Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Flugslysaæfingin “Akureyri 2005″

Frá fjöldahjálparstöð RKÍFlugslysaæfing var haldin á Akureyri laugardaginn 28. maí með þátttöku allra viðbragðsaðila sem að slíkum atburðum koma í raun. Eftir samþykkt síðasta Kirkjuþings hefur verið unnið að því að koma kirkjunni formlega inn í viðbragðaáætlanir þannig að prestar, djáknar og hópslysanefnd kirkjunnar séu kölluð til strax við fyrsta útkall. Sú vinna stendur enn yfir en á æfingunni gafst mikilvægt tækifæri til að láta reyna á útkallskerfi kirkjunnar og viðbrögð hennar við útkalli.

Lesa áfram …

gudrun.eggertsdottir, 1/6 2005

Námskeið um áfallahjálp í umsjón Margrétar Blöndal

Fimmtudag 26. maí kl. 13-15 í kennslustofu á 2. hæð FSA verður námskeið fyrir þá sem taka þátt í flugslysaæfingunni 28. maí og aðra sem áhuga hafa á áfallahjálp. Umsjón með námskeiðinu hefur Margrét Blöndal hjúkrunarfræðingur, sem starfar við Miðstöð áfallahjálpar við slysa- og bráðamóttöku Landspítala háskólasjúkrahúsi í Fossvogi. Viljum við vekja athygli á þessu námskeiði. Viðfangsefnin verða: 1. Hvað er áfallahjálp. 2. Hvers vegna áfallahjálp. 3. Skipulag áfallahjálpar á neyðartímum.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 23/5 2005

Prestar og djáknar taka þátt í flugslysaæfingu 28. maí

Fyrir dyrum stendur flugslysaæfing 28. maí. Kirkjan er að koma að þessu með skipulegri hætti í kjölfar samþykktar um Neyðaráætlun kirkjunnar. Prestar funduðu um málið 11. maí í Íslandsbænum á Hrafnagili. Þar fór sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir yfir andlega skyndihjálp. Sr. Agnes Sigurðardóttir sagði frá reynslu presta á Vestfjörðum af stórslysum og dróg lærdóm af þeirri reynslu. Boðið verður upp á námskeið 26. maí fyrir þá sem taka þátt í æfingunni og áhuga hafa á áfallahjálp klukkan 13-15 í kennslustofu á 2. hæð FSA.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 19/5 2005

Símenntun Háskólans á Akureyri auglýsir námskeið um kristin fræði, siðfræði og trúarbragðafræði í ágúst

Prófastsdæmið átti frumkvæði að þessu námskeiði og viljum við vekja athygli á þessum möguleika fyrir kennara og aðra sem hafa með kristið uppeldi að gera. Námskeiðið verður haldið á Akureyri 11-13. ágúst. Umsjón hefur Sigurður Pálsson kennari í trúkennslufræði við KHÍ og HÍ. Aðrir sem koma að námskeiðinu eru Kristján Kristjánsson prófessor við HA, Kristín Þórunn Tómasdóttir héraðsprestur og sérfræðingur í trúarbragðafræðum, Guðlaug Björgvinsdóttir formaður félags kennara í kristnum fræðum, trúarbragðafræðum og siðfræði.

Sjá frekar á heimasíðu Símenntunar á Háskólanum á Akureyri

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 12/5 2005

Fjölskyludvæn vorhátíð í Glerárkirkju

Sr. ArnaldurÁ sunnudaginn var, 8. maí, var mikil og skemmtileg vorhátíð haldin í Glerárkirkju. Fyrir altari þjónuðu þeir sr. Arnaldur og Pétur Björgvin djákni og nutu þeir dyggrar þjónustu sona sinna, sem voru í hlutverki messuþjóna. Það ætti því að vera óhætt fyrir okkur hin að koma með börnin í helgihaldið og vera dálítið frjálsleg. Eftir fjölskylduguðsþjónustuna var boðið upp á grillaðar pylsur og leiktæki á kirkjutorginu. Hér má skoða myndir frá hátíðinni.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 10/5 2005

Fréttir af héraðsfundi Eyjafjarðarprófastsdæmis

Magnús StefánssonLaugardaginn 30. apríl var héraðsfundur prófastsdæmisins haldinn á Ólafsfirði. Kosnir voru nýir fulltrúar í héraðsnefnd. Magnús Stefánsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Var honum þökkuð frábær störf um tveggja áratuga skeið í héraðsnefnd. Í hans stað var kosinn Gestur Jónsson. Þá var stofnað ÆSKEY sem lesa má frekar um hér. Önnur mál héraðsfundar mál lesa um með því að smella á hér fyrir neðan.

Mynd: Magnús Stefánsson

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 6/5 2005

Vorhátíð Glerárkirkju sunndaginn 8. maí

Sunnudaginn 8. maí er vorhátíð Glerárkirkju. Hátíðin hefst með fjölskylduguðsþjónustu klukkan 11:00 en að henni lokinni leikur Marimbahópur Oddeyrarskóla nokkur lög áður en pylsugrillveisla og leiktækjafjör tekur við á útisvæði.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 3/5 2005

Stefnt að stofnun Æskulýðssambands á héraðsfundi 2005

Fyrir héraðsfundi Eyjafjarðarprófastsdæmis sem haldinn verður þann 30. apríl næstkomandi liggur tillaga um stofnun ÆSKEY, Æskulýðssambands kirkjunnar í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Með stofnun ÆSKEY er samstarfsfleti sókna í prófastsdæminu gefinn ákveðinn rammi þar sem samstarf um foreldramorgna, sunnudagaskóla, barnaguðsþjónustur, kirkjuskóla, TTT, barna– og unglingakóra, æskulýðsfélög og annað starf fyrir 2 til 27 ára einstaklinga getur vaxið enn frekar og dafnað.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin, 27/4 2005

Velheppnað þing ungs kirkjufólks

Á þriðja tug ungmenna úr Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmum sóttu þing ungs kirkjufólks sem haldið var í Akureyrarkirkju 9. apríl síðastliðinn. Þetta var sjötta þingið af samtals sjö leiðarþingum sem þjóðkirkjan boðaði til um allt land til undirbúnings á Kirkjuþingi ungs fólks sem haldið verður föstudaginn 24. júní 2005 í tengslum við Kirkjudaga. Þinginu lauk með samþykkt ályktunar í 13 atriðum og er hún nú aðgengileg hér á vefnum.

Þingið

Frá setningu þingsins – Þingforseti og frummælendur

Lesa áfram …

Pétur Björgvin, 19/4 2005

Gögn héraðsfundar Eyjafjarðarprófastsdæmis send út í vikunni

Í þessari viku verða send út gögn héraðsfundar Eyjafjarðarprófastsdæmis laugardaginn 30. apríl. Þau er einnig hægt að nálgast hér á vefnum sem PDF skjal. Fundurinn verður í Ólafsfirði og hefst klukkan 10. Allir fulltrúar sóknaranna eru hvattir til að kynna sér gögnin um þau mikilvægu mál sem taka þarf afstöðu til.

Guðmundur Guðmundsson, 18/4 2005

Forsíðumynd:
Frá æskulýðsmóti á Hrafnagili vorið 2012 á vegum ÆSKEY

Víðförli er fréttabréf þjóðkirkjunnar. Hann er sendur í tölvupósti til áskrifenda einu sinni í viku. Hægt er að gerast áskrifandi á vefnum.


Um Hjálparstarf kirkjunnar (Smella á mynd til að horfa)


SAMRÆÐUKVÖLD Í FEBRÚAR OG MARS
(Smella á mynd til að fylgjast með)


Skrifstofa: Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri
Sími 462 6680 og 462 6702

Póstfang: Pósthólf 205, 602 Akureyri

Viðtalstímar:
Guðmundur Guðmundsson
Héraðsprestur
Símatími á mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12
Viðtöl eftir samkomulagi í Sigurhæðum eða Akureyrarkirkju
Sími 462 6702 og 897 3302

Ásta Garðarsdóttir
Umsjónarmaður vinaheimsókna
sími: 860 4967
netfang: astaga@simnet.is

Vinnusvæði starfsfólks

Þriðjudagur

Starfsmannafundur í Akureyrarkirkju kl. 9
Starfsmannafundur í Glerárkirkju kl. 10

Dagskrá ...