Til hvers erum við að þessu?
Sagan af Agli Skallagrímssyni á Kúrlandi og þá sérstaklega samviska Egils sem og hugtök eins og æra, æðruleysi, drengskapur og þrautseigja voru Þorgrími Daníelssyni hugleikin í upphafi erindis síns þar sem hann velti fyrir sér hugmyndalandslaginu á Íslandi í dag og áhrifum kirkju og kristni á þetta landslag. Á þessu næstsíðasta umræðukvöldi haustsins var yfirskriftin ,,Til hvers erum við að þessu?” Hér á eftir má finna myndbönd með stærstum hluta erindis Þorgríms.
Í öðrum hluta erindis síns ræddi Þorgrímur meðal annars um mennskuhugsjónina, þ.e. það hvernig manneskjur við viljum vera og minnti okkur á samhengið á milli þess hvernig við skiljum hugtök og þess hvaða hugmyndalandslag við búum við og tók dæmi um hin mismunandi hugmyndalandslög fyrr og nú. Hann minnti á þá bjartsýni sem var ríkjandi í upphafi 20. aldar og hvernig sú bjartsýni varð fyrir hverju stóru áfallinu á fætur öðru. Og Þorgrímur greinir þar skipbrot hugsjónanna og telur efnis-, neyslu og mannréttindahyggju hafa einkennt hin síðustu ár. Sú síðastnefnda sé jafnvel hin nýja ríkistrú.
Í þriðja hluta erindis síns fjallaði Þorgrímur sérstaklega um neysluhyggjuna og það hvernig lífsafstaða breytist með tímanum, slíkt gerist ekki á einni nóttu. Þar veltir hann því líka fyrir sér hvort að mannréttindahyggjan fái staðist ef grundvöllurinn sé efnishyggja, þ.e. hvort að það geti farið saman að vera efnishyggjumaður og samþykkja réttindi annarra. Mannréttindi þurfi andlegan grunn. Ef við spyrjum ,,hvers vegna erum við að þessu?” þá sé svarið í fyrsta lagi vegna þess að við trúum á Guð og líka vegna þess að við viljum lifa í samfélagi sem er mótað af kristinni lífsskoðun. Kjarnastarfsemi kirkjunnar sé á sviði hins djúpstæða, þess að viðhalda kristinni trú, því hið grunnstæða (eins og til dæmis hvort eigi að virkja ákveðna á) mótist af hinu djúpstæða. Í lok erindis síns flutti hann svo texta eftir Veroniku Arnardóttur um það hvaða máli það skipti að trúa á Guð.
Dagskráin þetta kvöld var hluti af umræðukvöldaröð Eyjafjarðarprófastsdæmis sem hefur verið í Glerárkirkju á mánudagskvöldum í haust.
- Frásögn og myndbönd frá fyrsta kvöldinu má finna á vefslóðinni: http://kirkjan.is/eyjafjardarprofastsdaemi/2010/10/12/hvert-stefnum-vid-frasogn-af-fyrsta-umraedukvoldinu/#more-2699
- Frásögn og myndbönd frá öðru kvöldinu má finna á vefslóðinni: http://kirkjan.is/eyjafjardarprofastsdaemi/2010/10/25/kynning-a-lutherska-heimssambandinu/#more-2789
- Frásögn og myndbönd frá þriðja kvöldinu má finna á vefslóðinni: http://kirkjan.is/eyjafjardarprofastsdaemi/2010/10/26/3ja-umraedukvoldid-fjarmal-kirkjunnar/#more-2803
- Frásögn og myndbönd af fjórða kvöldinu má nálgast á vefslóðinni: http://kirkjan.is/eyjafjardarprofastsdaemi/2010/11/08/fjor%C3%B0a-umr%C3%A6%C3%B0ukvoldi%C3%B0-handbok-og-helgisi%C3%B0ir/#more-2865
-
Frásögn af fimmta umræðukvöldinu má finna á vefslóðinni: http://kirkjan.is/eyjafjardarprofastsdaemi/2010/11/11/fimmta-umr%C3%A6%C3%B0ukvoldi%C3%B0-dugar-fr%C3%A6%C3%B0sla-og-bo%C3%B0un-kirkjunnar
Dagskrá umræðukvöldanna má finna á vefslóðinni: http://kirkjan.is/eyjafjardarprofastsdaemi/fr%C3%A6%C3%B0sla/fylgjum-kindagotunni-fyrst-hun-er-tarna/
Pétur Björgvin, 17/11 2010 kl. 14.56