Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Innandyranámskeið með breyttu sniði í Glerárkirkju 3. september

Kveikt á kertiSenn líður að námskeiðum fyrir starfsfólk Þjóðkirkjunnar við upphaf vetrarstarfs, en þau ganga undir nafninu “Innandyra” í kirkjunni. Að þessu sinni verður prestum og sóknarnefndarfólki boðið upp á námskeiðahald, auk starfsfólks í barna- og æskulýðsstarfi.

Námskeiðið í Eyjafjarðarprófastsdæmi verður í Glerárkirkju, laugardaginn 3. september kl. 8:30 – 18:00.

Sjálft Innandyranámskeiðið kostar 5000 krónur en þátttökugjald hefur verið fellt niður fyrir þá sem komnir eru um langan veg. Skráning er á Biskupsstofu s. 535 1500 og á netfanginu kristin.arnardóttir@kirkjan.is

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 16/8 2005

Námskeið fyrir fólk í sóknarnefndum 3. september

Í samstarfi Leikmannaskólans, Fræðslusviðs Biskupsstofu og Eyjafjarðarprófastsdæmis og fleiri verður haldið námskeið fyrir fólk í sóknarnefndum laugardaginn 3.september n.k. í Glerárkirkju. Námskeiðið er haldið í tengslum við “Innandyra” námskeið fyrir starfsfólk kirkjunnar. Fyrri hluti námskeiðsins er sameiginlegur með starfsfólki í barna-og æskulýðsstarfi kirkjunnar en eftir hádegi er boðið upp á námskeiðið “Að starfa í sóknarnefnd”

Skráning fer fram í síma 535 1500 hjá Kristínu Arnardóttur á Fræðslusviði Biskupsstofu eða með tölvupósti á fraedslusvid@kirkjan.is. Frekari upplýsingar veitir Guðmundur héraðsprestur í síma 462 6702.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 16/8 2005

Hólahátíð 14.-16. ágúst

HóladómkirkjaDagskrá Hólahátíðar er að finna á vef Hóla og birtist hér ef smellt er á áfram. Dagskráin er fjölbreytt að vanda. Á föstudagskvöldið verður málþing um náttúrusiðfræði í Auðunarstofu. Á laugardag verða pílagrímagöngur og tónleikar. Sr. Pétur Þórarinsson prófastur prédikar við hátíðarguðsþjónustu á sunnudeginum. Frú Vigdís Finnbogadóttir, flytur hátíðarræðu á hátíðarsamkomu í Dómkirkjunni.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 10/8 2005

Guðsþjónustu við smábátahöfnina í Sandgerðisbót

Sunnudaginn 3. júli kl 20:30 ætlum við í Glerárkirkju að færa guðsþjónustu dagsins úr kirkjunni og vera við smábátahöfnina í Sandgerðisbót. Í fyrra sungum við messu í Listigarðinum um svipað leiti og var það afar ánægjuleg stund að allra mati en okkur þykir gaman að bregða aðeins út af vana okkar og vera úti undir beru lofti með helgihald sunnudagsins þegar sumarið kemur.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 29/6 2005

Kirkjudögum í trú og gleði lauk um helgina

af kirkjan.isMikil ánægja var með Kirkjudaga sem stóðu yfir föstudag og fram á aðfaranótt sunndags 24-26. júní. Upp úr miðnætt sleit biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, kirkjudögum sem hann sagði að hefðu einkennst af trú og gleði. Eyfirðingar önnuðust kvöldvöku á laugardagskvöldi með miklum sóma.

Sjá umfjöllun á kirkjan.is

Guðmundur Guðmundsson, 27/6 2005

Lokaútkall fyrir Kirkjudaga um Jónsmessu frá aðstandendum þeirra

Á föstudaginn 24. júní klukkan 20 hefjast Kirkjudagar um Jónsmessu á Skólavörðuholti í Reykjavík. Undirbúningur er á lokastígi segja aðstandendur daganna.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 20/6 2005

Fylgstu með upplifunum Þóru og Ásbjargar í Úganda

Mynd frá HjálparstarfinuAnna M. Þ. Ólafsdóttir vekur athygli á verkefni hjá Hjálparstarfi kirkjunnar. Þær Þóra Kristín Haraldsdóttir og Ásbjörg Geirsdóttir, læknanemar á 4. ári eru nýkomnar til Úganda til þess að vinna með munaðarlausum börnum fyrir milligöngu Hjálparstarfsins. Þær halda úti bloggi þar sem hægt er að fylgjast með þeim.

Lesa áfram á vef Hjálparstarfsins …

Guðmundur Guðmundsson, 15/6 2005

Kirkjudagar nálgast 24-25. júní nk

Krosstákn af kirkjan.isNú styttist í Kirkjudaga um Jónsmessu og vekjum við athygli á ýmsum fréttatilkynningum á kirkjan.is um það sem framundan er. Undirbúningur er í fullum gangi og væntanlega kemur bæklingur inn um póstluguna næstu daga með yfirliti yfir það sem boðið verður upp á. Sjáið fréttir á kirkjan.is:

Kirkjuleikhús unglinga úr Grafarvogskirkju og Ten-sing starfs í Reykjavík

Stöðvamessa á föstudagskvöldi

Kynnisferð í fjórar kirkjur

O.s.frv. á vef Kirkjudaga

Guðmundur Guðmundsson, 14/6 2005

Matthíasarvaka 5. júní m.a. í safnaðarheimili Akureyrarkirkju

Matthías JochumssonNæstkomandi sunnudag, 5. júní, efnir MENOR til glæsilegrar hátíðardagskrár í tilefni þess að 170 ár eru liðin frá fæðingu Matthíasar Jochumssonar. Þar verður helgistundi í Akureyrarkirkju kl. 13:30 og að henni lokinni hefst vakan í safnaðarheimilinu. Prófastur sr. Hannes Blandon mun þar flytja erindi um skáldið og Þórunn Valdimarsdóttir, sagnfræðingur og rithöfundur, les úr bók sinni um Matthías. Þá er vegleg dagskrá allan daginn sem má lesa nánar á heimsíðu Akureyrar.

Guðmundur Guðmundsson, 4/6 2005

Ræða á sjómannadegi eftir sr. Magnús G. Gunnarsson sóknarprest á Dalvík

Altaristafla-Kristín GunnlaugsdóttirHér birtist ræða sr. Magnúsar G. Gunnarssonar sóknarprestur á Dalvík, flutt á sjómannadegi 2005, þar sem hann minnir á sjóferðarbænir og ryfjar upp þessa gömlu bæn: “Ég byrja reisu mína, Jesús í nafni þínu. Höndin þín helg mig leiði, úr hættum öllum greiði.” Texta sjómannadags má lesa hér með því að spmella á Ritningarlestur.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 4/6 2005

Forsíðumynd:
Frá æskulýðsmóti á Hrafnagili vorið 2012 á vegum ÆSKEY

Víðförli er fréttabréf þjóðkirkjunnar. Hann er sendur í tölvupósti til áskrifenda einu sinni í viku. Hægt er að gerast áskrifandi á vefnum.


Um Hjálparstarf kirkjunnar (Smella á mynd til að horfa)


SAMRÆÐUKVÖLD Í FEBRÚAR OG MARS
(Smella á mynd til að fylgjast með)


Skrifstofa: Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri
Sími 462 6680 og 462 6702

Póstfang: Pósthólf 205, 602 Akureyri

Viðtalstímar:
Guðmundur Guðmundsson
Héraðsprestur
Símatími á mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12
Viðtöl eftir samkomulagi í Sigurhæðum eða Akureyrarkirkju
Sími 462 6702 og 897 3302

Ásta Garðarsdóttir
Umsjónarmaður vinaheimsókna
sími: 860 4967
netfang: astaga@simnet.is

Vinnusvæði starfsfólks

Þriðjudagur

Starfsmannafundur í Akureyrarkirkju kl. 9
Starfsmannafundur í Glerárkirkju kl. 10

Dagskrá ...