Helgarsamvera fyrir TTT starf kirknanna og yngri deildir KFUM og KFUK
Æskulýðssamband kirkjunnar í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi, ÆSKEY, í samstarfi við KFUM og KFUK á Norðurlandi stendur fyrir helgarsamveru fyrir TTT hópa úr kirkjum prófastsdæmisins og yngri deildir KFUM og KFUK í Ólafsfirði 5. og 6. nóvember næstkomandi. Fjölbreytt dagskrá verður í boði og hefst hún uppúr hádegi á laugardegi og endar með guðsþjónustu í kirkjunni klukkan ellefu á sunnudeginum.
Brottför frá Akureyri er frá Sunnuhlíð á Akureyri kl. 12:30, frá Möðruvallakirkju kl. 12:45 og frá Dalvíkurkirkju kl. 13:30 á laugardeginum. Minnt er á að gott er að börnin séu búin að fá sér hádegismat áður en lagt er af stað. Greiða þarf þátttökugjald sem er krónur 2.500 við skráningu. Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 31. október. Athugið að skráning fer fram í hverri kirkju fyrir sig. Krakkar sem taka þátt í starfi KFUM og KFUK skrá sig á deildarfundi. Lagt er af stað til baka á sunnudeginum kl. 12:00 að fjölskylduguðsþjónustu lokinni.
Nánari upplýsingar er að finna í bæklingi sem aðgengilegur er hér á netinu ( TTThaust2011 ), en sérstaklega er einnig bent á að þau börn sem ætla að taka þátt í Jól í skókassa verkefni þurfa að kynna sér verkefnið og mæta undirbúin með kassa og innihald með sér, sjá nánar á www.skokassar.net.
Pétur Björgvin, 28/9 2011 kl. 8.51