Ný vika, ný tækifæri
Opið hús og upplýsingar fyrir fólk í atvinnuleit er yfirskrift dagskrár sem hefur göngu sína í Glerárkirkju mánudaginn 2. febrúar. Hugmyndin á bak við þessa dagskrá er sú að hver vika feli í sér ný tækifæri og að það sé kostur að hittast, spjalla saman og fá upplýsingar. Opið hús verður alla mánudagsmorgna frá 09:00 til 11:00.
Ný vika, ný tækifæri
Opið hús og upplýsingar í Glerárkirkju
Fyrir fólk í atvinnuleit alla mánudaga, ókeypis, allir velkomnir
Húsið opnar kl. 09:00.
09:30 Upplýsingar
10:00 – 11:00 Kaffispjall (boðið upp á brauð, álegg og kaffi)
Á döfinni:
2. febrúar: Þorsteinn E. Arnórsson frá Einingu-Iðju upplýsir um ábyrgðasjóð launa.
9. febrúar: Brynhildur Pétursdóttir frá Neytendasamtökunum upplýsir um neytendamál.
16. febrúar: Hafsteinn Jakobsson frá Akureyrardeild RKÍ upplýsir um starf Rauða Krossins og tækifæri til þátttök þar.
23. febrúar: Soffía Gísladóttir frá Vinnumálastofnun upplýsir um mikilvægust þætti sem einstaklingar á atvinnuleysisskrá þurfa að hafa í huga.
Athugið: Prestur eða djákni eru til staðar á sama tíma fyrir þá sem vilja nýta sér sálgæsluviðtöl.
Auglýsing á pdf-sniði til útprentunar.
Merki: Fólk í atvinnuleit
Pétur Björgvin, 26/1 2009 kl. 14.44