Lokasamkoma bænavikunnar
Aþjóðlega samkirkjulega bænavikan um einingu kristinna manna endaði með samkomu í Glerárkirkju á Pálsmessu 25. janúar. Gospelkór Akureyrar leiddi sönginn og lesnar voru játning, Ritningarlestrar og bænir, sem undirbúningsnefndin í Póllandi hafði lagt til. Snorri Óskarsson forstöðumaður Hvítasunnusafnaðarins á Akureyri prédikaði en sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir prestur í Glerárkirkju leiddi söfnuðinn. Auk gospelkórsins söng lofgjörðarhópur úr Hvítasunnukirkjunni. Góða mæting var og stöldruðu margir við og fengu sér kaffi og spjölluðu eftir guðsþjónustuna.
Hér má skoða nokkrar myndir frá sameiginlegu samkomunni.
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, prestur í Glerárkirkju, leiddi samkirkjulegu samkomuna
Gospelkór Akureyrar leiddi sönginn
Lesarar frá söfnuðunum á Akureyri lásu Ritningarlestra og fluttu bænir
Snorri Óskarsson, forstöðumaður Hvítasunnusafnaðarins, prédikaði.
Lofgjörðarhópur frá Hvítasunnukirkjunni söng nokkur lög fyrir söfnuðinn
Að lokum voru blessunarorð Drottins flutt og sungin. Biðjum við þess að bænavikan verði
til að efla samtöðu kristinna manna til að ganga saman til þjónustu en um það bað söfnuðurinn að lokum.
Myndirnar tók Katrín Stefanía Pálsdóttir
Guðmundur Guðmundsson, 27/1 2012 kl. 16.26