Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Vinaheimsóknir

HVER GETUR FENGIÐ HEIMSÓKN

Kirkjan reynir að miðla heimsóknum til þeirra sem gjarnan vilja kynnast manneskju úr nágrenninu, en eiga sjálfir erfitt með að komast út á meðal fólks, vegna veikinda, fötlunar eða af öðrum ástæðum

HVAÐ GETUR GESTURINN GERT? 

Gesturinn hefur tíma til þess að tala við þig, lesa upphátt fyrir þig eða fara með þér í gönguferð. Þannig er um að ræða persónuleg vinatengsl, þar sem markmiðið er að styrkja og gleðja báða

Gesturinn vinnur ekki heimilisstörfin. Öll slík þjónusta er í verkahring annarra, þar skal bent á öldrunarþjónustu Akureyrarbæjar

Okkar hlutverk er að sýna vináttu í verki og flytja samferðafólki okkar kærleiksboðskap kristinnar trúar

HVERNIG ERU HEIMSÓKNIRNAR ÁKVEÐNAR

  • Umsjónaraðili vinaheimsóknanna útvegar þann sem kemur í heimsókn.
  • Síðan getur þú sjálf(ur) komist að samkomulagi við gestinn um það hvenær og hvernig heimsóknirnar skuli vera
  • Bæði þú og gesturinn getið breytt samkomulaginu ef það skyldi koma í ljós að þið eigið ekki vel saman. Þá getur þú snúið þér til umsjónaraðilans sem getur þá ef til vill komið þér í samband við einhvern annan. 
  • Gesturinn er bundinn þagnarskyldu og mun ekki láta neina vitneskju um persónulega hagi þína fara lengra – nema þú óskir

ANNAÐ SAFNAÐARSTARF

  • Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í safnaðarstarfi í kirkjunni er auðvelt að verða sér úti um upplýsingar um hvað þar er í boði, þar er bent á safnaðarblöðin en auk þess er auglýsingar að finna í dagskránni
  • Óskir þú eftir samfylgd við slík tækifæri er sjálfsagt að ræða það við heimsóknarvininn.
  • Ásta Garðarsdóttir er forstöðumaður Vinaheimsóknar sími 462 6703

Bæklingar:

Kynningarbæklingur vinaheimsókna á Pdf-formi til skoðunar og prentunar

Bæklingur fyrir sjálfboðaliða á Pdf-formi til skoðunar og prentunar

     

    Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS