars vegar ÆFAK í Akureyrarkirkju og hins vegar Glerbrot í Glerárkirkju. Neðst á síðunni er að finna yfirlit yfir æskulýðsfélög sem hafa verið stofnuð í kirkjum í Eyjafirði og víðar.
KNS. Á bak við KNS stendur flottur hópur framhaldsskólanema. Hópurinn hittist klukkan hálf níu á mánudagskvöldum í Kirkjubæ við Ráðhústorg. Þar er pælt í lífinu, tilverunni, Biblíunni, farið í leiki, talað saman, borðað og skipst á trúarpælingum og boðið upp á bænastund. Hugmyndin er að nokkru sótt til Kristilegu Skólahreyfingarinnar (KSS og KSF) og þaðan er nafnið komið: Kristilegt Næstumþví Stúdentafélag. Stuðningsaðilar við KNS eru Æskulýðsstarf Akureyrarkirkju, Æskulýðsstarf Glerárkirkju, Hjálpræðisherinn og KFUM og KFUK. Ertu með spurningar, viltu vera með? Fylgstu með á Facebook, skráðu þig í hópinn, sendu okkur SMS eða hringdu: Jóhann (699 4115) eða Pétur (864 8451) eða Siggi (896 6891 ). Nálgast má dagskrá KNS vorið 2009 hér á netinu sem pdf-skjal.
Fjölvítamín Í vetur fór af stað nýr fjölmenningarhópur sem hittist annað hvert mánudagskvöld og er fyrir 14 til 17 ára unglinga. Hópurinn verður skipaður bæði einstaklingum sem eru fæddir hér á landi og nýjum íslendingum sem eru að setjast hér að. Aðstandendur fjölvítamíns eru Glerárkirkja og KFUM og KFUK.
Smellið hér til að sjá nýjustu fréttir um unglingastarf hér á vef Eyjarfjarðarprófastsdæmis.
Æskulýðsfélög í Hólastifti, stofnendur þeirra og stofnár (Úr Sögu Akureyrarkirkju, bls. 397)
- 1947: Æskulýðsfélag Akureyrarkirkju (sr. Pétur Sigurgeirsson)
- 1955: Æskulýðsfélag Siglufjarðarkirkju (sr. Ragnar Fjalar Lárusson)
- 1956: Æskulýðsfélag Nes- og Grenjaðarstaðarsókna (sr. Sigurður Guðmundsson)
- 1959: Æskulýðsfélag Húsavíkurkirkju (sr. Friðrik A. Friðriksson og sr. Lárus Halldórsson með aðstoð Sigurðar Gunnarssonar, skólastjóra)
- 1959: Æskulýðsfélag Ólafsfjarðarkirkju (sr. Kristján Búason)
- 1960: Æskulýðsfélag Sauðárkrókskirkju (sr. Þórir Stephensen)
- 1961: Æskulýðsfélag Einarsstaðasóknar (sr. Sigurður Guðmundsson)
- 1962: Æskulýðsfélag Laufáss- og Grenivíkursókna (sr. Jón Bjarman)
- 1964: Æskulýðsfélag Hríseyjarkirkju (sr. Bolli Gústavsson)
- 1964: Æskulýðsfélag Grímseyjarkirkju (sr. Pétur Sigurgeirsson)
- 1967: Æskulýðsfélag Svalbarðskirkju, S-Þing. (sr. Bolli Gústavsson)
- 1968: Æskulýðsfélag Þingeyrarklausturs (sr. Árni Sigurðsson)
- 1976: Æskulýðsfélag Hálsprestakalls (sr. Pétur Þórarinsson)
- 1981: Æskulýðsfélag Möðruvallaprestakalls (sr. Þórhallur Höskuldsson)
- 1984: Æskulýðsfélag Glerárkirkju ,,Glerbrot” (sr. Pálmi Matthíasson)