Landsmót æskulýðsfélaga á Akureyri í október
Æskulýðssamband þjóðkirkjunnar stendur árlega fyrir landsmóti æskulýðsfélaga sem er stærsti viðburður í æskulýðsstarfi kirkjunnar á ári hverju. Að þessu sinni verður mótið haldið á Akureyri dagana 15. til 17. október 2010 og gera skipuleggjendur ráð fyrir 700 til 1000 þátttakendum víðsvegar að af landinu, en mótið er opið æskulýðsfélögum sem starfa í kirkjum landsins og unglingadeildum sem starfa á vegum KFUM og KFUK. Síðasti skráningardagur er 1. október.
Landsmót æskulýðsfélaga þjóðkirkjunnar eiga sér langa sögu og má rekja hana 60 ár aftur í tímann þegar prestar kirkjunnar hópuðust með nýfermd ungmenni á mót víðsvegar um landið. Í ár (2010) heldur ÆSKÞ í fimmta sinn utan um landsmótið. Á síðasta ári var mótið haldið í Vestmannaeyjum en aldrei áður höfðu jafn margir sótt landsmótið eins og þá!
Fólkið sem flykkist á landsmót núna ætti að forvitnast hvort að foreldrar þeirra hafi verið á landsmóti. Til dæmis í Laugagerðisskóla á Snæfellsnesi 1986, í Vatnaskógi 1994 (þangað mættu 210 manns), á Dalvík 1996 (266 þátttakendur), í Vatnaskógi 1997 (þar voru 321 þátttakandi) eða í Hlíðadalsskóla árið 2000 (okei, það væru mjög ungir foreldrar). Landsmót var síðast haldið á Akureyri 2005.
Sögur og vefsíður af landsmótum er að finna víða á vefnum, til dæmis hér og hér og hér og hér og hér og hér eða hér. Frá því á landsmóti 2008 hefur svo verið haldið úti sérstakri bloggsíðu mótsins sem skoða má á blogg.visir.is/landsmot.
Með landsmótunum vill ÆSKÞ styrkja, efla og styðja við unglingana í verkefnum sem mæta þeim á þessu aldursskeiði. Unglingunum gefst tækifæri til þess að takast á við spennandi, þroskandi og uppbyggjandi verkefni í samfélagi hvert við annað og fullorðna. Unglingsárin eru mótunartími og það er ekki síst á þeim árum sem unglingurinn veltir fyrir sér hinum ýmsu spurningum lífsins. Samfélag um trúna getur oft skapað grundvöll fyrir slíkar umræður. Með þátttöku í landsmóti hefur unglingurinn tækifæri til þess að kynnast trúnni og velja þannig lífsgildi sem skapa jákvæð viðhorf til lífsins sem leggja grunn að sjálfstyrkingu einstaklingsins og hjálpa honum að temja sér jákvæða sýn á lífið og tilveruna.
Hér á eftir eru tvær stuttmyndir af youtube sem gefa smá hugmynd um það sem koma skal:
a
Merki: Unglingastarf
Pétur Björgvin, 11/8 2010 kl. 12.15