Síðasta umræðukvöldið um niðurstöðu kirkjuþings 22. nóv. kl. 20
Síðasta umræðukvöldið í Glerárkirkju mánudagskvöldið 22. nóvember kl. 20 verður um niðurstöðu kirkjuþings undir yfirkskriftinni: Og hvað nú? Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi eiga sér tvo leikmenn sem fulltrúa á Kirkjuþingi og einn vígðan þjón. Leikmennirnir eru þeir Stefán Magnússon og Birgir Rafn Styrmisson en fulltrúi vígðra þjóna er sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir sóknarprestur á Möðruvöllum í Hörgárdal.
Í sameiningu munu þau gefa áheyrendum innsýn í stöðu mála að nýloknu Kirkjuþingi en því lýkur nú um helgina. Með erindum þeirra lýkur þessari umræðukvöldaröð um stefnu kirkjunnar. Á vef Kirkjuþings eru nánari upplýsingar um þau mál sem þar verða til umræðu.
Dagskráin hvert kvöld hefst með um 45 mínútna löngu framsöguerindi. Að því loknu er sest saman yfir kaffiveitingum (sem seldar eru á vægu verði). Að lokum er rætt saman í hópi ræðumanna og þátttakenda um efni kvöldsins. Rétt fyrir tíu er boðið í helgistund í kirkjunni sem lýkur ekki seinna en klukkan 22:00.
Á vef kirkjuþings má kynna sér málefnin: http://www.kirkjuthing.is/
Þá hafa fyrri erindi og viðbrögð á umræðukvöldunum verið sett á vefinn sem hlóðskrár og samantektir um erindin á You-tube. Lesa áfram…
Guðmundur Guðmundsson, 19/11 2010 kl. 13.20