Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Umræða um þjóðgildin

Umræðukvöld byggð á þjóðgildunum frá Þjóðfundi 2009
Eru þjóðgildin bara orðin tóm? Eiga þau erindi til okkar? Hvaða máli skipta þau? Hvernig tengjast hefðir og siðir í landinu tilvist okkar og framtíðarsýn? Þessar og fleiri spurningar verða ræddar á umræðukvöldum í Glerárkirkju á mánudagsvöldum í febrúar og mars. kl. 20:00 til 22:00. Fulltrúar stjórnmálaflokka og samtaka á Akureyri taka virkan þátt í umræðukvöldunum sem eru á vegum prófastdæmisins. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Til undirbúnings er fólk hvatt til að lesa bók Gunnars Hersveins Þjóðgildin.

7. febrúar kl. 20:00 – Framsögumaður kvöldsins er Gunnar Hersveinn
Helgistund kvöldsins er í umsjón Péturs Björgvins Þorsteinssonar djákna.

14. febrúar kl. 20:00 – Framsögumaður kvöldsins er Baldur Dýrfjörð (Sjálfsstæðisflokkur)
Helgistund kvöldsins er í umsjón sr. Svavars A. Jónssonar sóknarprests í Akureyrarkirkju.

21. febrúar kl. 20:00 – Framsögukona kvöldsins er Hlín Bolladóttir (Listi fólksins)
Helgistund kvöldsins er í umsjón Fjalars Freys Einarssonar, kennara.

28. febrúar kl. 20:00  –  Framsögumaður kvöldsins er Hermann Jón Tómasson (Samfylkingin)
Helgistund kvöldsins er í umsjón Katrínar Ásgrímsdóttur, sem á sæti í Kirkjuráði.

7. mars kl. 20:00 – Framsögumaður kvöldsins er Guðmundur Baldvin Guðmundsson (Framsókn)

Helgistund kvöldsins er í umsjón sr. Örnu Ýrrar Sigurðardóttur, prests í Glerárkirkju.

14. mars kl. 20:00  – Framsögukona kvöldsins er Andrea Hjálmsdóttir (Vinstri-grænir)

Helgistund kvöldsins er í umsjón Bjarna Guðleifssonar, náttúrufræðings.

21. mars kl. 20:00 – Framsögumaður kvöldsins er Sigurður Guðmundsson (Bæjarlistinn)

Helgistund kvöldsins er í umsjón sr. Döllu Þórðardóttur, prófasts í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi.

28. mars kl. 20:00 –  Lokaorð kvöldanna flytur sr. Jón Ármann Gíslason, prófastur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.

Umsjónarmenn kvöldsins eru sr. Guðmundur Guðmundsson héraðsprestur og Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni
Helgistund kvöldsins er í umsjón sr. Gunnlaugs Garðarssonar, sóknarprests í Glerárkirkju.

Upplýsingar í símum 464 8800 og 462 6702
VELDU ÞÉR KVÖLD EÐA KOMDU Á ÖLL: Engin skráning – þátttaka ókeypis – allir velkomnir!

Ítarefni og til undirbúnings umræðunum.

Um umræðukvöldin

Áratugalöng hefð er fyrir því að Eyjafjarðarprófastsdæmi í samstarfi við Glerárkirkju á Akureyri skipuleggi umræðu og fræðslukvöld sem haldin eru í Glerárkirkju yfir vetrarmánuðina. Næsta lota verður í febrúar og mars. Þar á að ræða um þjóðgildin og efna til samtals milli samfélags og kirkju um þau. Bók Gunnars Hersveins Þjóðgildin verður lögð til grundvallar umræðunni og verður hann gestafyrirlesari fyrsta mánudaginn 7. febrúar.

Hvert kvöld hefst klukkan 20:00 í kirkjunni með helgistund. Hluti helgistundarinnar er umfjöllun um ákveðinn biblíutexta sem þykir kallast á við þema kvöldsins. Fyrir hálf níu er farið inn í safnaðarsalinn. Þar er þá komið að erindi viðkomandi fulltrúa stjórnmálaflokks (30 mínútur). Klukkan níu er boðið upp á kaffi og meðlæti og síðan sest niður við umræður þar sem þátttakendum er boðið að tjá sig og spyrja spurninga undir handleiðslu umræðustjórnenda. Kvöldinu lýkur rétt fyrir klukkan tíu með stuttri kvöldbæn. Hér fyrir neðan er yfirlit yfir þemun:


 

Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS