Fundurinn verður föstudaginn 15. sept. 2006 kl.18.30 til kl.20.30 í safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Biblíubrúður opna nýja óvenjulega nálgun á sögur biblíunnar. Á námskeiðinu verður kynnt notkun á biblíubrúðum og stillt upp sögum úr biblíunni.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 12/9 2006
Síðasti skráningardagur á Innandyra í kirkjunni – námskeið í upphafi vetrarstarfs fyrir starfsfólk í barna- og unglingastarfi, sóknarnefndarfólk og áhugasama er á miðvikudag 13. september. Skráning er á biskupsstofu í s. 535 1500 eða á netfanginu: kristin.arnardóttir@kirkjan.is
Áfram
Guðmundur Guðmundsson, 12/9 2006
Næstkomandi sunnudag 10. sept. er guðspjallið frásagan af miskunnsama Samverjanum. Dagurinn markar upphaf að þema ársins um kærleiksþjónustu, hjálparstarfi og kristniboði. Ragnheiður Sverrisdóttir, verkefnisstjóri kærleiksþjónustusviðs, minnir á það í bréfi, að íhuga þetta málefni sem hún nefnir fjölþætta þjónustu, opna, virka og gefandi. Hér má lesa ræðu sr. Guðmundar Guðmundssonar út frá texta sunnudagsins.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 8/9 2006
Innandyra í kirkjunni í Akureyrarkirkju verður haldið laugardaginn 16. september kl. 10-17. Mikið er lagt í þetta námskeið sem er fyrir starfsfólk í barna- og unglingastarfi, fólk i sóknarnefndum og öðrum embættum kirkjunnar, fólk í heimsóknarþjónustu og sorgarvinnu / sjálfshjálparhópar. Skráning stendur yfir til miðvikudagsins 13. september.
Áfram
Guðmundur Guðmundsson, 7/9 2006
Föstudaginn 15. september næstkomandi stendur Djáknafélag Íslands fyrir ráðstefnunni ,,Kærleiksþjónustan og kirkjan í dag”. Aðalfyrirlesari verður Heide Paakjaer Martinussen frá ,,Eurodiaconia” sem eru evrópusamtök aðila í kærleiksþjónustu.
Nánari upplýsingar á vef djáknafélagsins
Guðmundur Guðmundsson, 7/9 2006
Um nokkurra ára skeið hafa verið Alfa-námskeið í Glerárkirkju. Þau eru á miðvikudagskvöldum og hefjast nú með kynningu 6. september kl. 20. Á sama tíma hafa verið grunnnámskeið og framhaldsnámskeið. Það hefur gefist vel og skapast gott samfélag í kringum borðhaldið en ekki síður á helgistundum í kapellu kirkjunnar.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 1/9 2006
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, verkefnisstjóri guðfræði og þjóðmála, minnir á að í dag eru tíu ár frá því að Porvoo samþykktin var undirritað í Niðarósdómkirkju. Hún segir: “Hér er um að ræða samkomulag sem anglíkanskar kirkjur Bretlandseyja og lúterskar kirkjur á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum gerðu með sér er kennt við finnsku borgina Porvoo þar sem texti samþykktarinnar var fullgerður.”
Áfram á kirkjan.is
Guðmundur Guðmundsson, 1/9 2006
Síðasta samvera kvöldkirkjunnar í sumar verður á fimmtudaginn 31. ágúst. Þá mun Móheiður Guðmundsdóttir sygja við undirleik Eyþórs Inga Jónssonar kl. 18. Og Jóna Lísa Þorsteinsdóttir leiðir svo bænastund kl. 21.30. Það er rómur manna að vel hafi tekist til með þetta framtak og svarar augljósri þörf enda mikill fjöldi sem hefur nýtt sér það að koma í Akureyrarkirkju á kvöldin, bæði innlendir sem erlendir. Stefnt er að framhaldi kvöldkirkjunnar næsta sumar.
Guðmundur Guðmundsson, 29/8 2006
Á námskeiðinu Innandyra 16. sepember nk. verður áherla lögð á kærleiksþjónustu. En það er þema næsta vetrar í kirkjustarfinu. Ragnheiður Sverrisdóttir mun fjalla um það almennt á námskeiðinu sem verður í Akureyrarkirkju en einnig verður hún með fræðslu um vinaheimsóknir og sorg- og sorgarviðbrögð.
Frekari upplýsingar er hér að finna undir fræðsla.
Lesa áfram …
Guðmundur Guðmundsson, 23/8 2006
Á kirkjan.is er þessi skemmtilega frásögn sr. Sighvats á Húsavík af pílagrímagöngu yfir Heljadalsheiði á Hólahátíð. En alls gengu 61 pílagrímur gömlu leiðirnar til Hóla á hátíðinni.
Lesa áfram á kirkjan.is.
Guðmundur Guðmundsson, 16/8 2006