Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Jólafundur hjá Samhygð

Næsti fundur hjá Samhygð verður fimmtudaginn 14. deseber í Akureyrarkirkju kl. 20. Sr. Gunnlaugur Garðarsson mun spjalla um jól og aðventu í gleði og sorg. Og eru allir velkomnir. Á stjórnarfundi 7. desember sl. var ákveðið að vera með mánaðarlega fyrirlestra á næsta misseri sem verða auglýstir síðar. Þá var ákveðið að gefa út kynningarbækling og vera með ítarlegra upplýsingar um starfið hér á vefnum.

Guðmundur Guðmundsson, 12/12 2006

Gamlar biblíumyndir sýndar á Dalvík

Nú hefur staðið yfir á Dalvík sýning á gömlum biblíumyndum en sú sýning var í Glerárkirkju síðastliðið vor. Myndirnar verða sýndar um hátíðarnar og hægt að skoða þær þegar kirkjan er opin. Hér má sjá mynd frá sýningunni í Glerárkirkju.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 28/11 2006

Grein Pétur Björgvins djákna um köllun til kærleiksþjónustu

Á næstunni verður vísað í greinar og ræður sem prestar og djáknar í héraðinu birta á vefnum www.tru.is. Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni fjallar í þessari grein köllun kristinna manna til að sinna kærleiksþjónustu út fyrir kirkjuveggina.

Áfram

Guðmundur Guðmundsson, 28/11 2006

Af vísitasíu prófasts í Dalvíkurprestakalla

Sr. Hannes Blandon prófastur vísiteraði Dalvíkurprestkall undanfarna tvo sunnudag. Fer hér á eftir frásögn sr. Magnúsar G. Gunnarsson, sóknarprests, af vísitasíunni og nokkrar myndir.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 23/11 2006

Alfa-endurfundir

Miðvikudagskvöldið 22. nóvember voru Alfa-endurfundir. Þar með lauk Alfastarfinu í Glerárkirkju þetta haust. Boðið var til máltíðar og skemmtu menn sér vel yfir borðum þar sem sr. Arnaldur sagði nokkrar prestasögu og Pétur Björgvin djákni sýndi auglýsingar frá kynnningarstarfi Alfa á Bandaríkjunum og Bretlandi, auk þess sem hann var með æsispennandi spurningarkeppni. Næstu námskeið hefjast miðvikudagskvöldið 7. febrúar með kynningarkvöldi kl. 20.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 23/11 2006

Fréttir og myndir af sunnudagaskólahátíð ÆSKEY

Sunnudagaskólakennararnir voru ánægðir eftir vel heppnaðan dag. Safnast var saman í Brekkuskóla. Þar var pálínuboð og föndur. Krakkarnir skrifuðu og skreyttu kærleikskveðju. Þá var gengið til kirkju þar sem sunnudagaskólahátíðinni var haldin með pomp og prakt eins og sjá má af myndunum hér.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 20/11 2006

Sunnudagaskólahátíð ÆSKEY um helgina

Sunnudagaskólahátíð ÆSKEY kl. 11 nk sunndag 19. nóv. Allir sunnudagaskólar í Eyjafirði koma saman. Hátíðin hefst í Brekkuskóla kl. 10 með Pálínuboði. Allir velkomnir. Umsjón: Sr. Sólveig Halla og starfsfólk barnastarfs í Glerár- og Akureyrarkirkju.

Frekari upplýsingar

Guðmundur Guðmundsson, 17/11 2006

Ávarp við opnun jólakortasýningar í Glerárkirkju, 12. nóvember 2006

Nú stendur yfir jólakortasýning i Glerárkirkju. Sýningin stendur til 8. janúar og er opin alla virka daga klukkan 11:00 til 16:00 og í tengslum við athafnir í kirkjunni. Hópar eru einnig velkomnir á öðrum tímum, skráning á netfangið glerarkirkja@glerarkirkja.is. Við opnuna flutti Pétur Björgvin Þorsteinsson eftirfarandi ávarp.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 13/11 2006

Kistnibðsdagurinn á sunndaginn 12. nóvember

Á kristniboðsdaginn kemur kristniboðin Guðlaugur Gunnarsson til Akureyrar. Hann prédikar við guðsþjónustu í Akureyrarkirkju á sunndaginn kl. 11. Þá verða samkomur í félagsheimili KFUM og KFUK í Sunnuhlíð á sunnudagskvöldinu kl. 20. Árleg kaffisala til styrktar kirstniboðinu verður fyrr um daginn á sama stað og opnar kl. 14.30 og stendur til kl. 17. Allir velkomnir.

Skoða frekari upplýsingar um kristniboðsdaginn og kristniboð

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 10/11 2006

Hátíðardagskrá um Matthías Jochumsson 12. nóvember

Matthíasarvaka verður í Akureyrarkirkju 12. nóvember kl. 20. Fyrr um daginn verður fjölbreytt málþing í Amtbóksasafninu kl. 14 um þjóðskáldið. M.a. mun Þórunn Valdimarsdóttir kveðja Matthías að lokinni ritunn ævisögunnar: “Upp á Sigurhæðir”.

Sjá frekar á akureyri.is

Guðmundur Guðmundsson, 9/11 2006

Forsíðumynd:
Frá æskulýðsmóti á Hrafnagili vorið 2012 á vegum ÆSKEY

Víðförli er fréttabréf þjóðkirkjunnar. Hann er sendur í tölvupósti til áskrifenda einu sinni í viku. Hægt er að gerast áskrifandi á vefnum.


Um Hjálparstarf kirkjunnar (Smella á mynd til að horfa)


SAMRÆÐUKVÖLD Í FEBRÚAR OG MARS
(Smella á mynd til að fylgjast með)


Skrifstofa: Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri
Sími 462 6680 og 462 6702

Póstfang: Pósthólf 205, 602 Akureyri

Viðtalstímar:
Guðmundur Guðmundsson
Héraðsprestur
Símatími á mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12
Viðtöl eftir samkomulagi í Sigurhæðum eða Akureyrarkirkju
Sími 462 6702 og 897 3302

Ásta Garðarsdóttir
Umsjónarmaður vinaheimsókna
sími: 860 4967
netfang: astaga@simnet.is

Vinnusvæði starfsfólks

Þriðjudagur

Starfsmannafundur í Akureyrarkirkju kl. 9
Starfsmannafundur í Glerárkirkju kl. 10

Dagskrá ...