Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Sunnudagaskólinn í Glerárkirkju að hefjast 18. september

Næskomandi sunnudag hefst barnastarfið í Glerárkirkju. Er það á sama tíma og guðsþjónusturnar kl. 11. Sunnudagaskólinn er opið börnum á öllum aldri en dagskráin tekur sérstaklega mið af börnum á aldrinum þriggja til níu ára. Eftir aðstæðum er hópnum skipt upp í aldurshópa. Síðasta sunnudag hvers mánaðari eru svo fjölskylduguðsþjónustur.

Sjá nánar á glerarkirkja.is

Guðmundur Guðmundsson, 15/9 2005

Kynningarbæklingur um kristið barna og æskulýðsstarf á Akureyri

Út er kominn kynningarbæklingurinn “Kristið æskulýðsstarf á Akureyri” í fyrsta sinn. Í honum er greint frá kristilegu barna- og æskulýðsstarfi á Akureyri. Í bæklingnum kynna Akureyrarkirkja, Glerárkirkja, Hjálpræðisherinn, Hvítasunnukirkjan, KFUM og KFUK og Sjónahæðarsöfnuður starf sitt. Bæklingurinn hefur verið borinn út í öll hús á Akureyri og gefur bæklingurinn góða mynd af því fjölbreytta starfi sem boðið er upp á fyrir börn og unglinga. Eiga Pétur Björgin djákni í Glerárkirkju og Sólveig Halla guðfræðingur í Akureyrarkirkju þakkir skyldar fyrir þetta góða framtak.

Sjá glerarkirkja.is

Guðmundur Guðmundsson, 15/9 2005

Kynning á Alfa-námskeiði í Glerárkirkju 14. september kl. 20

Alfa-lógóMiðvikudagskvöldið 14. september kl. 20 verður kynningarkvöld á Alfa-námskeiði í Glerárkirkju. Þar gefst fólki kostur á að kynna sér Alfa-námskeiðin sem haldin hafa verið í Glerárkirkju mörg undanfarin ár. Þau eru öllum opin og gefa fólki gott tækifæri til að kynna sér kristna trú í notalegu umhverfi með öðrum og ræða þær spurningar sem á þeim brennandi varðandi trú og tilgang lífsins. Leiðbeindendur verða sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur og Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni, Nína Dau, tónlistarfulltrúi.

Lesið frekar kynningu hér á vefnum

Guðmundur Guðmundsson, 13/9 2005

Verkefnið “Verndum bernskuna” hófst í morgun

Mynd af börnum“Verndum bernskuna”, átaki í uppeldi barna á vegum Þjóðkirkjunnar og fleiri aðila var ýtt úr vör á blaðamannafundi í Rimaskóla í morgun. Í átakinu felst að kynnt verða tíu heilræði um uppeldi barna og efni sent inn á öll heimili í landinu.

Lesa áfram á kirkjan.is

Guðmundur Guðmundsson, 8/9 2005

“Gamlir kirkjugarðar” – Menningarminjadagur Evrópu á Íslandi 10. september.

Menningarminjadagar Evrópu (European Heritage Days) eru haldnir í september ár hvert, fyrir atbeina Evrópuráðsins og Evrópusambandsins. Tilgangurinn er að kynna almenningi merkar minjar í löndum ráðsins og vekja fólk almennt til umhugsunar um gildi minja og sögu.

MunkaþverárkirkjaFornleifavernd ríkisins hefur umsjón með menningarminjadeginum á Íslandi. Þema Íslands þetta árið er: Gamlir kirkjugarðar. Á minjasvæði Norðurlands eystra mun Fornleifavernd ríkisins standa að kynningu á minjum á Munkaþverá í Eyjafjarðarsveit. Minjavörður Norðurlands eystra Sigurður Bergsteinsson mun vera á staðnum laugardaginn 10. september. Allir eru velkomnir og er enginn aðgangseyrir.

Mynd: Munkaþverárkirkju.
Hér á eftir fylgir umfjöllun um Munkaþverá.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 7/9 2005

Innandyra í Glerárkirkju tókst með ágætum

Söngstund í GlerárkirkjuÞað var góður andi á Innandyranámskeiðinu og farið yfir það helsta í barnastarfinu og starfi sóknarnefnda. Þátttakendur voru þakklátir fyrir góðan dag og fræðandi. Pétur Björgvin djákni fór um með myndavél og má skoða þær hér með því að smella hér.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 5/9 2005

Samráðsfundur presta og djákna í Eyjafjarðarprófastsdæmi

Ákveðnir hafa verið samráðsfundir í Eyjafjarðarprófastsdæmi í haust (2005). Fyrsti fundurinn verður í Glerárkirkju 14. september klukkan 12-14. Það verður sami háttur og síðast liðið ár. Safnast verður saman til hádegistundar og snætt saman þar á eftir á víxl í Glerárkirkju og Akureyrarkirkju. Fundurinn fer svo fram þar á eftir til klukkan 14.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 5/9 2005

Skráning á námskeið 3. september

SunnudagaskóliNú stendur yfir skráning á námskeiðin 3. september í Glerárkirkju “Innandyra, námskeið fyrir starfsfólk kirkjunnar”. Skráningin fer fram hjá Kristínu Arnardóttur á Fræðslusviði Biskupsstofu í síma 353 1500 og e-mail: kristin.arnardottir@kirkjan.is. Smellið á áfram til að skoða dagskrána:

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 30/8 2005

Vinaleið – Sálgæsla – Forvarnastarf

Kynning og fræðsla í Glerárkirkju: Fimmtudaginn 25. ágúst kl. 17:30 – 19:00. Þórdís Ásgeirsdóttir kennari og djákni í Mosfellsbæ segir frá verkefninu ,,Vinaleið” í Varmárskóla og Lágafellsskóla. Í kyknningu Þórdísar segir m.a.: “Vinaleið er kristileg sálgæsla þar sem leitast er við að styrkja sjálfsímynd viðkomandi, gera heilt, leiðbeina og sætta.Vinaleið er kristileg sálgæsla þar sem leitast er við að styrkja sjálfsímynd viðkomandi, gera heilt, leiðbeina og sætta.”

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 23/8 2005

Mælt með séra Óskari og Sólveigu Höllu í Akureyrarkirkju

Valnefnd í Akureyrarprestakalli ákvað á fundi sínum 16. ágúst s.l. að leggja til að séra Óskari Hafsteini Óskarssyni og Sólveigu Höllu Kristjánsdóttur guðfræðingi verði veitt embætti presta við Akureyrarkirkju sem auglýst voru nýlega. Biskup Íslands veitir embættin til fimm ára.

Sjá frétt í heild á kirkjan.is

Guðmundur Guðmundsson, 17/8 2005

Forsíðumynd:
Frá æskulýðsmóti á Hrafnagili vorið 2012 á vegum ÆSKEY

Víðförli er fréttabréf þjóðkirkjunnar. Hann er sendur í tölvupósti til áskrifenda einu sinni í viku. Hægt er að gerast áskrifandi á vefnum.


Um Hjálparstarf kirkjunnar (Smella á mynd til að horfa)


SAMRÆÐUKVÖLD Í FEBRÚAR OG MARS
(Smella á mynd til að fylgjast með)


Skrifstofa: Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri
Sími 462 6680 og 462 6702

Póstfang: Pósthólf 205, 602 Akureyri

Viðtalstímar:
Guðmundur Guðmundsson
Héraðsprestur
Símatími á mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12
Viðtöl eftir samkomulagi í Sigurhæðum eða Akureyrarkirkju
Sími 462 6702 og 897 3302

Ásta Garðarsdóttir
Umsjónarmaður vinaheimsókna
sími: 860 4967
netfang: astaga@simnet.is

Vinnusvæði starfsfólks

Þriðjudagur

Starfsmannafundur í Akureyrarkirkju kl. 9
Starfsmannafundur í Glerárkirkju kl. 10

Dagskrá ...