Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Samhygð

samtök um sorg og sorgarviðbrögð á Akureyri og nágrenni voru stofnuð í desember 1989 af hópi fólks sem hafði kynnst sambærilegum félagsskap í Reykjavík og fann að það var mikil þörf fyrir svona sjálfshjálparhópa á landsbyggðinni.

Frá upphafi voru fundir haldnir hálfs mánaðarlega allt árið í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Á veturna var reynt að vera með fyrirlestur í hverjum mánuði um hin ýmsu efni. Nú starfar félagið einu sinni í mánuði frá september til maí og er áætlað að vera með fyrirlestra/erindi í hvert skipti

Markmið samtakanna er að veita þeim stuðning sem koma að leita sér hjálpar eftir ýmis sorgaráföll er upp koma í lífinu, hvort heldur það er ástvinamissir, alvarleg veikindi, fötlun, atvinnumissir, skilnaður, gjaldþrot eða hvað annað

Það hjálpar heilmikið að geta talað við einhvern í trúnaði um sorgir sínar og áhyggjur og vita að sá hinn sami hefur upplifað sömu tilfinningar og efasemdir um framtíðina, en getur nú litið glaður

Fundir Samhygðar eru í minni safnaðarsal Akureyrarkirkju, gengið inn hjá kapellunni. Opin hús/fundirnir byrja kl. 20:00 og eru auglýstir í Dagskránni.

Bæklingur Samhygðar 2009-2010 til útprentunar

Dagskrá vorið 2009:

10. september, Opið hús spjall og kaffi.
8. október, afmæli Samhygðar, 20 ár frá stofnun samtakanna. Erindi, Dr. Sigríður Halldórsdóttir, ávarp, Sigrún Björk Jakobsdóttir, söngur, spjallþáttur, veitingar og fyrirbænastund.
12. nóvember, Eyrún K. Gunnarsdóttir sálfræðingur á F.S.A. með erindið ,,Börn og sorg”.
10. desember, Guðrún Eggertsdóttir sjúkrahúsprestur með erindið „Að afmarka sorginni tíma í hátíðarhöldunum“.
14. janúar, Innlegg fundarins „Að horfa fram á við eftir nýliðna hátíð, opið hús spjall og kaffi.
11. febrúar, Sigmundur Sigfússon með erindið „Sjálfsvíg“.
11. mars, auglýst síðar.
8. apríl, Kristín S. Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur með erindið „Að þreyja sorgina“.
6. maí, Kristján Már Magnússon, sálfræðingur með erindið „Að vinna með sorgina“.
Birt með fyrirvara um breytingar.
Auglýst nánar í Dagskránni.

Allir velkomnir á fundi. Engin félagsgjöld en öllum velkomið að styrkja félagið með
fjárframlögum á reikning 0162-26-003607,
kt. 6401912289.

 
Stjórn Samhygðar veturinn

Kristín E. Sveinbjörnsdóttir formaður
sími 462-6965/847-4250
Hugrún Stefánsdóttir gjaldkeri
Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir
Annetta Maria Norbertsdóttir
Varastjórn
Ólöf Tryggvadóttir

Netfang Samhygðar: kittyes@simnet.is

Veffang Samhygðar:
www.kirkjan.is/eyjafjardarprofastsdaemi
og inn á heimasíðu Akureyrarkirkju
www.akirkja.is

Heimilisfang Samhygðar:
Samhygð
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
á Akureyri og nágrenni
Borgarsíðu 1
603 Akureyri

Velkomin á fund Samhygðar

Tilgangur samtakanna er að styðja þá sem sorg og önnur andleg vanlíðan hrjáir og aðra þá sem vinna að velferð þeirra. Markmiðið með samveru okkar er að eiga þægilega stund yfir kaffibolla og fræðast og styrkjast hvert af öðru og oft fáum við til okkar gesti sem miðla af þekkingu sinni.

Á þessum samverustundum okkar er öllum frjálst að tjá sig en engin kvöð. Mikilvægt er að við deilum ekki tilfinningum okkar með öðrum fyrr en við erum tilbúin til þess sjálf.

Á fundi kemur enginn til þess að afla upplýsinga um náungann og þjáningu hans til þess eins að geta sagt sögur utan samverustunda okkar. Allt sem fram fer og er sagt er trúnaðarmál okkar sem sækjum fundi og er þetta atriði grundvöllur þess að það ríki einlægni og umhyggja. Ef þér finnst erfitt að tjá þig yfir hópinn en villt ræða þín mál hafðu þá óhikað samband við þá sem eru í forsvari fyrir samtök okkar og þú færð tækifæri til að eiga einkaviðtal við einhvern úr hópnum sem þú treystir. Við bjóðum þig aftur velkominn á fundi Samhygðar og minnum á þá grundvallarreglu okkar samveru, að sýna trúnað.

Verið óhrædd að taka skrefið, tekið vel á móti ykkur. Gott að fá einhvern með sér sem maður treystir vel í fyrsta skiptið.

     

    Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS