Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Fylgjum kindagötunni fyrst hún er þarna

Bæklingur á pdf-formi!A3 veggspjald á pdf-formi

Kirkjan þarf að vita hvað hún vill

Árið 2002 samþykkti Kirkjuráð að unnið yrði að stefnumótun fyrir Þjóðkirkjunna. Sú vinna fór fram með víðtækri þátttöku fólks víða úr samfélaginu og til varð skjal sem ber heitið ,,Stefna og starfsáherslur Þjóðkirkjunnar 2004-2010.” Eins og verða vill eru deildar meiningar um skjalið og þá sérstaklega hvort og hvernig hafi tekist til á tímabilinu: Skilaði þessi vinna sér út í söfnuðina? Ef já, þá hvernig? Hvað getum við lært af ferlinu, hvað viljum við bæta?

Í gegnum árin hafa líka orðið til nokkrar stefnur og samþykktir sem kirkjunnar fólki er ætlað að vinna eftir. En hver er staðan í raun? Eru plöggin markviss? Eru þau lesin? Hvern skipta þau máli? Getur verið að við fylgjum bara kindagötunni fyrst hún er þarna eða þorum við að horfa til nýrra átta?

Fylgjum kindagötunni … fyrst hún er þarna!

  • Hvert er Þjóðkirkjan að fara?
  • Ræður stefnumótun eða stefnuleysi?

Til þess að ræða þessar spurningar stendur Eyjafjarðarprófastsdæmi fyrir sjö umræðukvöldum í Glerárkirkju á mánudagskvöldum í október og nóvember. Dagskráin hefst á hverju kvöldi kl. 20:00

Hvert stefnir kirkjan?

  • Mánudagskvöldið 11. október kl. 20:00

Framsögumaður er sr. Jón A. Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal. Í erindi sínu gefur biskupinn yfirlit yfir helstu verkefni og áskoranir kirkjunnar frá sínu sjónarhorni og í ljósi stefnumótunar kirkjunnar. Að loknu kaffihléi mun Sunna Dóra Möller guðfræðinemi bregðast við erindinu áður en almennar umræður taka við.

Samantekt á erindi og umræðum

Hlusta á Erindi vígslubiskups sr. Jóns A. Baldvinssonar

Hlusta á viðbrögð Sunnu Dóru Möller

Efstu mál á baugi hjá Lútherska heimssambandinu

  • Mánudagskvöldið 18. okt. kl. 20:00

Magnea Sverrisdóttir djákni í Hallgrímskirkju og fræðslufulltrúi á Biskupsstofu situr í stjórn Lútherska heimssambandsins. Í erindi sínu mun hún gera grein fyrir helstu málum sem þar eru í umræðunni í dag. Pétur Björgvin djákni í Glerárkirkju  bregst við. Fræðast má um málefni Lútherska heimssambandsins á vefsíðu þeirra. Einnig gætu þau sem vilja glöggva sig á málefnum heimsþingsins haft gagn af því að lesa nýjasta Víðförla og skoða efnið frá heimsþinginu á kirkjan.is:

Samantekt á erindi má skoða hér

Hlusta á erindi Magneu Sverrisdóttur, djákna

Husta á viðbrögð Péturs Björgvins Þorsteinssonar, djákna

Kirkjan og fjármálin!

  • Mánudagskvöldið 25. október kl. 20:00

Sigríður Dögg Geirsdóttir er fjármálastjóri Þjóðkirkjunnar og mun hún gefa innlit í starf sitt og þá starfshætti sem Þjóðkirkjan hefur skapað sér í fjármálum. Sr. Þorgrímur Daníelsson, sóknarprestur á Grenjaðarstað mun bregðast við máli hennar, en nánari upplýsingar um fjármálin má einnig nálgast á http://kirkjan.is/stjornsysla/fjarmal.

Samantekt á erindi má skoða hér

Handbók og helgisiðir – til hvers?

  • Mánudagskvöldið 1. nóvember kl. 20:00

Sr. Kristján Valur Ingólfsson verkefnisstjóri á Biskupsstofu hefur um árabil haldið utan um verkefni handbóka- og helgisiðanefnda kirkjunnar og greinir hann frá þeirri vinnu og stöðu mála. Sr. Hildur Eir Bolladóttir, nýr prestur í Akureyrarkirkju mun bregðast við innleggi hans.

Hlusta á erindi Kristjáns Vals Ingólfssonar

Hlusta á viðbrögð Hildar Eir Bolladóttur

Dugar fræðsla og boðun kirkjunnar?

  • Mánudagskvöldið 8. nóvember kl. 20:00

Framsögumaður er sr. Halldór Reynisson sem stýrir fræðslusviði Biskupsstofu en undir hans stjórn hefur fræðslustefna kirkjunnar fengið á sig nýtt form í ljósi stefnumótunarvinnu kirkjunnar. Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir sóknarprestur á Ólafsfirði bregst við.

Samantekt á erindi má skoða hér

Glærur: Dugar fræðsla og boðun kirkjunnar?

Hlusta á erindi Halldórs Reynissonar

Hlusta á viðbrögð Sigríðar Mundu Jónsdóttur

Til hvers erum við að þessu?

  • Mánudagskvöldið 15. nóvember kl. 20:00

Þorgrímur Daníelsson sóknarprestur á Grenjaðarstað lauk nýverið diplómunámi í mannauðsstjórnun en lokaverkefni hans snéri að stefnumiðaðri stjórnun Þjóðkirkjunnar. Leiðbeinandi Þorgríms var Runólfur Smári Steinþórsson. Í fyrirlestri sínum mun sr. Þorgrímur ræða hluti eins og tilvistargrundvöll og tilgang Þjóðkirkjunnar, trúarmarkaðinn á Íslandi, virðistilboð Þjóðkirkjunnar og djúpstæð og grunnstæð áhrif á samfélagið. Guðmundur Guðmundsson héraðsprestur mun bregðast við erindi Þorgríms.

Og hvað nú??

  • Mánudagskvöldið 22. nóvember kl. 20:00

Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi eiga sér tvo leikmenn sem fulltrúa á Kirkjuþingi og einn vígðan þjón. Leikmennirnir eru þeir Stefán Magnússon og Birgir Rafn Styrmisson en fulltrúi vígðra þjóna er sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir sóknarprestur á Möðruvöllum í Hörgárdal. Í sameiningu munu þau gefa áheyrendum innsýn í stöðu mála að nýloknu Kirkjuþingi en því lýkur helgina á undan. Með erindum þeirra lýkur þessari umræðukvöldaröð um stefnu kirkjunnar. Á vef Kirkjuþings eru nánari upplýsingar um þau mál sem þar verða til umræðu.

Dagskráin hvert kvöld hefst með um 45 mínútna löngu framsöguerindi. Að því loknu er sest saman yfir kaffiveitingum (sem seldar eru á vægu verði) og hlýtt á annan ræðumann kvöldsins sem talar í 5 til 15 mínútur og gefur aðra sýn á málefni kvöldsins eða kemur með eigin áherslur. Að lokum er rætt saman í hópi ræðumanna og þátttakenda um efni kvöldsins. Rétt fyrir tíu er boðið í helgistund í kirkjunni sem lýkur ekki seinna en klukkan 22:00.

ALLIR HJARTANLEGA VELKOMNIR

     

    Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS