Alfa framhald – Tíu boðorð
Á vormisseri 2010 verður boðið upp á Alfa framhaldsnámskeið. Námskeiðið fer fram með svipuðu sniði og Alfa með stuttu erindi, umræðu um efnið og spurningar sem þátttakendur eru að glíma við, samverunum lýkur með helgistund.
Tíu boðorð á 21. öld. Um kristna siðfræði.
Kynning: Menning okkar er að breytast. Margvísleg sjónarmið eru lögð til grundvallar siðferði samtímans. Lífskoðanir eru margar og fjölbreyttar, „margir sannleikar” hlið við hlið. Við þessar aðstæður er siðfræðin knýjandi og ögrandi viðfangsefni.
Tíu boðorð Guðs eru ævaforn. Þau eru rótgróin í okkar vestrænu menningu. Kristin trú tók þau í arf frá gyðingdómi. En þau eiga sér líka samsvörun í mannlegri samvisku. Eru boðorðin ófrávíkjanleg boð Guðs og leiðbeining í lífinu?
Markmið námskeiðsins „Tíu boðorð á 21. öld” er að þátttakendur þjálfist í að lesa Guðs orð í bæn og íhugun. Á ærlegan hátt verður siðferðið skoðað með boðorðin gömlu að leiðarljósi, tekist á við Guð og menn í leit að hamingju, blessun og gæfu í lífinu.
Dagskrá á Pdf-formi: Tíu boðorð 2010.
1. lestur: miðvikudaginn 8. september
2. Mós. 20:1-17
Inngangur: Tíu boðorð
Boðorðin tíu snerta öll svið lífsins, allt frá ytri hlutum inn að innsta kjarna lífsins. Eru þetta algildar reglur eða ákveðum við gildi þeirra. lífsreglur okkar? Hvernig lýsa boðorðin kærleikanum sem Kristur boðaði og uppfyllti?
2. lestur: miðvikudaginn 15. september
Lúk. 12:15-21. Matt. 6:25-26
Ágirnd og nægjusemi
„Þú skalt ekki girnast.” – Girnd er gamaldags orð en löngun í eigur annarra þekkja allir. Hvaða afleiðingar hafa óheftar langanir í auð, völd og frægð? Hvernig hjálpar einfaldur lífsstíll okkur og nægjusemi?
3. lestur: miðvikudaginn 22. september
1. Mós. 3:8-13. Jóh. 18:28-38
Sannleikur og lygi
„Þú skalt ekki bera ljúgvitni.” – Allsstaðar eru orð en eru þau sönn? Hvaða afleiðingar hefur lygi í samfélagi manna? Guð er sannleikur og samkvæmur sér. Hvernig birtir Jesús sannleika Guðs á einstæðan hátt?
4. lestur: miðvikudaginn 29. september
Matt. 6:19-21. Lúk. 19:1-10.
Þjófnaður og örlæti
„Þú skalt ekki stela.” – Hvað er þjófnaður? Stjórnar dýrkun á hlutum og auðvaldi samfélaginu? Hvernig á boðun Jesú um fátækt og örlæti við í upphafi 21. aldar?
5. lestur: miðvikudaginn 6. október
Matt. 5:29-30. 1. Kor. 6:12-20.
Trúfesti og svik
„Þú skalt ekki drýgja hór.” – Kynlíf er rætt opinskátt í dag en hefur það leitt til tryggari hjónabanda? Er trúfesti dyggð? Hvað er átt við með því að líkami okkar sé musteri Guðs?
6. lestur: miðvikudaginn 13. október
1. Mós 4:5-10. Matt 5:21-26
Reiði og sátt
„Þú skalt ekki morð fremja.” – Allir geta tekið undir það. Dauðinn er fjarlægur í veruleikanum en nálægur í fjölmiðlum og tölvuleikjum. Hvaða afleiðingar hefur kenning Jesú um að allir menn séu bræður og systur?
7. lestur: miðvikudaginn 20. október
Ef. 5:21-6:4
Fjölskyldubönd og einangrun
„Heiðra föður þinn og móður þína.” – Biblían hefur að geyma mjög raunsæjar fjölskyldusögur. Hvaða sess hefur fjölskyldan í Guðs orði?
8. lestur: miðvikudaginn 27. október
1. Mós. 1:31-2:4. Sálm. 23.
Heilög hvíld og mannlegt strit
„Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.”- Er annríki orðið tákn um mikilvægi okkar? Hvað á Biblían við með hvíld og til hvers er hvíldin?
9. lestur: miðvikudaginn 3. nóvember
Matt. 1:18-25. Fil. 2:6-11
Heilagur Guð og afhelgun
„Þú skalt ekki leggja nafn Drottins, Guðs þíns, við hégóma.” – Hvaða þýðingu hefur nafn okkar og virðing fyrir því? Hvað heitir Guð? Hvernig kenndi Jesús okkur að þekkja Guð og tala við hann?
10. lestur: miðvikudaginn 10. nóvember
Sálm. 115:3-8. Post. 17:16-34
Guð og goðin
„Þú skalt engar líkneskjur gjöra þér.” – Hvað er Guð og hvað er Guð ekki? Er því auðsvarað á okkar tímum? Hvers vegna hneigjumst við til hjáguða og er nokkuð að því að eiga sér átrúnaðargoð?
11. lestur: miðvikudaginn 17. nóvember
2. Mós. 20:1-3. Jóh. 19:16-30
Guð einn sem var og er
„Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig.” – Hinn sanni og lifandi Guð er kjarni boðorðanna. Hver er hann? Hvernig þjónum við Guði sem frelsar og dvelur hjá okkur?