Nú eru samræðukvöldin að hefjast í Glerárkirkju sem verða á miðvikudagskvöldum í febrúar og mars kl. 20-22. Fyrsta kvöldið 8. febrúar flytur dr. Kristinn Ólason, sérfræðingur í ritskýringu Gamla testamentisins, erindi um hamingjuleitina. Eftir erindið verður boðið upp á kaffiveitingar og umræður um efnið. Með þessu vill kirkjan bjóða upp á umræðuvettvang um andlegt líf, þýðingu þess fyrir trúað fólk, þar sem gefst tækifæri til að deila reynslu af því og ræða saman um trúarleg málefni. Allir eru velkomnir og geta tekið þátt í umræðunum.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 26/1 2012
Æskulýðssamböndin í Austurlandsprófastsdæmi (ÆSKA) og Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi (ÆSKEY) standa í sameiningu fyrir helgarsamveru á Hrafnagili og Akureyri síðustu helgina í febrúar. Gert er ráð fyrir um 100 unglingum af Austur- og Norðurlandi. Unglingarnir eiga það öll sameiginlegt að vera virkir þátttakendur í kirkjustarfinu. Mótsstjóri er sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur. Lesa áfram …
Pétur Björgvin, 20/1 2012
Fundargerð héraðsfundar er nú aðgengileg á vefnum undir prófastsdæmi/héraðsfundir. Næsti héraðsfundur verður laugardaginn 24. mars á Akureyri og verður auglýstur sérstaklega þegar nær dregur.
Fundargerð héraðsfundar 2011 á Pdf-formi
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 16/1 2012
Alþjóðleg samkirkjuleg bænavika fyrir einingu kristninna er haldin árlega frá 18. – 25. janúar. Þessa viku sameinast kristið fólk um allan heim í bæn fyrir einingu. Bænavikan er undirbúin af kirkjum sem tilheyra samkirkjulegum samtökum er nefnast Alkirkjuráðið (World Council …
Lesa áfram á kirkjan.is
Guðmundur Guðmundsson, 16/1 2012
Fréttabréf Möðruvallaklausturssóknar er komið út en þar er sagt frá starfinu framundan frá ármótum til hvítasunnu. Í formálsorðum sínum hvetur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur, sóknarfólk að taka þátt í helgihaldi til að eiga samfélag saman í kirkjunum og nýta sér sálgæslu kirkjunnar. Hér á eftir má lesa fréttabréfið og dagskrá kirkjunnar á Möðruvöllum.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 10/1 2012
Samkirkjuleg bænavika hefst miðvikudaginn 18. janúar og stendur til 25. janúar. Það er alkirkjuráðið og samkirkjunefnd Kaþólsku kirkjunnar sem standa fyrir bænavikunni á hverju ár. Dagsetningar miða við Péturs- og Pálsmessu. Að þessu sinni fylgjum við hér á landi þeim dagsetningunum en fram að þessu hafa bænadagarnir átta miðað við sunnudagana næst þessum messudögum. Efnið er undirbúið af kirkjudeildum í Póllandi sem valið hafa yfirskrift út frá sinni sögu og reynslu: „Sigur Krists umbreytir okkur”. (Sbr. 1. Kor. 15:51-58). Að vanda munum við fara á milli safnaðanna á Akureyri og vera með bænagjörð þar sem efni hvers dags verður íhugað og tekið þátt í því með kristnu fólki út um allan heim að biðja um sýnilega einingu. Vikunni lýkur svo með sameiginlegri samkomu í Glerárkirkju með þátttöku fulltrúa frá söfnuðunum og Gospelkór Akureyrar mun koma fram og leiða sönginn sem verður mikill og kröftugur. Hér má lesa dagskrána og skoða auglýsingu sem prenta má út og hengja upp til að vekja athygli á bænavikunni.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 6/1 2012
Í janúar stendur Glerárkirkju fyrir tvenns konar námskeiðum. Annars vegar munu sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og sr. Guðrún Eggertsdóttir verða með námskeiðið ,,Að ná áttum og sáttum” en það námskeið er ætlað fólki sem hefur staðið í skilnaði. Hins vegar mun Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni verða með námskeiðið ,,Ást fyrir lífið” sem er hjónabandsnámskeið, ætlað fólki sem vill gera gott hjónaband betra.
Pétur Björgvin, 30/12 2011
Blaðið segir frá því sem er á döfinni í þjóðkirkjunni í útfirðinum. Skrá yfir allar guðsþjónustur nú í desember og á komandi jólahátíð. Hér má sækja blaðið á Pdf-formi.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 29/11 2011
Miðvikudaginn 30. nóvember verður bókakaffi í þorpinu þar segir Óskar Guðmundsson frá nýrri bók sinni um Eyfirðinginn, athafnamanninn, bændaleiðtogann og biskupinn Þórhall Bjarnason. Á fullveldisdaginn verður hann svo á Bergi á Dalvík. Og þá um kvöldið verður líf og fjör í Laufási kl. 20:30 með dagskrá og verður rjúkandi súkkulagði í boði og slegið á létta strengi.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 29/11 2011
Vegna óviðráðanlegra ástæðna verður erindi Halldórs Reynissonar um sorg og sorgarviðbrögð sem vera átti í Siglufjarðarkirkju 21. nóvember kl. 20:00 frestað um óákveðin tíma.
Guðmundur Guðmundsson, 19/11 2011