Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Kynning á Lútherska heimssambandinu

Þessar vikurnar stendur Eyjafjarðarprófastsdæmi fyrir umræðukvöldum í Glerárkirkju um stefnumál kirkjunnar. Yfirskrift þessara umræðukvölda er: ,,Fylgjum kindagötunni, fyrst hún er þarna“. Frummælandi mánudagskvöldið 18. október var Magnea Sverrisdóttir, djákni í Hallgrímskirkju, en Magnea starfar einnig á Biskupsstofu og situr í stjórn Lútherska heimssambandsins. Í erindi sínu kynnti Magnea sambandið fyrir áheyrendum.

Í fyrri hluta erindis síns fór Magnea aðeins yfir sögu sambandsins en það var stofnað í Lundi árið 1947 upp úr rústum stríðsins, hugsað fyrir flóttafólk sem var út um Evrópu á þessum tíma. Ísland var með í því að stofna þessi samtök. Það voru Norðurlöndin, svo Norður Evrópa sem tóku fyrstu skrefin, en smátt og smátt bættust fleiri í hópinn. Í dag eru 145 aðildarkirkjur að sambandinu í 79 löndum. Samtals eru um 70 milljónir manna aðilar að þeim kirkjum sem eiga aðild að sambandinu. Í fyrsta myndbandinu hér fyrir neðan má hlusta á fyrri hluta erindis Magneu og horfa á glærur úr erindinu:

Í seinni hluta erindis síns ræddi Magnea um hlutverk stjórnar sambandsins. Í Stuttgart síðastliðið sumar var kjörin ný stjórn, nýr framkvæmdastjóri og nýr forseti. Þá ræddi hún um stöðu kvenna í sambandinu. Hér í næsta myndbandi má fylgjast með úrklippum úr seinni hluta erindis Magneu:

Á umræðukvöldinu sýndi Magnea tvö stutt Youtubeskeið. Annað þeirra sýndi viðtal við sr. Martin Junge frá Chile en hann er nýkjörinn framkvæmdastjóri sambandsins:

Seinna myndbandið sem Magnea sýndi var frá því þegar unga fólkið á heimsþinginu í sumar ávarpaði þingið:

Umsjón með umræðukvöldunum hafa sr. Guðmundur Guðmundsson héraðsprestur og Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni í Glerárkirkju. Ætlunin er að birta hér á vef prófastsdæmisins frásaganir frá kvöldunum og úrklippur í myndbandsformi.

Tenglar varðandi efni kvöldsins:

Tenglar varðandi umræðukvöldin:

Merki:

Pétur Björgvin, 25/10 2010 kl. 15.56

     

    Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS