Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Kristin íhugun

Hefur þú áhuga á að kynnast kristinni íhugun, eða dýpka þekkingu þína og skilning á henni?

Miðvikudaginn 23. september kl. 16.30 mun sr. Guðrún Eggertsdóttir kynna sérstaka íhugunar- og bæna aðferð sem kölluð er Centering prayer í kapellu Fjórðungssjúkrahússin. Öðru hvoru eru slíkar innleiðslur en íhugunarhópur kemur saman kl. 17 alla miðvikudaga í kapellunni til íhugunar en hvatt er til að menn byrji á slíkri stund fyrst.

Centering Prayer byggir á aldagamalli hefð sem endurvakin var upp úr 1970 og hefur verið að ná sífellt meiri útbreiðslu um heiminn síðan þá. Bænin byggir á orðlausri nálgun við Guð, þar sem biðjandinn tekur ákvörðun um að leitast við að opna hjarta sitt fyrir nærveru Guðs og verkan í lífi sínu. Centering prayer er ljúf nálgun við Guð þar sem orð eru óþörf. Við kyrrum hugann, opnum hug okkar og hjörtu fyrir Guði sem umbreytir okkur í þögninni. Við hlustum eftir og tökum á móti nærveru og kærleiksríkri verkan Guðs í lífi okkar. Þetta er eitt einfaldasta form íhugunarbænar sem um getur og geta allir lært það og stundað.

Frekari upplýsinar má fá hjá sr. Guðrúnu Eggertsdóttur, s. 860-0545 eða gudrune@fsa.is

Alla miðvikudaga er boðið upp á bænasamveru í kapellu FSA kl. 17.00-18.00

Auglýsing á Pdf-formi til útprentunar

Kynning á Pdf-formi til útprentunar

     

    Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS