Tvö námskeið í upphafi nýs árs í Glerárkirkju
Í janúar stendur Glerárkirkju fyrir tvenns konar námskeiðum. Annars vegar munu sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og sr. Guðrún Eggertsdóttir verða með námskeiðið ,,Að ná áttum og sáttum” en það námskeið er ætlað fólki sem hefur staðið í skilnaði. Hins vegar mun Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni verða með námskeiðið ,,Ást fyrir lífið” sem er hjónabandsnámskeið, ætlað fólki sem vill gera gott hjónaband betra.
Að ná áttum og sáttum
Ert þú fráskilin/n eða stendur í skilnaði?
Í janúar býður Glerárkirkju upp á námskeið til styrkingar þeim sem hafa gengið í gegnum skilnað einhvern tíma á lífsleiðinni.
Umsjón með námskeiðinu hafa:
- Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, prestur í Glerárkirkju og
- Sr. Guðrún Eggertsdóttir, sjúkrahúsprestur.
Kynningarfundur verður haldinn í Safnaðarheimili Glerárkirkju þriðjudaginn 10. janúar 2012 kl. 20:00.
Allir velkomnir.
————-
Ást fyrir lífið
11. og 18. janúar 2012 býður Glerárkirkja upp á námskeið um hjónabandsbókina ,,Ást fyrir lífið” sem Tindur gaf út fyrir jólin 2010. Umsjón með námskeiðinu hefur Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni í Glerárkirkju, en hann þýddi bókina yfir á íslensku.
Miðvikudagskvöldið 11. janúar horfum við á kvikmyndina ,,Fireproof” (því miður án íslensks texta) og 18. janúar er farið yfir hvernig gott er að nota bókina sem sjálfshjálparbók í hjónabandsvinnunni.
Allir velkomnir, dagskráin hefst bæði kvöldin kl. 20:00
Þátttaka er ókeypis en bókin er til sölu á 2.000 krónur.
Nánari upplýsingar í Glerárkirkju í síma 464 8800 og á vef kirkjunnar: www.glerarkirkja.is
Pétur Björgvin, 30/12 2011 kl. 12.02