Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Fimmta umræðukvöldið: Dugar fræðsla og boðun kirkjunnar?

Dugar fræðsla og boðun kirkjunnar? Var spurning kvöldsins. Halldór Reynisson var með framsögu. Hann stjórnar fræðslusviði Biskupsstofu en undir hans stjórn hefur fræðslustefna kirkjunnar fengið á sig nýtt form í ljósi stefnumótunarvinnu kirkjunnar.

Glærur: Dugar fræðsla og boðun kirkjunnar?

Í upphafi gerði hann grein fyrir stöðu fræðslumála kirkjunnar. Hann rakti þróunina frá því að Stefnumótun kirkjunnar var tekinn upp 2004-2010. Fræðslustefnan kom í eðlilegu kjölfari á stefnumótuninni og samþykkt á kirkjuþing 2005. Síðan var óskað eftir trúfræðsluáætlun sem tilgreinir verkþætti innan fræðslustefnunnar. Og fyrir kirkjuþing 2010 liggur fyrir Námskrá sem Gunnar Finnbogason hefur unnið ásamt Irmu Sjöfn Kristjánsdóttur og Halldóri Reynissyni. Hann kynnti þessi gögn lítillega. Svo spurði hann um þörfina á stefnumótun? Í því sambandi vísaði hann til fræðslufundar með fulltrúum prófastsdæmanna 1. nóvember sl. en þar var barna- og unglingastarf til umfjöllunar og unnin SVÓT-greining. Þá fór hann ítarlegar yfir sviðið.

Hér má skoða erindið á glærum
Í seinni hluta erindisins fór hann meira inn á að meta stefnumótunina sem hann taldi að hefði verið gagnleg, vinnan sjálf virkjað marga og kirkjan vitað betur fyrir hvað hún stæði, en hins vegar hefði skort stefnufestu, úthald og eftirfylgd. 
Að lokum fór hann yfir SVÓT-greininguna á barna- og unglingastarfi kirkjunnar sem unnin var á fræðslufundi 1. nóvember. Hér á eftir fylgir samantektin á henni.

Guðmundur Guðmundsson, 11/11 2010 kl. 18.31

     

    Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS