Kirkjuþingi lauk föstudaginn 18. nóvember. Í ræðu sinni við lok þingsins ræddi Pétur Kr. Hafstein, þingforseti þingmálin að umræðuefni en alls voru 36 mál lögð fram. „Flest eru þessi mál þýðingarmikil í starfi og stefnumörkun þjóðkirkjunnar. Þau eru öll borin fram …
Lesa á vef kirkjan.is Áfram →
Guðmundur Guðmundsson, 19/11 2011
Í haust hefur Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi staðið fyrir samræðukvöldum um trúna á Krist, guðspjöllin og nútímann. Kvöldin hafa að jafnaði hafist á tveggja manna tali og svo var einnig miðvikudagskvöldið 16. nóv., en þá ræddu dr. Ragnheiður Harpa Arnardóttir og sr. Gunnar Jóhannesson um sjöunda kaflann í bók páfa, en sá kafli hefur yfirskriftina ,,Boðskapur dæmisagnanna“. Hér á eftir má finna nokkra punkta úr tveggja manna tali kvöldsins. Lesa áfram …
Pétur Björgvin, 18/11 2011
Sunnudaginn 20. nóvember n.k verður hátíðarguðþjónusta í Vallakirkju kl 13:30 í tilefni þess að á jóladag n.k eru liðin 150 ár frá vígslu kirkjunnar á Völlum. Sóknarprestur sr. Magnús Gamalíel Gunnarsson þjónar fyrir altari og herra Jón Aðalsteinn Baldvinsson Hólabiskup predikar.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 18/11 2011

Þrír fulltrúar Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis sátu Kirkjuþing Unga Fólksins sem fram fór í Grensáskirkju í dag, föstudaginn 11.11.2011. Þau eru: Rakel Aðalsteinsdóttir úr Einarstaðasókn (t.v.) en hún á einnig sæti í stjórn ÆSKEY, Erla Guðjónsdóttir, æskulýðsleiðtogi í Akureyrarkirkju og Samuel Örn Pétursson, æskulýðsleiðtogi í Glerárkirkju, en hann var einnig annar varaforseta þingsins.
Lesa áfram á vef þjóðkirkjunnar.
Pétur Björgvin, 11/11 2011
Þessar vikurnar stendur Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi fyrir samræðukvöldum um trúna á Krist, guðspjöllin og nútímann. Til grundvallar umræðunni liggur bók Joseph Ratzinger „Jesús frá Nasaret“. Síðasta miðvikudagskvöld fór sjötta umræðukvöldið fram. Þar áttu sr. Gunnlaugur Garðarsson, sóknarprestur í Glerárkirkju og dr. Hjalti Hugason, prófessor við guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ, tveggja manna tal um efni kvöldsins. Yfirskrift kvöldsins var „Heimspeki og þekking“. Seinni hluti kvöldsins var svo helgaður almennum umræðum. Lesa áfram …
Pétur Björgvin, 10/11 2011
Æskulýðssamband kirkjunnar í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi, í samstarfi við KFUM og KFUK á Norðurlandi stóð fyrir helgarsamveru undir yfirskriftinni “Guð elskar glaðan gjafara” dagana 5. og 6. nóvember síðastliðinn. Gist var í grunnskólanum á Ólafsfirði og fór dagskráin fram víða um bæinn. Var það mál manna að Ólafsfirðingar hefðu tekið afskaplega vel á móti hópnum. Meðal stjórnenda á mótinu voru sr. Sigríður Munda Jónsdóttir, sr. Guðmundur Guðmundsson, Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju og Jóhann H. Þorsteinsson, sviðsstjóri æskulýðsstarfs KFUM og KFUK.
Skoða myndir frá samverunni.
Skoða frétt á www.625.is.
Pétur Björgvin, 9/11 2011
Á dögunum fór 15 manna hópur frá Glerárkirkju á landsmót æskulýðsfélaga, en það var haldið á Selfossi síðustu helgina í október. Alls tóku um 500 ungmenni þátt í mótinu sem var vel heppnað í alla staði. Landsmótin hafa verið fastur liður í æskulýðsstarfi kirkjunnar um áratuga skeið. Næsta landsmót verður austur á Héraði í október 2012 og vonumst við eftir góðri þátttöku héðan úr prófastsdæminu. Á vef Glerárkirkju má nú skoða nokkrar myndir af ferðinni á mótið.
Pétur Björgvin, 9/11 2011
Hér birtist tveggja manna tal þeirra Kristínar Ástgeirsdóttur, framkvæmdastýru Jafnréttisstofu, og sr. Örnu Ýrr Sigurðardóttur, prests í Glerárkirkju, um jafnrétti, menningu og samfélags. Næsta miðvikudag þann 9. nóvember verður umræða um trú, þekkingu og heimspeki. Þá ræða þeir saman dr. Hjalti Hugason, prófessor við guðfræði- og trúarbragðadeild HÍ og sr. Gunnlaugur Garðarssson, sóknarprestur í Glerárkirkju. Boðið verður upp á kaffi og almennar umræður í framhaldi. Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 8/11 2011
“… snaran þátt af sjálfum mér” nefnist fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð sem haldinn verður í Siglufjarðarkirkju mánudaginn 21. nóvember kl. 20:00. Fyrirlesari er sr. Halldór Reynisson, verkefnisstjóri fræðslumála á Biskupsstofu. Öll mætum við sorg og harmi í lífi okkar. Í fyrirlestrinum verður fjallað um ferli sorgarinnar, gerð grein fyrir þeim tilfinningum sem upp geta komið og úrvinnslu þeirra. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Sóknarnefndir og sóknarprestar í Hríseyjar-, Dalvíkur-, Ólafsfjarðar- og Siglufjarðarprestaköllum standa fyrir erindinu.
Guðmundur Guðmundsson, 8/11 2011
Verkefnið Síungir sunnudagar á vegum ÆSKEY er að komast í gang á nokkrum stöðum en markmið þess er að vera með fræðslu fyrir og um æskuna. Næstu tvo sunnudag þann 6. nóvember á Dalvík og 13. nóvember á Ólafsfirði verður dagskrá fyrir fermingarbörn og foreldra þeirra sem byggist að nokkru á Kompás, handbók um mannréttindafræðslu fyrir ungt fólk. Hér á eftir er dagskrá þessa sunnudaga og upplýsingar fyrir áhugasama. Verkefnið er styrkt af Æskulýðssjóði ríkisins.
Guðmundur Guðmundsson, 3/11 2011