Nú eru sunnudagaskólarnir að hefjast að nýju eftir áramót. Hvetjum við aðstandendur barna að nýta sér skemmtilega dagskrá og fræðandi sem er boðið upp á. Þá er starf í barna- og æskulýðsstarfi að hefjast. Hér fyrir neðan eru tengingar við vefsíður kirknanna á Akureyri:
www.akureyrarkirkja.is
www.glerarkirkja.is
Guðmundur Guðmundsson, 11/1 2007
Námskeið Leikmannaskólans hefjast 18. janúar með Biblíulestrum í Breiðholtskirkju sem tengjast efninu stjórnmál og staðleysur en þetta er aðeins brot af þeim spennandi viðfangsefnum sem glímt er við á námskeiðum skólans. Á vef skólans er hægt er að skoða lýsingar á námskeiðum og skrá sig.
Skoða dagskrá
Guðmundur Guðmundsson, 11/1 2007
Nú er stefnt að málþinginu 2. febrúar sem frestað var í haust. Einhver gæti spurt: Hvers vegna að ræða um kærleiksþjónustu kirkjunnar núna? Er það eitthvað frekar tímabært 2007 en verið hefur? Kirkjuþing samþykkt í haust ályktun um kærleiksþjónstu, hjálparstarf og kristniboð í anda stefnumótunar kirkjunnar sem lesa má hér á vefnum. Eðli kirkjunnar er kærleiksþjónustu eins og boðun hennar er fagnaðarerindi um von.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 5/1 2007
Undanfarin ári hafa kirkjudeildir á Akureyri komið saman á bænaviku. Þær hafa farið þannig fram að á sunnudegi er útvarpsguðsþjónusta sem er tileinkuð bænavikunni og efni hennar. Þá hefur verið bæna- og helgistundir í kirkjunum frá mánudegi til föstudags. Á fimmtudagskvöldi hefur svo verið sameiginleg samkomu sem að þessu sinni verður með alþjóðlegu yfirbragði. Efnið sem Alkirkjuráðið sendir um víða veröld kemur frá Umlazi í Suður-Afríku þar sem hvatt er til að rjúfa þögnina sem magnar neyð margra.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 3/1 2007
Á vefnum www.tru.is sem er hluti af vef þjóðkirkjunnar er að finna þátt sem heitir almanakið. Þar birtist örstutt hugleiðing, Ritningartextar og bænir fyrir hvern dag. Á vef Eyjafjarðarprófastsdæmis er tenging við almanakið ásamt helgihaldi hvers sunnudags í héraðinu.
Skoða á tru.is
Guðmundur Guðmundsson, 3/1 2007
Við upphaf árs hvetur biskup Íslands herra Karl Sigurbjörnsson menn til að vaka yfir gildum lífsins á vegferð sinni, tekst á við samtíman nær og fjær, minnir á börnin það dýrmætasta:
“Börnin eru hið dýrmætasta sem við eigum. Og barnatrúin og bænin er besta veganestið, því þar er sálarsjón beint til ljóssins. Okkur ætti jafnan að vera umhugað um líðan barnanna og velferð, öryggið, sem þeim er búið, væntingar sem til þeirra eru gerðar, og um hætturnar sem þeim eru búnar.”
Áfram á tru.is
Guðmundur Guðmundsson, 2/1 2007
Opið hús verður í Höfðakapellu við Kirkjugarða Akureyrar kl. 14-18. Prestar verða til viðtals. Og á heila tímanum verða helgistundir. Hægt verður að tendra ljós í minningu látinna ástvina. Að þessu standa prestar í Eyjafarðarprófastsdæmi og Samhygð, samtök um sorg- og sorgarviðbrögð. Öllum er velkomið að eiga hljóða stund í kapellunni á meðan opið er.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 20/12 2006
Nú stendur yfir söfnun Hjálparstarfs kirkjunnar á jólaföstu með áherslu á vatn. Á Glerártorgi á Akureyri er vatnshani frá Hjálparstarfinu til að minna á söfnunina. (Sjá vefsíðu Hjálparstarfsins). Þá hefst úthlutun á matarpökkum þriðjudaginn 20 desember í Glerárkirkju á vegum innanlandsaðstoðar Hjálparstarsins sem sr. Arnaldur Bárðarson, prestur í Glerárkirkju, gerir að umtalsefni í grein á tru.is
Lesa greinin þar
Guðmundur Guðmundsson, 18/12 2006
Sunnudaginn 17. desember, þriðja sunnudag í aðventu, verður haldin aðventuhátíð fjölskyldunnar í kirkjunni kl. 11.
Seinnipartinn eða kl. 17 verða svo hinir geysivinsælu Jólasöngvar Kórs Akureyrarkirkju og síðan endurteknir kl. 20.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 15/12 2006
Hinir árlegu Jólatónleikar Kórs Glerárkirkju verða haldnir í kirkjunni þann 17. desember kl. 17:00. Þar verður boðið upp á fjölbreytta efnisskrá tengda aðventu og jólum.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 15/12 2006