Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Samkirkjuleg bænavika 18-25. janúar

Samkirkjuleg bænavika hefst miðvikudaginn 18. janúar og stendur til 25. janúar. Það er alkirkjuráðið og samkirkjunefnd Kaþólsku kirkjunnar sem standa fyrir bænavikunni á hverju ár. Dagsetningar miða við Péturs- og Pálsmessu. Að þessu sinni fylgjum við hér á landi þeim dagsetningunum en fram að þessu hafa bænadagarnir átta miðað við sunnudagana næst þessum messudögum. Efnið er undirbúið af kirkjudeildum í Póllandi sem valið hafa yfirskrift út frá sinni sögu og reynslu: „Sigur Krists umbreytir okkur”. (Sbr. 1. Kor. 15:51-58). Að vanda munum  við fara á milli safnaðanna á Akureyri og vera með bænagjörð þar sem efni hvers dags verður íhugað og tekið þátt í því með kristnu fólki út um allan heim að biðja um sýnilega einingu. Vikunni lýkur svo með sameiginlegri samkomu í Glerárkirkju með þátttöku fulltrúa frá söfnuðunum og Gospelkór Akureyrar mun koma fram og leiða sönginn sem verður mikill og kröftugur. Hér má lesa dagskrána og skoða auglýsingu sem prenta má út og hengja upp til að vekja athygli á bænavikunni.

Auglýsing á Pdf-formi

Alþjóðleg samkirkjuleg bænavika

fyrir einingu kristninnar 18. – 25. jan.

Þema vikunnar: „Sigur Krists umbreytir okkur”. (Sbr. 1. Kor. 15:51-58)

Dagskrá:

Miðvikudagur 18. janúar klukkan 12:00
Bænastund á Hjálpræðishernum, Hvannavöllum 10

Fimmtudagur 19. janúar kl. 12:00
Kyrrðar og fyrirbænastund í Þjóðkirkjunni í Akureyrarkirkju, Eyrarlandsvegi

Laugardagur 21. janúar kl.12:00
Samkoma í Aðventkirkjunni í Gamla Lundi, Eiðsvallagötu 14

Sunnudagur 22. janúar
Sameiginlegar fyrirbænir um einingu kristninnar í guðsþjónustum safnaðanna

Bæna- og íhugunarstund í félagsheimili KFUM og KFUK í Sunnuhlíð kl. 20

Mánudagur 23. janúar klukkan 20:00
Bænastund í Hvítasunnukirkjunni, Skarðshlíð 20

Þriðjudagur 24. janúar klukkan 20:00
Aftansöngur í Kaþólsku kirkjunni, Péturskirkju, Hrafnagilsstræti 2

Miðvikudagur 25. janúar klukkan 20:00
Sameiginleg samkoma með þátttöku trúfélaga á Akureyri í Glerárkirkju. Gospelkór Akureyrar syngur og leiðir söng.

Efni bænavikunnar er hægt að nálgast á www.oikoumene.org og www.kirkjan.is og þar á meðal daglegar bænir þessa átta daga sem kristnir menn eru hvattir til að taka þátt í einslega eða á bænastundum safnaðanna og guðsþjónustum.

Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga á Akureyri, Aðventkirkjan, Hjálpræðisherinn, Hvítasunnukirkjan, Kaþólska kirkjan og Þjóðkirkjan.

 

Guðmundur Guðmundsson, 6/1 2012 kl. 18.23

     

    Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS