Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Fræðslukvöld

í Glerárkirkju á mánudögum kl. 20 -22

í október og nóvember 2010

- Kristin trú og menning -

Allir velkomnir, þátttaka ókeypis.
Að lokinni erindi kvöldsins er boðið upp á umræður yfir kaffibolla.
Dagskrá hvers kvölds lýkur með helgistund.

2. þáttur

Bókmenntir og kristin trú
Fjögur umræðukvöld í safnaðarsal Glerárkirkju
Öll miðvikudagskvöld í nóvember kl. 20 til 22
Bókmenntakvöldin eru samstarfsverkefni Eyjajarðarprófastsdæmis og Glerárkirkju

Kynningarbæklingur á Pdf-formi


Miðvikudaginn 4. nóvember

Kristin trú og bókmenntir
Sr. Guðmundur Guðmundsson og Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni flytja tvö inngangserindi að bókmenntakvöldunum. Komið er inn á tengsl guðfræði og bókmennta, biblíuleg minni og trúarleg stef í bókmenntum

Miðvikudaginn 11. nóvember

Uxinn og Hirðirinn
Sr. Gunnlaugur Garðarsson fjallar um ljóðsögu frá Japan sem nefnist ,,Uxinn og Hirðirinn” sem er að finna í ,,Nafnlausu bókinni” (raðtákn á Amtsbókasafninu: 808.81 Naf)

Miðvikudaginn 18. Nóvember

Sjálfstætt fólk
Sr. Arnaldur Bárðarson fjallar um kristna trú og íslenska menningu út frá sögu Halldórs Kiljan Laxness ,,Sjálfsstætt fólk”. (raðtákn á Amtsbókasafninu, t.d.: 813 Hal

Miðvikudaginn 25. Nóvember

Himnaríki og Helvíti
Sr. Jóna Lovísa Jónsdóttir fjallar um kristna trú og nútímamenningu í tengslum við bók Jóns Kalmans Stefánssonar ,,Himnaríki og Helvíti”. (raðtákn á Amtsbókasafninu, S Jón Him)

___________________________________________________________________
1. þáttur

Bíódagar

Kvikmyndasýningarnar hefjast kl. 19:00 í safnaðarsal Glerárkirkju með innlýsingu en fyrsta kvöldið er erindi um trúarleg stef í kvikmyndum. Eftir myndasýningarnar eru umræður yfir kaffibolla.

30. september. Trúarleg stef í kvikmyndum.
Sr. Árni Svanur Daníelsson verður með erindi en hann er meðlimur í Deus ex chinema hópnum. Hann mun gera grein fyrir starfi hópsins sem hefur verið að greina trúarleg stef í kvikmyndum og sýna dæmi máli sínu til stuðnings.

7. október. Fjórar mínútur eftir Chris Kraus.
„Örlög tveggja kvenna fléttast saman í sögu sem vekur upp spurningar um tilgang lífsins, frelsi, köllun og hæfileika. Fortíð beggja geymir leyndarmál sem hafa mótað þær og fjötrað. Konurnar tengjast í tónlist sem verður vettvangur átaka og farvegur endurlausnar. Óbeislaður sköpunarkraftur og mannleg reisn birtist með áhrifamiklum hætti í eftirminnilegu lokaatriði þar sem náðargjöf fær að njóta sín til fulls. Kraftaverk endurlausnar og sigurs gerist á fjórum mínútum.” (Umsögn dómnefndar Þjóðkirkjunnar um myndina).

Hlusta á örviðtal um myndina

14. október. Listin að gráta í kór eftir Peter Schønau Fog.
“Grátur og hlátur mætast í vandaðri kvikmynd sem fjallar um erfið málefni og vekur spurningar um ábyrgð foreldra og samfélags. Ungur drengur segir sögu fjölskyldu sinnar þar sem bernskuheimilið reynist vera vettvangur ofbeldis og misnotkunar.

Myndin fjallar á nærfærinn hátt um efni sem oft liggur i þagnargildi og tekur á því með virðingu, skilningi og samúð. Listin að gráta í kór vekur til umhugsunar um blæbrigði lífsins, hreyfir við áhorfandanum og kallar á umræður og viðbrögð.” (Umsögn dómnefndar Þjóðkirkjunnar um myndina).

Hlusta á örviðtal um myndina

21. október. Snjór eftir Aida Begic.
“Skuggi stríðs vofir yfir litlu þorpi. Lífsbaráttan er erfið og það reynir á samtakamátt eftirlifenda. Myndin minnir á mikilvægi samstöðu og gildi þess að þekkja uppruna sinn. Trú er sýnd sem fallegur og eðlilegur hluti daglegs lífs. Sýnir, helgisiðir og myndlíkingar tjá guðlega nærveru og miðlar myndin margþættum veruleika á aðgengilegan hátt. Andstæðum mannlegs lífs eru gerð góð skil. Myndin teflir saman stríði og friði, ótta og hugrekki, græðgi og nægjusemi, sorg og gleði. „Snjór“ er uppgjör við nálæga fortíð og afleiðingar stríðsátaka. Myndin er tímalaus saga um von.” (Umsögn dómnefndar Þjóðkirkjunnar um myndina).

————————————————————————–

Sr. Árni Svanur Daníelsson, Verkefnisstjóri á biskupsstofu, vefprestur, fjölmiðlasamskipti

Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju.

sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur í Eyjafjarðarprófastsdæmi.

 

 

 

 

 

Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS