Alfanámskeið – Líf á nýjum nótum
*
Námskeiðið fjallar um bréf gleðinnar í Nýjatestamentinum, Filippíbréfið. Það hefur að geyma leiðbeiningar um trúarlíf, tilgang og lífsfyllingu.
* Miðvikudaginn 26. janúar kl. 18.00 verður námskeiðið kynnt í félagsheimili KFUM og KFUK í Sunnuhlíð.
* Námskeiðið nær yfir 10 miðvikudaga og fræðslan er í höndum sr. Guðmundar Guðmundssonar, héraðsprests og Fjalars Freys Einarssonar, kennara.
* Námskeiðið er samstarfsverkefni Eyjafjarðarprófastsdæmis og KFUM og KFUK og er öllum
opið.
* Hvert kvöld byrjar með léttri máltíð. Námskeiðið kostar 5.000 kr.
* Frekari upplýsingar má fá hjá Guðmundi í síma 462-6702 alla virka daga kl. 10-12.
Auglýsing á Pdf-formi til útprentunar
Í Alfa-hópnum sem safnast saman á miðvikudagskvöldum kl. 18:00 í félagsheimili KFUM og KFUK á Akureyri verður fjallað um nýungar nær tvö þúsund ára gamalla trúarbragða. Í Filippíbréfi Páls postula sem hann skrifaði í fangelsi er að finna leiðbeiningar fyrir safnaðarfólk um trúarlíf, gleði þess og dýpt. Bréfið verður lagt til grundvallar ásamt bók eftir Nicky Gumbel Líf á nýjum nótum sem heldur því fram að kristin trú geri lífið þess virði að því sé lifað. Hann er höfundurinn að alfa-námskeiðum sem hafa verið vinsæl víða hér á landi og erlendis á síðustu árum. Fyrsta kvöldið 26. febrúar n. k. er opið kynningarkvöld og hefst kl. 18 með léttum veitingum.
Dagskrá vorið 2011:
Dagskrá á Pdf-formi til útprentunar
Kynning: miðvikudaginn 26 janúar
Filippíbréfið 1:1-2
Inngangur
Kynning á Filippíbréfinu, einu af fangelsisbréfum Páls postula. Það hefur verið kallað bréf gleðinnar. Leiðandi spurning um lífsgæðin: “Vísindamenn munu geta lengt líf manna í framtíðinni en verður það líf þess virði að lifa því?”
1. kafli: miðvikudaginn 2. febrúar
Filippíbréfið 1:3-11
Nýtt hjarta
Fagnaðarerindið kemur með nýung, vekur traust til Guðs að hann vinni sitt góða verk í mönnunum, skapi samfélag kærleikans sem einkennist af umhyggju fyrir vexti og viðgangi safnaðarins. Á hvað treystum við þegar á reynir?
2. kafli: miðvikudaginn 9. febrúar
Filippíbréfið 1:12-30
Nýr tilgangur
Gleðifréttirnar sem Páll flytur eru að lífið hefur öðlast nýjan tilgang og viðmið sem hann staðfestir með vitnisburði sínum í fangelsinu þar sem hann á yfir höfði sér dauðadóm. Hann segir: “Lífið er mér Kristur og dauðinn ávinningur”. Hver er tilgangur lífsins?
3. kafli: miðvikudaginn 16. febrúar
Filippíbréfið 2:1-11
Ný afstaða
Jesús Kristur kennir rétta afstöðu til meðbræðra og systra með lífi sínu. Rétt og röng afstaða kemur í ljós þegar við erum samhuga Kristi og fylgjum fordæmi hans. Hvernig getur hamingjan verið fólgin í því að fylgja krossferli Krists?
4. kafli: miðvikudaginn 23. febrúar
Filippíbréfið 2:12-18
Ný ábyrgð
Kristin trú kallar til ábyrgðar fyrir eilífri velferð okkar en kennir um leið að Guð vinnur hjálpræðisverk sitt í mönnum. Ábyrgðin snýr fyrst að okkur sjálfum svo að þjóðfélaginu og kirkjunni. Hvað er átt við með því að “ábyrgð fylgir frelsi?”
5. kafli: miðvikudaginn 2. mars
Filippíbréfið 2:19-30
Ný vinátta
Í Filippíbréfinu er dæmi um innilega vináttu Páls og samverkamanna hans. Vináttan er einn mikilvægasti þáttur kristinnar trúar. Vináttan einkennist af kærleika, sameiginlegum áhuga og hugsjónunum, trúnaði og fyrirgefningu. Hvers vegna er vinátta mikilvæg í kristnu samfélagi?
6. kafli: miðvikudaginn 9. mars
Filippíbréfið 3:1-9
Nýtt traust
Vanmáttarkennd og sjálfsöryggi togast á í flestum en til þess að öðlast andlegt öryggi og jafnvægi þurfum við að hafna fölsku öryggi og öðlast ekta öryggi. Það byggist á trausti til Guðs. Hvernig öðlast maður þetta traust – að hvíla í Guði?
7. kafli: miðvikudaginn 16. mars
Filippíbréfið 3:10-23
Nýr metnaður
Það er eðlilegt að vera metnaðargjarn og njóta þess sem manni er gefið. Kristinn maður leitar himneskra markmiða þar sem hann öðlast nýja viðmiðun með Kristi. Hvort snýst líf okkar um vegsemd Guðs eða eigingjarnan metnað?
8. kafli: miðvikudaginn 23. mars
Filippíbréfið 4:1-9
Nýr auður
Nýr auður kristninnar er mannauður og andleg lífsgæði. Það er í sambandi við Guð, hugsanir sínar og tilfinningar, trúsystkini og samfélag að þessi auður kemur í ljós. Hvernig stendur maður stöðugur í vexti og viðgangi í andlegu tilliti?
9. kafli: miðvikudaginn 30. mars
Filippíbréfið 4:10-23
Nýtt örlæti
Örlæti Guðs tekur öllu fram þar sem hann gefur sjálfan sig í kærleika. Okkar andsvar og örlæti á fjármuni og tíma okkar er örlítið þakklæti fyrir það sem Guð hefur gefið. Hvernig er að lifa í þakklæti og örlæti?