Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Kompás – mannréttindafræðsla fyrir ungt fólk

Æskulýðsvettvangurinn stendur fyrir námskeiði í notkun á Kompás – handbók Evrópuráðsins í mannréttindafræðslu með ungu fólki – dagana 29. september til 2. október næstkomandi í Reykjavík. Námskeiðið  er ætlað fagfólki í tómstundastarfi, kennurum af öllum skólastigum sem og sjálfboðaliðum sem starfa með ungu fólki á hvaða vettvangi sem er. Á námskeiðinu verður farið í nokkra þætti bókarinnar Kompás sem nýlega var þýdd á íslensku og hefur reynst vel í mannréttindafræðslu víða um Evrópu. Allir sem hafa áhuga á mannréttindum ættu því ekki að láta þetta námskeið framhjá sér fara. Eftir námskeiðið ættu þátttakendur að þekkja betur til mannréttinda hér á landi og erlendis auk þess að geta kennt ungu fólki um mannréttindi með því að nota handbókina Kompás.

Æskulýðsvettvangurinn stendur fyrir námskeiðinu að tilstuðlan Mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem einnig styrkir verkefnið ásamt Evrópuráðinu. Þátttakendur þurfa því einungis að greiða kr. 9.000 fyrir námskeiðið en innifalið í því er hádegismatur og 2 kaffitímar þá daga sem námskeiðið stendur og Kompás bókin (sem kostar annars kr. 8.252 hjá Námsgagnastofnun). En ATHUGIÐ að einungis eru 25  pláss í boði!!!

Leiðbeinendur eða þjálfarar á námskeiðinu eru þau Buzz Bury (frá Bretlandi), Marija Gajic (frá Serbíu) og Pétur Björgvin Þorsteinsson (frá Íslandi). Öll hafa þau reynslu af notkun bókarinnar og kennslu út frá henni.

Námskeiðið verður sem fyrr segir haldið dagana 29. september – 2. október nk. kl. 8:30 – 17:00 í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28, Reykjavík. Það fer aðallega fram á ensku. Nánari upplýsingar á www.kfum.is/namskeid.

Pétur Björgvin, 20/8 2010 kl. 12.44

     

    Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS