Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Fréttabréf Möðruvallaklausturssóknar komið út

Fréttabréf Möðruvallaklausturssóknar er komið út en þar er sagt frá starfinu framundan frá ármótum til hvítasunnu. Í formálsorðum sínum hvetur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur, sóknarfólk að taka þátt í helgihaldi til að eiga samfélag saman í kirkjunum og nýta sér sálgæslu kirkjunnar. Hér á eftir má lesa fréttabréfið og dagskrá kirkjunnar á Möðruvöllum.

Fréttabréf Möðruvallaklaustursóknar veturinn og vorið 2011

Kirkjustarfið á Möðruvöllum

Gleðilegt nýtt ár, kæru sveitungar og vinir og innilegar þakkir fyrir dýrmætar samverustundir á liðnum árum.

Við leggjum nýja árið í Guðs hendur eins og segir í áramótasálminum: ” …í almáttugri hendi hans er hagur þessa kalda lands.”   Það er gott að geta treyst því að við getum  falið hvern dag í Guðs hendur og treyst því að hann muni vel fyrir sjá. 

Til að efla þessa trú er gott að koma til kirkju, hlýða á orð Jesú um kærleika hans og handleiðslu í lífinu öllu, biðja saman og syngja saman fallegu sálmana okkar.  Það er einnig mikilvægt að við sjáum kirkjuna okkar sem vettvang til að ræða saman um lífið og tilgang þess og það sem hvílir okkur á hjarta. 

Þess vegna bjóðum við til samfélags í tengslum við guðsþjónusturnar í Leikhúsinu og þess vegna býður kirkjan upp á sálgæslu sem bæði getur farið fram á prestssetrinu eða heima hjá ykkur, kæru vinir.  Sálgæsla er trúnaðarsamtal prests við hvern þann sem á trúnaði þarf að halda varðandi líf sitt og trú.

Enn á ný vil ég ítreka að við tökum fagnandi hvers kyns hugmyndum um kirkjustarfið.  Hikið ekki við að koma með hugmyndir, en umfram allt: 
 Komdu og vertu með í kirkjunni í vetur.                  

 Með ósk um Guðs blessun 
Solveig Lára.

 
 

Sunnudagurinn 15. janúar

Helgihald í Möðruvallaklaustursókn frá áramótum að hvítasunnu 2012.

 

Fjölskylduguðsþjónusta í Möðruvallakirkju kl. 11:00
Söngvar fyrir alla fjölskylduna. Allir velkomnir

Sunnudagurinn 26. febrúar

Messa í Möðruvallakirkju kl. 14:00
Messukaffi í Leikhúsinu– Allir velkomnir

Sunnudagurinn 4. mars

Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar.
Fjölskylduguðsþjónusta í Möðruvallakirkju kl. 11
Allir aldurshópar taka þátt í guðs-þjónustunni. Allir velkomnir.

Laugardagurinn 17. mars

Kyrrðardagur í Leikhúsinu og Möðruvallakirkju kl. 10-17 skráning á srslara@ismennt.is

Sunnudagurinn 18. mars

Guðsþjónusta í Möðruvallakirkju kl. 14:00
Allir velkomnir – Kirkjukaffi í Leikhúsinu.

Föstudagurinn langi 6. apríl:

Passíusálmalestur í Möðruvallakirkju kl. 13 og fram eftir degi.

Laugardagurinn 7. apríl:

Ferming í Bakkakirkju í Öxnadal kl. 11:00

Páskadagur 8. apríl:

Hátíðaguðsþjónusta í Möðruvallakirkju kl. 14:00
Allir velkomnir- Kirkjukaffi í Leikhúsinu.

Sunnudagurinn 15. apríl

Ferming í Bægisárkirkju kl. 13:30

Sunnudagurinn 6. maí

Fjölskylduguðsþjónusta í Möðruvallakirkju kl. 11:00
Söngvar fyrir alla fjölskylduna – Allir velkomnir

Uppstigningardagur 17. maí kl. 14:00

Guðsþjónusta í Möðruvallakirkju á degi aldraðra.
Allir velkomnir-Kirkjukaffi í Leikhúsinu.

Hvítasunnudagur 27. maí

Ferming í Möðruvallakirkju
Ferming í Glæsibæjarkirkju

Frá kirkjukórnum: 

Kórinn syngur við allar almennar messur í sókninni og á aðventukvöldum og hefur haldið tónleika m.a. í samstarfi við Samkór Svarfdæla. Auk þess hefur kórinn haldið tónleika í Ketilhúsinu, í Þorgeirskirkju, sungið á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, á dvalarheimilinu Hlíð,  í Kjarnalundi og Kristnesi. Organisti og kórstjóri er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.  Aðalfundur kórsins verður þriðjudagskvöldið 24. janúar. Æfingar eru á þriðjudagskvöldum og hefjast æfingar á nýju ári þriðjudagskvöldið 31. janúar.  Gaman væri þá að sjá ný andlit, enda eru allir velkomnir í kórinn.

Barna- og æskulýðsstarf

Áfram erum við í mjög góðu samstarfi við Þelamerkuskóla varðandi barnastarf.

Stundir fyrir 1.-4. bekk og 5.-6. bekk eru í skólanum á skólatíma, en ekki er laus tími fyrir 7. bekk eða fermingarstörfin innan stundaskrár.

Æskulýðsstarf fyrir 9.-10. bekk eru í formi umræðukvölda um lífið og tilveruna, en mest áhersla er lögð á forvarnarstarf.  Er það eitt kvöld í mánuði og fer fram í Leikhúsinu á Möðruvöllum.

Í öllu þessu starfi er leitast við að mæta þeim spurningum sem börnin og unglingarnir eru að velta fyrir sér um lífið,  kirkjuna og trúmál.

Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir

Viðtalstímar eftir samkomulagi.
Sími 462 1963 GSM 898 4640
Netfang: srslara@ismennt.is

 

Guðmundur Guðmundsson, 10/1 2012 kl. 12.10

     

    Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS