Samherji styrkir æskulýðsstarf kirkjunnar á Akureyri
Forsvarsmenn Samherja á Akureyri sýndu samfélagslega ábyrgð í verki í tilefni af 25 ára afmæli fyrirtækisins nú um helgina og styrktu íþróttafélög og aðra um samtals 50 milljónir. Meðal annars fékk æskulýðsstarf kirkjunnar á Akureyri tvær milljónir í sinn hlut. Styrkurinn kemur sér afar vel fyrir þátttakendur í æskulýðsstarfi kirknanna á Akureyri.
Forsvarsmenn Samherja á Akureyri sýndu samfélagslega ábyrgð í verki í tilefni af 25 ára afmæli fyrirtækisins nú um helgina og styrktu íþróttafélög og aðra um samtals 50 milljónir. Meðal annars fékk æskulýðsstarf kirkjunnar á Akureyri tvær milljónir í sinn hlut. Styrkurinn kemur sér afar vel fyrir þátttakendur í æskulýðsstarfi kirknanna á Akureyri. Við afhendingu styrkjanna kom fram að mjög faglega er staðið að veitingu þeirra og hefur verið skipuð sérstök úthlutunarnefnd sem mun stjórna notkun styrkjanna í samstarfi við styrkþega.

Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju tekur á móti styrknum.

Fjölmenni var við athöfnina sem fór fram í Ketilhúsinu á Akureyri, m.a. sóknarprestar og prestar úr Akureyrar- og Glerárkirkju.
Kristján Kristjánsson á Vikudegi tók myndirnar sem fylgja þessari frétt og leyfði góðfúslega birtingu þeirra hér.
Pétur Björgvin, 8/12 2008 kl. 12.45