Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Hvert stefnum við? Frásögn af fyrsta umræðukvöldinu

Umræðukvöld um stefnumál kirkjunnar hófust í Glerárkirkju í gærkvöldi með erindi sr. Jóns A. Baldvinssonar Hólabiskups. Í umfjöllun sinni um stefnumál kirkjunnar horfði hann sérstaklega til skýrslu nefndar um heildarskipan þjónustu kirkjunnar, sem verður sjöunda mál á komandi Kirkjuþingi. Erindi hans leiddi til líflegra umræðna, en Sunna Dóra Möller guðfræðinemi opnaði umræðurnar með áhugaverðu innleggi sínu. Hér á eftir má finna samantekt þeirra sr. Guðmundar Guðmundssonar héraðsprests og Péturs Björgvins Þorsteinsson, djákna.

Sr. Jón hóf mál sitt á sögulegum inngangi þar sem hann horfði hvoru tveggja til eigin upplifunar og kirkjusögulegra viðburða síðustu aldar.

Að loknum þessum inngangi vatt biskup sér í umfjöllun um fyrrnefnda skýrslu um heildarskipan þjónustu kirkjunnar. Skýrslan skiptist í fernt. Fyrsti hluti skýrslunnar fjallar um grundvöll kirkjunnar og grunneiningu hennar, annar hluti fjallar um hlutverk hennar, að vera biðjandi, boðandi og þjónandi, þriðji hlutinn fjallar um kirkjulegar athafnir og sá fjórði um starfsfólk og starfseiningar.

Hér má skoða glærur sem fylgdu fyrirlestrinum

Skipan nefndarinnar má rekja til ársins 2006 en þá samþykkti kirkjuþing að beina  því til kirkjuráðs að skipa nefnd til að vinna tillögur að heildarskipan þjónustu þjóðkirkjunnar á grundvelli Stefnu og starfsáherslna þjóðkirkjunnar 2004-2010. Eftir stækkun nefndarinnar á síðasta ári eiga nú eftirfarandi aðilar sæti í nefndinni: Sr. Agnes Sigurðardóttir, prófastur, Bolungarvík, sr. Gísli Jónasson, prófastur, Breiðholtssókn, Dagný Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri ÆSKR og kirkjuþingsfulltrúi, Reykjavík, sr. Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestur og kirkjuþingsfulltrúi, Langholtskirkju, Katrín Ásgrímsdóttir kirkjuþingsfulltrúi, nú búsett á Akureyri, Magnea Sverrisdóttir, djákni í Hallgrímskirkju og starfsmaður á Biskupsstofu, sr. Kristján Björnsson, sóknarprestur og kirkjuráðsmaður, Vestmannaeyjum og Marinó Þorsteinsson, formaður sóknarnefndar Dómkirkjusóknar og formaður leikmannaráðs og sr. Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari sem hefur verið formaður nefndarinnar frá upphafi.

Skýrsluhöfundar sjá fyrir sér að þjónusta kirkjunnar sé skilgreind út frá rétti sóknarbarnsins til þjónustu innan sinnar sóknar eða samstarfssvæðis og byggja á því að grunnþjónustan skiptist í fimm meginþætti, þ.e. helgihald; boðun og fræðslu; kærleiksþjónustu, sálgæslu og hjálparstarf; menningu og listir; og staðbundna þjónustu.

Sr. Jón benti á að í skýrslunni væri gert ráð fyrir því að hvert sóknarbarn ætti kost á guðsþjónustu hvern helgan dag. Stuðla bæri að fjölbreytni, heimilisguðrækni og bænalífi. Þá bæri sókninni að veita fræðslu í kristinni trú og sið og styðja þannig við heimilin í trúaruppeldi barnanna. Slíkur stuðningur ætti að birtast með barnastarfi, fermingarundirbúningi og æskulýðsstarfi. Þá beri sókninni að sjá til þess að sóknarbörn njóti sálgæslu, umhyggju og stuðnings á lífsgöngunni og eigi aðgang að sálgæslu í samtali, prédikun, sakramenti og fyrirbæn. Myndskeiðið hér fyrir neðan er útdráttur úr erindi sr. Jóns:

Í framhaldinu kom sr. Jón inn á að skýrsluhöfundar nefndu það einnig sem hlutverk sókna að styðja og efla menningar- og listastarf á kristnum grunni í sókninni. Þá væri það hlutverk sókna að taka þátt í hátíðar og menningarviðburðum og stuðla að varðveislu menningarminja. Einnig beri sóknum að leita nýrra leiða, verða sýnilegri, taka virkan þátt í samstarfi, haga þjónustu sinni í samræmi við breytingar á búsetu og gæta þess að hópar eins og íbúar sumarhúsabyggða og ferðafólk fái þjónustu.

Samstarfssvæði, færri prestaköll og breyttir starfshættir eru þær breytingar sem eru stærstar og gerðar til að koma þessum áherslum til framkvæmdar. Sóknarprestar verða áfram í sóknunum og hafa skyldur við samstarfssvæðið en auk þeirra verða aðrir prestar innan samstarfssvæðanna. Hugsunin er að með þessu megi sinna grunnþjónustunni sem hvert sóknarbarn á rétt á. Prófastsdæmin verði 9. Prófastar verði verkstjórara og eftirlitsaðilar á samstarfssvæðunum. Það verði einn héraðsprestur í hverju prófastsdæmi. Vígslubiskupar verði eins og verið hefur.

Í skýrslunni er talað um messuskyldu og er sóknum landsins skipt niður í messuflokka eftir fjölda sóknarbarna (ekki íbúa). Þannig er gert ráð fyrir því að þær sóknir sem hafa 2500 meðlimi eða fleiri bjóði upp á 60 guðsþjónustur á ári, sóknir með 750 til 2500 meðlimi 28 guðsþjónustur á ári, sóknir með 300 til 750 meðlimi 18 guðsþjónustur á ári, sóknir með 100 til 300 meðlimi 11 guðsþjónustur á ári, sóknir með 50 til 100 meðlimi 6 guðsþjónustur á ári, en sóknir með færri en 50 meðlimi hafi enga messuskyldu en reynt verði að messa þar einu sinni eða tvisvar á ári.

Lögð er rík áhersla á að allar sóknir skuli uppfylla grunnþjónustuna, samkvæmt starfsáætlun sem sóknir skulu gera. Hugsun nefndarinnar er að þessu verður ekki náð nema að stofna til þessara samstarfssvæða.

Ekki gerði nefndin neinar tillögur um djákna né annað starfsfólk. Ekki eru til stafsreglur um aðra starfsmenn því taldi nefndin sér ekki fært að gera neinar tillögu um starfsmenn ráðna af söfnuðum. Eitt sem stingur í augu er að það var beðið um það sérstaklega að nefndin gerði úttekt á stjórnunarþætti kirkjunnar en þeir veigra sér við því þó að mesta gagnrýnin hafi komið fram varðandi stjórnunarþáttinn. Varðandi aukningu á stöðugildum á biskupsstofu er vísað í færslu á verkefnum við yfirtöku biskupsstofu á verkefnum frá ráðuneyti. En aðkallandi er að gera stjórnsýsluúttekt á biskupsstofu og stjórnunarþætti kirkjunnar almennt. Þar með þyrfti að skoða stjórnunarábyrgð víglubiskupa. Taldi hann mikilvægt að byggja upp gömlu biskupsstólanna og vildi sjá tillögu starfsháttarnefndar verða að veruleika.

Hann endaði með spurningunni: Er kirkjan á réttri leið? Lagði áherslu á að kirkjustarfið væri miklu öflugra nú en þegar hann hóf starf innan þjóðkirkjunnar. Hann vildi leggja áherslu á helgihaldið og gerði grein fyrir því sjónarmiði sínu að lokum. Hér á eftir má hlusta á niðurlag erindis sr. Jóns A. Baldvinssonar, vígslubiskups:

Guðmundur Guðmundsson, 12/10 2010 kl. 21.07

     

    Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS