Fyrirætlanir til heilla
Nokkrar kirkjur á Norður- og Austurlandi hafa tekið sig saman og stefna nú á að hittast með æskulýðsfélögin sín í Stórutjarnaskóla dagana 29. til 31. janúar næstkomandi. Yfirskrift þessa æskulýðsmóts er ,,Fyrirætlanir til heilla”. Gert er ráð fyrir um 100 þátttakendum.
Æskulýðsmótið er samstarfsverkefni og fást nánari upplýsingar um ferðatilhögun, kostnað og fararstjórn í hverri kirkju fyrir sig, en hver hópur er alfarið á ábyrgð viðkomandi sóknar og þá presta og starfsmanna hennar. Gestgjafar mótsins eru Þingeyjarprófastsdæmi og Laufásprestakall og er sóknarpresturinn í Laufási, sr. Bolli Pétur Bollason, þar í forsvari. Upplýsingabækling um helstu atriði mótsins er að finna hér á netinu (januarmot2010) en einnig er vert að hafa í huga að þátttakendur á mótinu munu taka þátt í HÆNU.
Pétur Björgvin, 6/1 2010 kl. 14.05