Næstkomandi sunnudag 12. nóvember verður opnuð sýning á gömlum jólakortum í andyri Glerárkirkju að lokinni messu safnaðarins klukkan 11:00.
Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni flytur erindi og félagar úr kór Glerárkirkju kynna jólatónleika kórsins. Sýnd eru mörg hundruð jólakort, þau elstu hátt í hundrað ára gömul.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 9/11 2006
Prófastur, sr. Hannes Blandon, vísiterar Dalvíkurprestakall næstu tvo sunnudag. Þann 12. verður hann í Dalvíkurkirkju kl. 14 við hátíðarguðsþjónustu og helgistund í Vallakirkju kl. 17.30. Þann 19. nóvember verður svo vísitasíunni fram haldið með hátíðarguðsþjónusta í Tjarnarkirkju kl. 13:30 og helgistund í Urðakirkju kl. 16:30.
Guðmundur Guðmundsson, 7/11 2006
Sunnudagaskólahátíð ÆSKEY verður í Akureyrarkirkju 19. nóv.
Minnum á sunnudagaskólahátíð AESKEY sem hefst með pálínuboði í Brekkuskóla klukkan tíu. Klukkan ellefu er svo sameiginlegur sunnudagaskóli í Akureyrarkirkju þar sem leiðtogar úr Glerárkirkju og Akureyrarkirkju stjórna samverunni.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 7/11 2006
Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er nú komin til Kanarí og skrifar fréttabréf þaðan af starfi sínu. Segir hún frá ýmsum breytingum á vettvangi en er bjartsýn að lausnir finnist. Sendum við henni kveðju okkar og fyirrbænir héðan úr prófastsdæminu.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 3/11 2006
Á sunnudaginn 29. október söng eldri og yngri barnakór Akureyrarkirkju með nýstofnuðum drengjakór við fjölskylduguðsþjónustu. Arnór Vilbergsson er stjórnandi kóranna. Lesa má um starf kóranna á Akureyrarkirkja.is Hér má skoða upptöku, tekur smá stund að hlaða henni niður. Og nokkrar myndir af kórunum.
Skoða upptöku
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 1/11 2006
Eftir viku verðu sr. Sigfinnur Þorleifsson, sjúkrahúsprestur á LHS, aðal fyrirlesari á námskeiðum á vegum prófastsdæmisins. Auk hans mun sr. Guðrún Eggertsdóttir, sjúkrahúsprestur á FSA, fjalla um þjónustu meðal syrgjenda og deyjandi. Námskeiðið: Í sorgarhúsi verður í Glerárkirkju 3. nóvember. Dagskrána má skoða hér. Og á laugardeginum 4. nóvember verður umræðufundur um útfaraþjónustu kirkjunnar í víðum skilningi í Höfðakapellu kl. 10-14. (Skoða dagskrá). Er starfsfólk kirkjunnar sem kemur að útfaraþjónustu hvatt til að nýta sér þetta einstaka tækifæri og skrá sig sem fyrst hjá héraðspresti í síma 462 6702.
Áfram
Guðmundur Guðmundsson, 27/10 2006
Á fimmtudagskvöldum í nóvember verða Emmaus-námskeið í Akureyrarkirkju. Það er annað námskeiðið af þessu tagi sem byggist upp á markvissri fræðslu og umræðu um trúmál. Í nóvember verður efnið: Má breyta Biblíunni? Valdir textar úr nýrri Biblíuþýðingu verða skoðir. Dagskrána má skoða hér.
Eftir samverustundirnar verða helgistundir kl. 21 í kirkjunni þar sem fólk getur átt kyrrláta stund í kvöldkyrrðinni.
Áfram
Guðmundur Guðmundsson, 27/10 2006
Nú er kirkjuþingi lokið. Meðal annars var samþykkt stefna um stóraukna áherslu á þjónustu og hjálparstarf sem verður fylgt eftir á málþingi um kærleiksþjónustu á prófastsdæminu 2. febrúar nk. (Sjá breytt tímasetning). Nú má lesa gerðir þingsins á vefnum og hlusta á umræður og viðtöl.
Áfram…
Guðmundur Guðmundsson, 27/10 2006
Um síðustu helgi var æskulýðsmót æskulýðsfélaga. Sr. Sólveig Halla Kristsjánsdóttir fór fyrir hópi frá Akureyri og víðar og segir frá mótinu á heimasíðu Akureyrarkirkju.
Áfram á Akureyrarkirkju.is
Guðmundur Guðmundsson, 25/10 2006
Nú er að hefjast tólfsporastarf í Akureyrarkirkju, framhaldshópur verður á mánudögum kl. 20 fyrir þá sem farið hafa í gegnum sporinn áður.
Nú er tólfsporastarf bæði í Akureyrarkirkju og Glerárkirkju. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir var með námskeið fyrir leiðbeinendur í tólfsporastarfi í Laxdalshúsí í október þar sem farið var í gegnum leiðsögn og notkun sporanna.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 25/10 2006