Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Þriðja umræðukvöldið: Fjármál kirkjunnar

Ágætis aðsókn var að þriðja umræðukvöldi Eyjafjarðarprófastsdæmis þar sem Sigríður Dögg Geirsdóttir fjármálastjóri kynnti fjármál kirkjunnar. Yfirskrift þessara umræðukvölda er: ,,Fylgjum kindagötunni, fyrst hún er þarna“. Þeim er ætlað að upplýsa um stefnumál kirkjunnar og hvetja til umræðu um þau. Umræðukvöldin eru í Glerárkirkju á mánudagskvöldum og hefjast kl. 20:00. Hvert umræðukvöld er tekið upp á myndband og brot af framsöguerindum birt hér á vefnum ásamt stuttum frásögnum af hverju kvöldi fyrir sig.

Í erindi sínu dró Sigríður Dögg upp mynd af fjármálum Þjóðkirkjunnar og kom inn á hver uppruni tekna kirkjunnar er. Í fyrsta hluta erindis síns ítrekaði Sigríður að allt varðandi fjármál kirkjunnar hefur verið upp á borðum, en þar sem þau eru nokkuð flókin hefur gætt misskilnings varðandi þau. Þá gerði hún grein fyrir því að gríðarlegur niðurskurður er framundan hjá öllum innan kirkjunnar, en gert er ráð fyrir að tekjur Þjóðkirkjunnar á fjárlögum 2011 verði 3.5 milljarðar, en niðurskurðurinn í heild sinni verður 8,6%. Þetta og fleira útskýrði Sigríður í fyrsta hluta erindis síns. Úrklippur úr fyrsta hluta erindisins er að finna hér í fyrsta myndbandinu:

Í máli Sigríðar kom fram að nokkuð hefur borið á misskilningi varðandi umfang þess starfs sem fer fram á Biskupsstofu og fjölda stöðugilda Á Biskupsstofu. Í öðrum hluta erindis síns gerði hún grein fyrir því að hér væri um 30 manns að ræða, en gert væri ráð fyrir því að skorið yrði niður um fimm stöðugildi á Biskupsstofu á næsta ári. Í myndbandinu hér fyrir neðan er að finna úrklippur úr öðrum hluta erindisins þar sem Sigríður gerir nánari grein fyrir því hvaða fólk er á bak við þessi stöðugildi á Biskupsstofu og hvað þau gera. Þá fjallar hún einnig um sjóði kirkjunnar og þann niðurskurð sem blasir við:

Sóknargjöldin voru megininntak þriðja hluta erindis Sigríðar Daggar. Hún benti á að ekki væri aðeins verið að skera niður sóknargjöldin heldur hefði gjaldendum fækkað í fyrsta sinn árið 2009. Í máli hennar kom fram að ef sóknargjaldið hefði haldist óskert síðustu 10 árin væri það komið í 1030 krónur á hvern gjaldenda, en fyrir árið 2011 er nú ætlað að það verði 698 krónur. Sigríður Dögg greindi frá því að þróunin virðist nú vera sú að fjármagnsgjöld sókna hafa stóraukist. Á sama tíma hafa útgjöld til safnaðarstarfs minnkað hlutfallslega. Í þessum þriðja og síðasta hluta kom hún einnig inn á eignir og skuldir sókna  sem og nokkrar kennitölur:

Umsjón með umræðukvöldunum hafa sr. Guðmundur Guðmundsson héraðsprestur og Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni í Glerárkirkju. Ábendingar varðandi efni kvöldanna og framsetningu hér á vefnum eru vel þegnar á netfangið glerarkirkja@glerarkirkja.is eða gudmundur.gudmundsson@kirkjan.is. Ætlunin er að birta hér á vef prófastsdæmisins frásaganir frá kvöldunum og úrklippur í myndbandsformi. Við þökkum öllum sem hafa lagt hönd á plóginn hingað til og þá sérstaklega fyrirlesurunum sem hafa lagt á sig tíma, fyrirhöfn og ferðalög til þess að koma til Akureyrar og taka þátt í þessu verkefni.

Tenglar varðandi efni kvöldsins:

Tenglar varðandi umræðukvöldin:

Merki: , ,

Pétur Björgvin, 26/10 2010 kl. 14.49

     

    Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS