Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Alfa 1

Næsta námskeið hefst miðvikudaginn 8. september kl. 20 í félagsheimili KFUM og KFUK í Sunnuhlíð
Kynningin verður í féalagsheimili KFUM og KFUK í Sunnhlíð. Og verður með svipuðu móti og námskeiðin svo að fólk geti áttað sig á og fengið tilfinningu fyrir því sem vænta má. Það eru allir hvattir til að koma og kynna sér Alfa-námskeiðið þessa kvöldstund.

Hvað er Alfa?
Alfa er tíu vikna námskeið, einu sinni í viku, þar sem fjallað er um tilgang lífsins út frá kristnu sjónarhorni. Farið er í grundvallaratriði kristinnar trúar á einfaldan og þægilegan hátt. Auk þess fara þátttakendur helgi eða einn dag saman út úr bænum.
Tekist er á við mikilvægustu spurningar lífsins. Hvorki eru gerðar kröfur um trúarafstöðu né heimalærdóm eða aðrar skuldbindingar gerðar til þátttakenda.

Hver samvera hefst með léttum málsverði kl. 18:00. Síðan er kennt í um 45 mínútur og eftir kaffihlé eru umræður í hópum. Að lokum er helgistund. Námskeiðinu lýkur kl. 20:30.
Á Alfa námskeiðinu gefst fólki tækifæri til að spyrja spurninga og taka þátt í skapandi umræðu um lífið og tilveruna.

Alfa námskeiðið hófst í Englandi fyrir u.þ.b. 20 árum. Námskeiðið er nú haldið í um 130 löndum í flestum kirkjudeildum. Áætlað er að yfir 13 milljónir manna hafi sótt námskeiðið.

Alfa námskeiðið á Akureyri
Fyrsta Alfa námskeiðið í Glerárkirkju var haldið 2001 en þau hafa einnig verið haldin í Hvítasunnukirkjunni og Hjálpræðishernum og KFUM og KFUK. Það hefur notið mikilla vinsælda. Góður hópur fólks heldur utan um námskeiðið, en sr. Guðmundur Guðmundsson er stjórnandi og fræðari, auk hans eru Dögg Harðardóttir, Fjalar Freyr Einarsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir og Brynjar Gylfason umsjónarfólk. Auk þeirra er gert ráð fyrir gestafyrirlesara.

Fyrir hverja er Alfa?
Alfa er öllum opið
- sem leita vilja svara við spurningum um tilgang lífsins.
- sem vilja kynna sér grundvallaratriði kristinnar trúar.
- sem langar að velta fyrir sér hvaða gildi móta líf okkar og samfélag.
- sem trúa.
- sem efast
- sem ekki trúa.

Hvað kostar að fara á Alfa námskeið?
Greitt er fyrir bókina Spurningar lífsins og vinnubók. Þá greiða menn kostnaðarverð fyrir matinn. Alfa helgin er borguð sér. Verð verður ljóst á kynningarfundi en verður stillt í hóf eins og frekast er kostur.

Hvenær er næsta Alfa námskeið?
Næsta námskeið hefst með kynningu miðvikudaginn 8. september í félagsheimili KFUM og KFUK í Sunnhlíð kl. 20.00.

Auglýsing á Pdf-formi og dreifibréf á Pdf-formi.

Ítarlega dagskrá fyrir námskeiðið á Pdf-formi Kynningarbæklingur Alfa 2010

Hvernig skrái ég mig á Alfa námskeið?
Skráning er í síma 462 6702 hjá Guðmundi í Kirkjubæ við Ráðhústorg kl. 10-12 alla virka daga eða í netfang hans: gudmundur.gudmundsson@kirkjan.is

Kynntu þér alfa námskeiðið á vefnum / www.alfa.is

 

Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS