Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Vorfundur prestafélags hins fórna Hólastiftis

Vorfundur prestafélags hins fórna Hólastifis er nýafstaðinn. Mæting var með besta móti og voru menn sammála um ágæti samverunnar. Fyrirlesarar voru þau sr. Vigfús Bjarni Alfreðsson, sjúkrahúsprestur, og Gunnbjörg Óladóttir, guðfræðingur. Fjölluðu þau um efnið: Að uppbyggjast – um sjálfskilning, áföll og lífssýn. Vígslubiskup, sr. Jón A. Baldvinsson, söng messu með prestum í Hóladómkirkju, þar sem hann vakti athygli á þeim miklu tímamótum í sumar þegar boðið verður til 900 ára afmælis Hólabiskupsstóls.

Guðmundur Guðmundsson, 1/6 2006

Nýkjörnir fulltrúar á kirkjuþingi

Niðurstöður kirkjuþingskosninga liggja fyrir og birtust á kirkjan.is. Í 7. kjördæmi: Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmum urðu niðurstöðurnar þær að sr. Þorgrímur Daníelsson var kjörinn aðalmaður vígðra manna en Sigríður M. Jóhannsdóttir og Dagur Jóhannesson aðalmenn leikra. Niðurstöðu kosninganna á landinu öllu má skoða á kirkjan.is.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 1/6 2006

Síðdegis- og kvöldstundir í Akureyrarkirkju í sumar

Á hverju sumri koma tugir þúsunda ferðamanna í Akureyrarkirkju. Kirkjan hefur verið opin til klukkan 17 á daginn yfir sumarið en frá 1. júní verður boðið upp á aukna þjónustu við ferðafólk og alla þá sem hennar vilja njóta. Séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir mun annast þessa þjónustu og verður til staðar í kirkjunni alla mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 17 til 22 og á föstudögum til klukkan 23.30.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 24/5 2006

Kynning vegna kosninga til kirkjuþings – Dagur Jóhannesson Haga 2 Aðaldælahreppi

Hér kynnir Dagur Jóhannesson frá Haga í Aðaldælahreppi sig sem gefur kost á sér til seti á kirkjuþingi sem fulltrúi Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis.

Kynning hans fer hér á eftir.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 17/5 2006

Kynning vegna kirkjuþingskosninga – Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir

Solveig LáraSr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur á Möðruvöllum í Hörgárdal gefur kost á sér til kirkjuþings og fylgir hér með kynning hennar sem hún hefur óskað eftir að verði birt hér á vefnum. Það er sérstaklega stílað á presta og djákna í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmum.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 16/5 2006

Kynning á fulltrúa til kirkjuþings – Aðalsteinn Þorsteinsson

Aðalsteinn ÞorsteinssonAðalsteinn Þorsteinnson, býður sig fram til kirkjuþings. Hann hefur óskað eftir því að kynna sig hér á vefnum. Fylgir hér með kynninng hans sem má einnig nálgast á Pdf-formi.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 10/5 2006

Vorfundur Djákna félags Ísland á Akureyri 12. maí

Vorfundur Djáknafélags Íslands verður haldinn á Akureyri 12. maí 2006 og hefst klukkan 13:00 með fræðslustund á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Fræðslustundin sem er öllum opin verður í kennslustofu FSA á annarri hæð.

Lesa áfram

Guðmundur Guðmundsson, 10/5 2006

Kynning á fulltrúa til kirkjuþings – Sigríður M. Jóhannsdóttir

Hér fylgir kynning Sigríðar M. Jóhannsdóttir núverandi kirkjuþingsfulltrúa leikmanna. Hún gefur kost á sér til áframhaldandi setu á kirkjuþingi og hefur óskað eftir því að birta eftirfarandi kynningu hér.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 2/5 2006

Syrkumsóknir í sjóði kirkjunnar til 15. júní nk.

Á kirkjan.is er fjallað um styrkumsóknir í Jöfnunarsjóð og aðra sjóði kirkjunnar. Viljum við vekja athygli á umsóknarfresti sem er 15. júní nk. og eyðublöð sem hægt er að nálgast á vefnum hér.

Guðmundur Guðmundsson, 2/5 2006

Héraðsfundur Eyjafjarðarprófastsdæmis laugardaginn 6. maí

Sr. Hannes Blandon, prófastur, boðar enn á ný til héraðsfundar að Hrafnagili laugardaginn 6. maí með bréfi sem fylgir hér með. Fundurinn hefst með helgistund í Grundarkirkju kl. 10. Síðan verður fundurinn í Hrafnagilsskóla. En dagskrá fundarins má lesa hér og í gögnum fundarins sem hafa verið birt hér á vefnum. Fundinn sitja fulltrúar sókna og stofnanna, prestar og djáknar.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 28/4 2006

Forsíðumynd:
Frá TTT-móti á Hrafnagili vorið 2011 á vegum ÆSKEY

Víðförli er fréttabréf þjóðkirkjunnar. Hann er sendur í tölvupósti til áskrifenda einu sinni í viku. Hægt er að gerast áskrifandi á vefnum.


Um Hjálparstarf kirkjunnar (Smella á mynd til að horfa)


BÆNAVIKAN 18.-25. JAN
(Smella á mynd til að fylgjast með)


Skrifstofa: Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri
Sími 462 6680 og 462 6702

Póstfang: Pósthólf 205, 602 Akureyri

Viðtalstímar:
Guðmundur Guðmundsson
Héraðsprestur
Símatími á mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12
Viðtöl eftir samkomulagi í Sigurhæðum eða Akureyrarkirkju
Sími 462 6702 og 897 3302

Ásta Garðarsdóttir
Umsjónarmaður vinaheimsókna
sími: 860 4967
netfang: astaga@simnet.is

Vinnusvæði starfsfólks

Fimmtudagur

19. janúar - efni bænavikunnar: Umbreytt fyrir þolgæði í biðinni eftir Drottni
Kyrrðar- og fyrirbænastund í Akureyrarkirkju kl. 12

Dagskrá ...