Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju

Kirkjulistavika 2005 verður dagana 17.-24. apríl næstkomandi og er þetta í Björn Steinar við orgeliðníunda skipti sem Listvinafélag Akureyrarkirkju heldur slíka kirkju- og menningarhátíð í samvinnu við ýmsa aðila. Að vanda taka fjölmargir listamenn þátt í Kirkjulistavikunni, en markmið hennar er að efla samvinnu og tengsl listafólks við kirkjuna og gefa Akureyringum og nærsveitamönnum kost á að njóta þar góðra lista. (Úr Fréttatylkynning frá Akureyrarkirkju)

Hér er hægt að nálgast dagskrá vikunnar – Safnaðarblað Akureyrarkirkju

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 16/4 2005

Gospelfjör í Glerárkirkju

Gospelfjör er dagskrárliður í Birtingu, hátíð ungs fólks sem nú stendur yfir. Allir eru hvattir til að mæta á þetta gospelfjör sem er á dagskránni í kvöld, miðvikudagskvöldið 13. apríl kl. 20:30 í Glerárkirkju. Þar koma m.a. Stúlknakór Akureyrarkirkju, Sólrún Ásta Haraldsdóttir, Kór Menntaskólans á Akureyri og fleiri fram. Birting er hátíð ungs fólks sem er haldin á Akureyri 9.-16. apríl nk. Með henni vilja framhaldsskólanemar sýna að þeir hafa margt gott fram að færa. Nánar má lesa um hátíðina á www.birting2005.is

Guðmundur Guðmundsson, 13/4 2005

Boðað til héraðsfundar með dagskrá 30. apríl

Prófastur hefur boðað til héraðsfundar með dagskrá sem fylgir hér með. Héraðsfundur verður í Ólafsfjarðarkirkju 30. apríl og hefst með messu þar sem sr. Sigríður Munda Jónsdóttir prédikar. Æskulýðs- og fræðslumál verða veigmikil viðfangsefni fundarins ásamt skipulagsmálum. Kynntar verða tillögur nefndar um sameiningu Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæma. Fundurinn stendur frá kl. 10:00 til 17:30.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 12/4 2005

Barnið í brennidepli – Glerárkirkja aðili að verkefninu – Fræðslufundur 6. apríl

Glerárkirkja er þátttakandi í þróunarverkefninu ,,Barnið í brennidepli” sem Skóladeild Akureyrarbæjar og Skólaþróunarsvið Háskólans á Akureyri standa að. Meginmarkmið verkefnisins er að styrkja siðferðismótun og verndarþætti í nánasta umhverfi barna og móta sameiginlega sýn þeirra sem starfa að uppfræðslu og uppeldi.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin, 4/4 2005

Söngleikurinn Líf og friður fluttur í Glerárkirkju 2. apríl kl. 14

Barnakór GlerárkirkjuÞær Ásta Magnúsdóttir og Margrét Eir Hjartardóttir leiða nú barnakór og unglingakór Glerárkirkju í æfingum á söngleiknum LÍF OG FRIÐUR en stefnt er á sýningu söngleiksins 2. apríl 2005 klukkan tvö í Glerárkirkju. Söngleikurinn hefur verið fluttur víða í kirkjum landsins við góðar undirtektir og var gaman að sjá á æfingu hjá kórunum síðastliðinn laugardag hve mikil gleði ríkti í hópnum og ljóst að allir þátttakendur stefna að því að gera sitt besta.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 28/3 2005

Páskaprédikun flutt í Ólafsfirði – Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir

Hér birtist ræða sr. Sigríðar Mundu Jónsdóttur flutt í Ólafsfjarðarkirkju og Hornbrekku á páskadag 27. mars 2005. Gleðiboðin um að “Kristur er upprisinn” er á næman hátt í ræðunni tengd við sorg og ástvinamissi barnsins og von okkar manna um eilíft líf. Textinn sem er útlagður er Matt. 28:1-8.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 27/3 2005

Föstudagurinn langi 25. mars – Krossins orð

Ýmsar hugleiðingar er að finna á vef kirkjunnar og lestrar og bænir sem tengjast föstudeginum langa. Lesa þar. Hér vísum við á hugleiðingu herra Karl Sigurbjörnsson, biskupskrossins orð. Lesa hugleiðinguna.

Guðmundur Guðmundsson, 25/3 2005

Heilög kvöldmáltíð – ræða í Hrísey á skírdag 2005

Ataristalfa Arngrímur GíslasonHér birtist ræða sr. Guðmundur Guðmundssonar um heilaga kvöldmálið sem er efni skírdags. Þar leggur hann út frá texta Didache: “Eins og brotnu brauði var dreift yfir fjöllin, en var safnað saman og varð eitt…” Bæn í upphafi er þýðing á sálmi eftir Anders Frostenson.

Textar dagsins: Sálm. 116: 12-19, 1. Kor. 10: 16-17, Lúk. 22: 14-20 – Lesa texta dagsins

Lesa ræðu á annál Guðmundar Guðmundsson

Lesa texta dagsins – smeltu á áfram

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 24/3 2005

Sr. Arnaldur Bárðarson settur inn í embætti prests í Glerárkirkju 20. mars

Á sunnudaginn kemur, Pálmasunnudag, verður sr. Arnaldur Bárðason settur í embætti prests í Glerárkirkju af sr. Hannesi Erni Blandon, prófasti í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Auk þess þjóna sr. Gunnlaugur Garðarsson, sóknarprestur í Glerárkirkju og Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni við athöfnina. Kirkjukór Glerárkirkju syngur undir stjórn Hjartar Steinbergssonar, organista. Allir eru velkomnir til messu og í messukaffi að helgihaldi loknu. Messan hefst klukkan 11.

Lesa áfram …

hannes.blandon, 17/3 2005

20 ára vígsluafmæli KFUM og KFUK í Sunnuhlíð 17. mars

Í dag 17. mars eru 20 ár síðan herra Sigurbjörn Einarsson, biskup, vígði félagsheimili KFUM og KFUK í Sunnuhlíð. Afmæliskaffi verður þar í kvöld kl. 20 þar sem rætt verður um hlutverk og starf félagsins í fortíð, nútíð og farmtíð. Hér má skoða myndasýningu um starf félaganna á Akureyri í gegnum árin.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 17/3 2005

Forsíðumynd:
Frá æskulýðsmóti á Hrafnagili vorið 2012 á vegum ÆSKEY

Víðförli er fréttabréf þjóðkirkjunnar. Hann er sendur í tölvupósti til áskrifenda einu sinni í viku. Hægt er að gerast áskrifandi á vefnum.


Um Hjálparstarf kirkjunnar (Smella á mynd til að horfa)


SAMRÆÐUKVÖLD Í FEBRÚAR OG MARS
(Smella á mynd til að fylgjast með)


Skrifstofa: Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri
Sími 462 6680 og 462 6702

Póstfang: Pósthólf 205, 602 Akureyri

Viðtalstímar:
Guðmundur Guðmundsson
Héraðsprestur
Símatími á mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12
Viðtöl eftir samkomulagi í Sigurhæðum eða Akureyrarkirkju
Sími 462 6702 og 897 3302

Ásta Garðarsdóttir
Umsjónarmaður vinaheimsókna
sími: 860 4967
netfang: astaga@simnet.is

Vinnusvæði starfsfólks

Þriðjudagur

Starfsmannafundur í Akureyrarkirkju kl. 9
Starfsmannafundur í Glerárkirkju kl. 10

Dagskrá ...