Fræðsla
Fræðsla haustið 2012
Fræðslukvöldin í Glerárkirkju í október og nóvember bera að þessu sinni yfirskriftina “Hvað er kristin trú?” og er fræðslan byggð á samnefndri bók eftir Halvor Moxnes sem kom út í þýðingu sr. Hreins Hákonarsonar hjá Skálholtsútgáfunni á síðasta ári. Fræðslukvöldin verða á miðvikudagskvöldum kl. 20:00 – 22:00. Að loknu inngangserindi málshefjanda er kaffihlé og síðan taka við umræður og eru þátttakendur hvattir til virkrar þátttöku, þó vissulega sé líka velkomið að sitja hljóður og hlusta.
Dagskrá fræðslukvöldana er aðgengileg hér.
Áður hefur verið boðið upp á:
Ást fyrir lífið 11. og 18. janúar í Glerárkirkju kl. 20
* Umsjón hefur Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju.
* Námskeiðið byggir á samnefndri bók sem kom út 2010 og Pétur þýddi.
* Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu en bókin er seld á kr. 2000.
* Nánari upplýsingar í síma 464 8800 og á vef Glerárkirkju.
Að ná áttum og sáttum – námskeið til styrkingar þeim sem hafa gengið í gegnum skilnað – kynningarfundur í Glerárkirkju 10. janúar kl. 20
* Umsjón hafa sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, prestur í Glerárkirkju og sr. Guðrún Eggertsdóttir, sjúkrahúsprestur.
* Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
* Nánari upplýsingar í síma 464 8800 og á vef Glerárkirkju.
Samræðukvöld – Vegur trúarinnar á miðvikudagskvöldum kl. 20 í febrúar og mars.
* Samræðukvöldin hefjast 8. febrúar
* Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.
* Upphafserindi og viðtal við gest um efni kvöldsins og almennar umræður.
* Bæklingur til útprentunar á Pdf-form
* Nánari upplýsingar
Centering Prayer – kristin íhugun í kapellu FSA á miðvikudögum kl. 17
* Fyrirkomulagið er þannig að aðferðin er kennd fyrir íhugunarstundirnar.
* Stundirnar eru vikulega
* Öðru hvoru er innleiðsla fyir þá sem vilja taka þátt í íhuguninni í kapellunni.
Sr. Guðrún Eggertsdóttir, sjúkrahúsprestur, er leiðbeinandi við fræðsluna og íhugunina
Auglýsing á Pdf-formi til útprentunar, Kynning á Pdf-formi til útprentunar
Kyrrðardagar í Leikhúsinu á Möðruvöllum verður laugardaginn 17. mars
* Umsjón hafa sr. Guðrún Eggertsdóttir og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir.
* Íhugun – kyrrð – útivera.
* Kyrrðardagurinn er þáttakendum að kosnaðarlausu.
* Skráning og frekari upplýsingar á srslara@ismennt.is eða í síma 462 1963.
