Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Fundargerð héraðsfundar 2011

Fundargerð héraðsfundar er nú aðgengileg á vefnum undir prófastsdæmi/héraðsfundir. Næsti héraðsfundur verður laugardaginn 24. mars á Akureyri og verður auglýstur sérstaklega þegar nær dregur.

Fundargerð héraðsfundar 2011 á Pdf-formi

Fundargerð héraðsfundar Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmishaldinn í Stórutjarnaskóla laugardaginn 26. mars 2011

Fyrsti héraðsfundur hins nýja prófastsdæmis, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis, sem haldinn var í Stórutjarnaskóla laugardaginn 26. mars 2011, hófst með messu í Ljósavatnskirkju kl. 11:00. Sr. Hildur Eir Bolladóttir prédikaði og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir og sr. Gylfi Jónsson þjónuðu fyrir altari. Organisti var Dagný Pétursdóttir. Að messu lokinni var snæddur hádegismatur í Stórutjarnaskóla.

 

Eiginleg aðalfundarstörf hófust kl. 13:15 með því að prófastur sr. Jón Ármann Gíslason setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Gerði hann að tillögu sinni að fundarstjórn yrði í höndum, hans og sr. Guðrúnar Eggertsdóttur og sr. Þorgríms Daníelssonar og að fundarritarar yrðu sr. Sigríður Munda Jónsdóttir og Dagur Jóhannesson. Tillaga prófasts var samþykkt.

 

1. Aðfararorð prófasts

Prófastur gerði stuttlega grein fyrir starfi kirkjunnar í hinu nýja prófastsdæmi, sem er mjög víðfemt. Það nær frá Siglufirði í vestri að Þórhöfn í austri. Bauð hann nýtt starfsfólk kirkjunnar velkomið til starfa og þakkaði þeim sem látið höfðu af starfi gott og fórnfúst starf í þágu kirkjunnar. Prófastur sagði að þau Gestur Jónsson, gjaldkeri héraðsnefndar Eyjafjarðarprófastsdæmis og Helga Jónína Stefánsdóttir, ritari Þingeyjarprófastsdæmis ætluðu að hætta í héraðsnefnd og þakkaði þeim óeigingjarnt starf í kirkjunnar þágu.

 

2. Reikningar Þingeyjarprófastsdæmis

Sr. Sighvatur Karlsson, gjaldkeri gerði grein fyrir reikningum Þingeyjarprófastsdæmis. Tap ársins 2010 var kr. 629.023. Eignir í árslok voru kr. 1.784.054. Reikningarnir voru samþykktir samhljóða.

 

3. Reikningar Eyjafjarðarprófastsdæmis

Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir, staðgengill gjaldkera gerði grein fyrir reikningum Eyjafjarðarprófastsdæmis. Hagnaður ársins var kr. 512.718. Eignir í árslok voru kr. 3.212.551. Reikningarnir voru samþykktir samhljóða.

 

4. Fjárhagsáætlun ársins 2012

Prófastur gerði grein fyrir fjárhagsáætlun fyrir árið 2012. Erfitt er að áætla tekjur prófasts­dæmisins þar sem ekki er vitað um hvað ríkið taki til sín. Gert væri ráð fyrir að tekjurnar yrðu 8.400.000 kr. Fjárhagsáætlun var samþykkt.

 

5. Kirkjuþing 2010

Stefán Magnússon, kirkjuþingsfulltrúi kynnti helstu mál þingsins og þó sérstaklega þau sem varða prófastsdæmið. Benti hann á vef Kirkjuþings á heimasíðu Þjóðkirkjunnar. Hann gerði fjármál Þjóðkirkjunnar að umtalsefni og ítrekaði að heildartekjur hennar hefðu lækkað milli ára um 320 milljónir. Kirkjuþingið samþykkti sameiningu prófastsdæma og spurning væri hvaða áhrif það hefði á þjónustu kirkjunnar heima í héraði. Stefán taldi að auka þyrfti tengsl milli kirkjustjórnar og grasrótar. Að lokum lýsti hann þeirri skoðun sinni að prósessía presta við upphaf héraðsfundar væri óþörf og hugnist honum illa.

 

Nokkrar umræður urðu um samþykktir kirkjuþings.

Sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir ræddi um fimm ára regluna varðandi embætti sóknarpresta og um hugmyndir og skilgreiningar á grasrótarstarfi innan kirkjunnar og tengslin við starfshætti hennar.

Sr. Gunnlaugur Garðarsson undraðist viðbrögð heima í héraði við sameiningu prófasts­dæmanna. Brýndi hann kirkjuþingsfulltrúa til að fylgja eftir ályktunum og hugmyndum héraðsfunda.

Jóhann Ólafsson, formaður sóknarnefndar í Vallakirkju sagði það valdníðslu hvernig farið væri með ályktanir héraðsfunda. Óskaði hann fundarmönnum velfarnaðar í samstarfi í hinu nýja prófastsdæmi og benti á að þeirra væri að móta starfið og leita leiða til að efla það og auka. Varpaði hann fram þeirri hugmynd hvort þörf væri á nefndum í hvoru prófasts­dæminu gamla fyrir sig sem heyrðu undir héraðsnefnd til að virkja grasrótina og efla starfið.

Prófastur þakkaði framkomnar athugasemdir og benti á að tilgangur samstarfssvæðanna væri meðal annars sá að efla grasrótina.

Birgir Rafn Styrmisson, kirkjuþingsfulltrúi gerði grein fyrir afstöðu sinni við málið á Kirkjuþingi. Hann sat hjá við afgreiðslu um sameiningu prófastsdæmanna, en sagðist í hjarta sínu sammála sameiningunni.

Hafliði Jósteinsson, frá Húsavík og fulltrúi á Leikmannastefnu sagði að úr því að sameiningin væri orðin staðreynd þá yrði að vinna út frá því. Kirkjan ætti erindi við þjóðina, sem þyrfti á boðskap Jesú Krists að halda. Nú væri málum þannig háttað að á Alþingi væru margir fulltrúar sem vildu ekki efla starf Þjóðkirkjunnar. Það væri verkefni til að leysa en ekki vandamál.

Sr. Guðmundur Guðmundsson sagðist hlakka til þess að starfa aftur í Þingeyjarsýslu. Hann taldi mikilvægt að líta á fundinn sem aðalfund Þjóðkirkjunnar á Norð-Austurlandi og setja þyrfti skýrari markmið varðandi starf kirkjunnar í héraði og fjárhag héraðssjóðs.

Sr. Gylfi Jónsson þakkaði umræðurnar og taldi rétt að halda fleiri fundi til að móta starfið í þessu nýja prófastsdæmi, þar sem meðal annars yrði rætt um skilvirkni og tilgang og eðli samstarfssvæðanna.

Halla L. Loftsdóttir, Nessókn óskaði eftir því við fundarstjóra að fólk væri látið kynna sig og spurði um hvernig afgreiðslu mála á Kirkjuþingi væri háttað.

Birgir Rafn Styrmisson upplýsti að á Kirkjuþingi væru mál tekin fyrir, vísað til nefndar og aftur lögð fyrir til samþykktar.

 

6. “Þjónusta kirkjunnar – Samstarfssvæði”

Katrín Ásgrímsdóttir, kirkjuráðsmaður hafði framsögu um samþykktir Kirkjuþings um samstarfssvæðin. Sagði hún að í fimm ár hefði verið unnið að málinu innan kirkjunnar og gerði í stuttu máli grein fyrir vinnu nefndarinnar sem skilgreindi samstarfssvæðin. Í prófastsdæminu væri gert ráð fyrir sjö samstarfssvæðum, en í raun væri það undir heimamönnum komið hvernig svæðin litu út. Samkvæmt tillögum nefndarinnar mynduðu eftirtalin prestaköll samstarfssvæði:

 

a) Siglufjarðarprestakall og Ólafsfjarðarprestakall

b) Dalvíkur-, Hríseyjar- og Möðruvallaklaustursprestakall

c) Akureyrarprestakall, Glerárprestakall og Miðgarðasókn (Grímsey)

d) Laugalandsprestakall og Laufásprestakall

e) Grenjaðarstaðar-, Skútustaða- og Húsavíkurprestakall

f) Skinnastaðarprestakall og Langanesprestakall

Tilgangur samstarfssvæðanna væri sá meðal annars að skapa nærsamfélag sem vonandi ætti að auka starfsánægju starfsfólks kirkjunnar; leitað yrði leiða til að samnýta mannauð og fjármagn; og efla fræðslustarf og þjónustu kirkjunnar.

Umræður um samstarfssvæðin:

Sr. Magnús G. Gunnarsson gerði grein fyrir þeim athugasemdum sem hann hefði sent nefndinni fyrir þremur árum varðandi Grímsey, en hugmyndir væru um að færa Miðgarðasókn undir Akureyrarprestakall án umræðu við heimamenn. Hann vildi sjá samstarfssvæði Dalvík, Ólafsfjörður og Siglufjörður.

Sr. Gunnlaugur Garðarsson taldi að samstarfssvæðin ættu að hvetja til öflugra kirkjustarfs og tryggja grunnþjónustu kirkjunnar.

Sr. Gylfi Jónsson spurði um vettvang til breytinga á samstarfssvæðum og hver tæki ákvörðunina.

Katrín Ásgrímsdóttir brást við og taldi sjálfsagt að breyta samstarfssvæðum væri það vilji heimamanna, valdið og framkvæmdin væri heima í héraði.

Sr. Sighvatur Karlsson óskaði eftir að Katrín gerði grein fyrir samstarfi á Fljótsdalshéraði.

Sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir spurði um fjölda stöðugilda bakvið hvert samstarfssvæði.

Katrín Ásgrímsdóttir gerði grein fyrir fyrirkomulagi prestsþjónustu á Héraði og samstarfi sókna þar.

Sr. Guðrún Eggertsdóttir ræddi um þróunina sem varð við sameiningu sókna í Möðruvalla­klaustursprestakalls í eina sókn.

Kolbrún Pálsdóttir, Upsasókn velti fyrir sér hlutverki sóknarnefnda í verkefnum samstarfs­svæðanna og hvort svæðin myndu kalla á breytingu á prestaköllum.

Sr. Gylfi Jónsson benti á að Möðruvallaklaustursprestakall ætti nú þegar nokkuð samstarf við Akureyrarprestakall og það væri vilji til að það yrði samstarfssvæði frekar en með Hríseyjarprestakalli og Dalvíkurprestakalli.

Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup lagði áherslu á að hægt væri að breyta svæðum væri það vilji heimamanna. Tilgangur með svæðunum væri að styrkja þjónustuna, og nýta starfskraftana betur.

Stefán Magnússon taldi að samstarfssvæðin ættu að efla samstarf sóknarnefnda.

Sr. Gunnlaugur Garðarsson ræddi um samsetningu nefndarinnar sem vann málið. Þar hefði hallað á landsbyggðina.

Katrín Ásgrímsdóttir þakkaði líflegar umræður og sagðist leggja framkomnar athugasemdir og ábendingar fyrir vinnuhópinn.

 

Nú var gert kaffihlé.

 

7. Ársskýrsla Kirkjumiðstöðvarinnar við Vestmannsvatn

Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir kynnti áætlanir um starfsemi Kirkjumiðstöðvarinnar á árinu. Framundan er fjölskylduhátíð í apríl, vorsamvera TTT-starfs í júní og fermingarskóli síðla sumars og í haust.

Helga Kristinsdóttir gjaldkeri stjórnar Kirkjumiðstöðvarinnar gerði grein fyrir skýrslu stjórnarinnar og reikningum fyrir árið 2010. Halli ársins var 60.000,- kr. Tekið var lán að upphæð 7.150.000 í upphafi ársins 2009 til að fjármagna endurbætur og greiða rekstrarhalla undanfarinna ára. Á árinu 2010 var greitt í vaxtagjöld kr. 480.000,-.

Umræður:

Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson taldi mikilvægt að efla starfið og leita eftir fjármagni. Hann sagði frá hugmynd sinni um að kirkjan skipulegði sumarbústaðabyggð í landi Háls í Fnjóskadal, leigði lóðir og notaði ávinninginn í uppbyggingu Vestmannsvatns. Skoraði hann á kirkjuþingsfulltrúa að móta hugmyndir og leggja þær fyrir Kirkjuþing á komandi hausti.

Sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir lýsti ánægju sinni með að Sólveig Halla hefði verið ráðin til að leiða starf Kirkjumiðstöðvarinnar.

Guðný Gestsdóttir, Grenjaðarstaðasókn minnti á að þegar talað væri um Kirkjumiðstöðina væri notað Kirkjumiðstöðin við Vestmannsvatn. Einnig lýsti hún ánægju sinni með ráðningu Sólveigar Höllu.

Jóhann Ólafsson, Vallasókn taldi að hægt væri að bjóða upp á samverur fyrir sóknarnefndir í Kirkjumiðstöðinni.

 

8. ÆSKEY

Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni gerði grein fyrir ársskýrslu ÆSKEY. Líkt og undanfarin ár hefur starfið verið þróttmikið. Boðið var upp á Farskóla leiðtogaefna fyrir unglinga, TTT-mót, Hæna – hæfileikakeppni og fleira. Hann lagði fram eftirfarandi tillögu:

Sóknarprestum verði falið að tilnefna fulltrúa unga fólksins fyrir Kirkjuþing unga fólksins í hinu nýja Eyjafjarðar- og Þingeyjar­prófastsdæmi sem haldið verði í Kirkjumiðstöðinni við Vestmannsvatn síðustu helgina í maí n.k.

Þeim fundi verði falið að vinna að þeim breytingatillögum sem liggja fyrir héraðsfundi á starfsreglum ÆSKEY.

Héraðsprestar, fulltrúi héraðsnefndar og stjórn ÆSKEY sitji þingið.

Þess verði farið á leit við Hólabiskup að hann annist fundarstjórn.

Héraðsnefnd fjármagni fundinn og ferðir ungmennanna til fundarins.

Undir tillöguna ritaði hann sjálfur. Tillagan borin upp og samþykkt samhljóða.

 

9. Starfsskýrslur

a) Leikmannastefna

Hafliði Jósteinsson sagði frá Leikmannastefnu sem haldin var í safnaðarheimili Kópavogs­kirkju laugardaginn 10. apríl 2010. Hann áréttaði að stefnan ætti rétt á sér og að hana þyrfti að efla.

b) Héraðsprestur

Sr. Guðmundur Guðmundsson gerði grein fyrir skýrslu héraðsprests og starfi fræðslu­nefndar. Hann vakti athygli á nýjum vef kirkjunnar í héraði: kirkjan.is/naust.

c) Heimsóknarþjónusta

Ekki var gerð sérstök grein fyrir starfi heimsóknarþjónustunnar en bent á skýrslu Ástu Garðarsdóttur, umsjónarmanns í fundargögnum.

d) Trúarleg þjónusta á FSA

Sr. Guðrún Eggertsdóttir bar fundinum kveðju Valgerðar Valgarðsdóttur, djákna og hvatti fundarmenn til að láta vita af fólki sem dveldi á sjúkrahúsinu og væri langt að komið. Einnig minnti hún á kapellu sjúkrahússins sem alltaf væri opin. Að öðru leiti benti hún fundarmönnum á skýrslu starfsseminnar í fundargögnum.

e) Fræðslunefnd

Bent var á skýrslu fræðslunefndar í fundargögnum.

f) Hjálparstarf kirkjunnar

Bent var á skýrslu Hjálparstarfsins í fundargögnum.

 

10 Starfsskýrslur sókna

Hafdís Jónsdóttir, Möðruvallasókn í Laugarlandsprestakalli vísaði til skýrslu sóknar­nefndarinnar á bls. 51 í fundargögnum og gerði grein fyrir málum eins og þau snéru að ábúendum á Möðruvöllum.

 

11. Kirkjuþing 2011

Þessum lið í dagskrá fundarins var sleppt.

 

12. Ákvörðun um greiðslu til fulltrúa í Héraðsnefnd

Prófastur bar upp við fundinn að greiðslur til fulltrúanna yrðu í samræmi við ákvörðun þóknunarnefndar Þjóðkirkjunnar. Tillagan var samþykkt. Pétur Björgvin Þorsteinsson sat hjá og óskaði eftir að fá að gera grein fyrir atkvæði sínu, en hann taldi að héraðsfundur ætti að móta samræmda stefnu um þóknun fyrir störf í nefndum prófastsdæmisins.

 

13. Kosningar

a)       Einn fulltrúi presta og einn fulltrúi leikmanna í héraðsnefnd og varamenn,

tveggja ára.

Sigríður Munda Jónsdóttir aðalmaður

Sighvatur Karlsson varamaður

Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir aðalmaður

Hafliði Jósteinsson varamaður

b)             Tveir skoðunarmenn reikninga héraðssjóðs og varamenn til tveggja ára.

Gestur Jónsson og Björn Ingimarsson aðalmenn

Kolbrún Pálsdóttir og Kolbrún Gunnarsdóttir varamenn

c)              Fjórir fulltrúar á Leikmannastefnu og varamenn þeirra til fjögurra ára.

Aðalmenn:

Jóhanna Sigríður Garðarsdóttir

Jón Oddgeir Guðmundsson

Hafliði Jósteinsson

Bjarney Súsanna Hermundardóttir

Varamenn:

Guðlaug Anna Ívarsdóttir

Guðný Gestsdóttir

Hildur Jóhannsdóttir

Óli Þór Ástvaldsson

d)             Einn fulltrúi í fulltrúaráð Hjálparstarfs kirkjunnar og varamaður hans til tveggja ára.

Guðmundur Guðmundsson aðalmaður

Guðrún Guðmundsdóttir varamaður

e)              Þrír fulltrúar í fræðslunefnd prófastsdæmisins og þrír varamenn, til tveggja ára.

Aðalmenn:

Gunnlaugur Garðarsson

Sólveig Halla Kristjánsdóttir

Halla Loftsdóttir

Varamenn:

Hulda Hrönn M. Helgadóttir

Hlíf Guðmundsdóttir

Hafdís Jónsdóttir

f)              Þrír fulltrúar í kærleiksþjónustunefnd prófastsdæmisins og þrír varamenn, til tveggja ára.

Pétur Björgvin Þorsteinsson lagði fram tillögu um að vísa málefnum kærleiksþjónustu-nefndar til héraðsnefndar sem móti tillögur um markmið nefndarinnar og leggi fyrir næsta héraðsfund og þá verði kosið í nefndina. Tillagan var samþykkt.

14. Önnur mál

Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson þakkaði hlýjar og góðar móttökur í vísitasíum sínum í Dalvíkurprestakalli og Laufásprestakalli og bar fundinum kveðjur konu sinnar, frú Margrétar Sigtryggsdóttur. Einnig áréttaði hann við fundarmenn að þrýsta á alþingismenn um að standa vörð um starf safnaðanna í landinu.

Prófastur lagði fyrir fundinn að á árinu 2011 fengi Kirkjumiðstöðin við Vestmannsvatn allt að einni milljón kr. úr héraðssjóði. Tillagan borin upp og samþykkt.

Stefán Magnússon, Möðruvallaklausturssókn gerði að tillögu sinni að héraðsfundur hæfist kl. 11:00 að lokinni helgistund sem hæfist hálf tíma fyrr. Hann beindi því til prófasts að auka samstarf við formenn sóknarnefnda og kalla þá alla til sameiginlegs fundar.

Pétur Björgvin Þorsteinsson minnti á fund um þjóðgildin á mánudagskvöld í Glerárkirkju.

Anna María Snorradóttir, Svalbarðssókn, Laufásprestakalli óskaði eftir því að á næsta héraðsfundi yrðu fundarmenn með nafnspjöld.

Þorgrímur Daníelsson, fundarstjóri þakkaði fundarmönnum fyrir góðan fund.

Prófastur þakkaði fundarmönnum fyrir fundinn og góðar og uppbyggjandi samræður og óskaði þeim góðrar heimkomu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:45.

Sigríður Munda Jónsdóttir og Dagur Jóhannsson, fundarritarar

 

Þessi sátu fundinn:

 

Jón A. Baldvinsson, Hólum

Sigurður Ægisson, Siglufirði

Sigurður Hlöðvesson, Siglufirði

Gylfi Jónsson, Möðruvöllum

Ólöf S. Þórsdóttir, Bakka

Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir, Akureyrarsókn

Stefán Magnússon, Möðruvallaklausturssókn

Birgir Styrmisson, Akureyrarsókn

Jón Oddgeir Guðmundsson, Akureyrarsókn

Bryndís Baldursdóttir, Akureyrarsókn

Jóhanna Sigríður Garðarsdóttir, Akureyrarsókn

Hulda Hrönn M. Helgadóttir, Hríseyjarprestakall

Guðrún J. Þorbjarnardóttir, Hríseyjarsókn

Elín Lárusdóttir, Stærra-Árskógssókn

Kristrún J. Sigurðardóttir, Stærra-Árskógssókn

Guðmundur Guðmundsson, Laugalandsprestakall

Pétur Björgvin Þorsteinsson, Lögmannshlíðarsókn

Ásta Garðarsdóttir, Vinaheimsóknir kirkjunnar í Eyjafjarðarprófastsdæmi

Sólveig Lilja Sigurðardóttir, Tjarnarsókn, Svarfaðardal

Sigríður Hafstað, Tjarnarsókn, Svarfaðardal

Helga Kristinsdóttir, Húsavíkursókn

Hafliði Jósteinsson, Húsavíkursókn

Jóhann Ólafsson, Vallasókn

Guðmundur Gunnlaugsson, Urðasókn

Björn Gunnar Jónsson, Húsavíkursókn

Dagur Jóhannsson, Nessókn, Aðaldal

Hildur Jóhannsdóttir, Snartarstaðasókn

Skúli Þ. Jónsson, Snartarstaðasókn

Halla Soffía Karlsdóttir, Urðasókn

Áskell Jónasson, Þverársókn

Guðjón Gamalíelsson, Þórshafnarsókn

Soffía Björgvinsdóttir, Svalbarðssókn, Þistilfirði

Sigrún Björnsdóttir, Raufarhafnarsókn

Gunnur Sigþórsdóttir, Raufarhafnarsókn

Kolbrún Pálsdóttir, Upsasókn, Dalvík

Kolbrún Gunnarsdóttir, Upsasókn, Dalvík

Magnús G. Gunnarsson, Dalvíkurprestakall

Hafdís Jóhannsdóttir, Möðruvallasókn

Jóhanna Eydís Þórarinsdóttir, Einarsstaðasókn

Þóra Fríður Björnsdóttir, Einarsstaðasókn

Guðlaug Anna Ívarsdóttir, Skinnastaðasókna

Ragnhildur Jónsdóttir, Garðssókn

Sólveig Halla Kristjánsdóttir, Húsavíkur- og Grenjaðarstaðarsóknir

Guðný Gestsdóttir, Grenjaðarstaðarsókn

Hildur Eir Bolladóttir, Akureyrarkirkja

Guðrún Eggertsdóttir, Sjúkrahúsið á Akureyri

Gunnlaugur Garðarsson, Glerárprestakall

Guðmundur Sigurðsson, Grenjaðarstaðarprestakall

Halla L. Loftsdóttir, Nessókn Aðaldal

Guðrún Guðmundsdóttir, Svalbarðssókn, Laufásprestakall

Anna María Snorradóttir, Svalbarðssókn, Laufásprestakall

Benjamín Baldursson, Munkaþverársókn

Hjörtur Haraldsson, Grundarsókn Eyjafjarðarsveit

Óli Þór Ástvaldsson, Kaupangssókn

Jón Jónsson, Möðruvallasókn

Björg G. Sigurbjörnsdóttir, Laufás- og Grenivíkursókn

Borghildur Ásta Ísaksdóttir, Laufás- og Grenivíkursókn

Kristín María Hreinsdóttir, Ljósavatnssókn

Sigurlína Hrönn Halldórsdóttir, Hálssókn

Hlíf Guðmundsdóttir, Hálssókn

Svanhildur Kristjánsdóttir, Þóroddsstaðarsókn

Margrét Sólveig Snorradóttir, Ljósavatnssókn

Sigurður Pálsson, Lundarbrekkusókn

Sighvatur Karlsson, Húsavíkursókn

Þorgrímur Daníelsson, Grenjaðarstað

Jón Ármann Gíslason, Skinnastað

Sigríður Munda Jónsdóttir, Ólafsfirði

Bjarney Súsanna Hermundardóttir, Þórshafnarsókn

 

Guðmundur Guðmundsson, 16/1 2012 kl. 14.41

     

    Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS