Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Þing ungs kirkjufólks 9. apríl í Akureyrarkirkju kl. 11-17

Leiðarþing ungs fólks í Þjóðkirkjunni eru nú haldin um allt land til undirbúnings Kirkjuþings unga fólksins á Kirkjudögum. Fyrir Eyjafjarðar– og Þingeyjarprófastsdæmi hefur leiðarþingið fengið yfirskriftina: þing ungs kirkjufólks. Þingið verður haldið í Akureyrarkirkju laugardaginn 9. apríl 2005.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin, 10/3 2005

Stórtónleikar í Akureyrarkirkju mánudaginn 7. mars kl. 20:30

Jón Jósep Snæbjörnsson (í svörtum fötum) og Vignir Snær Vignirsson (Írafár) ásamt Stúlknakór Akureyrarkirkju verða með tónleika í Akureyrarkirkju mánudaginn 7. mars klukkan 20:30. Það kostar 1000 krónur inn á tónleikana en ágóðinn rennur til æskulýðsstarfs kirkjunnar.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 7/3 2005

Hádegistónleikar í Akureyrarkirkju laugardaginn 5. mars kl. 12

Eyþór Ingi Jónsson organisti heldur hádegistónleika í Akureyrarkirkju laugardaginn 5. mars kl. 12. Á efnisskránni eru verk eftir Tarquino Merula, Johann Sebastian Bach, Johann Jacob Froberger og Nicolaus Bruhns. Lesari er Heiðdís Norðfjörð. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Listvinafélag Akureyrarkirkju

Guðmundur Guðmundsson, 4/3 2005

Alþjóðlegur bænadagur kvenna í Glerárkirkju föstudaginn 4. mars 2005

MerkiBænadagssamkoma í GLERÁRKIRKJU kl. 20.00

Fjölbreytt dagskrá – bænir og lofsöngvar

Hugleiðingar flytja Rannvá Olsen og Regina B. Þorsteinsson

Samskot tekin til hins Íslenska Biblíufélags

Allir velkomnir, konur og karlar

Að Alþjóðlegum bænadegi kvenna á Akureyri standa:
Aðventkirkjan, Akureyrarkirkja, Glerárkirkja, Hjálpræðisherinn, Hvítasunnukirkjan, Kaþólska kirkjan, KFUM og KFUK, Kristniboðsfélag kvenna og Sjónarhæðarsöfnuður

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 4/3 2005

Undirbúningur flugslysaæfingu á Akureyrir 2005 – fræðslufundur 3. mars

Það stendur fyrir dyrum flugslysaæfing á Akureyri á vegum Flugmálastjórnar þann 28. maí næstkomandi. Hafinn er undirbúningur að henni innan prófastsdæmisins. Guðrún Eggertsdóttir, djákni, ráðfgjafi biskupsstofu varðandi flugslysaæfinguna fundaði með prófasti, héraðspresti og djákna á FSA föstudaginn 18. febrúar. En hún lagði áherslu á þátttöku presta og annarra starfsmanna kirkjunnar í æfingunni. Næsta skref verður undirbúningsfundur 3. mars nk. með þátttakendum í æfingunni. Hér á eftir fylgir dagskrá námskeiðsins og frekari upplýsingar.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 2/3 2005

SMS söfnun í framhaldsskólun til Hjáparstarfs kirkjunnar

Í dag 29. febrúar var lokið að dreifa kynningarbæklingum Hjálparstarfs kirkjunnar í Verkamenntaskólanum á Akureyri en fyrir helgi var farið með bæklingana í Menntaskólann á Akureyri. Einnig liggja bæklingarnir frammi í Háskólanum á Akureyri. Sjáið kynningu á söfnunarátakinu á vef Hjálparstarfs kirkjunnar. Ef þú vilt taka þátt í söfnunninn lestu þá áfram…

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 1/3 2005

Prófastsfundur fjallar um skipan prófastsdæma

Eitt af málefnum prófastafundar 1.-2. mars nk. í Neskirkju og héraðsfundar í vor í Ólafsfirði þann 30. apríl verður skipan prófastsdæmanna. Er það í samræmi við tillögu frá kirkjuþingi 2004. Það mál hefur áhrif á kosningu til kirkjuþings. Hér er stutt umfjöllun um það og dagskrá prófastafundar á kirkjan.is.

Guðmundur Guðmundsson, 25/2 2005

Frétt um 10 ára afmæli trúarlegrar þjónustu FSA

Hér er vakin athygli á frásögn Ragnheiðar Sverrisdóttur, djákna á biskupsstofu, um afmæli trúarlegrar þjónustu á FSA á annál djákna og umfjöllun hennar um starf kærleiksþjónustu kirkjunnar í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Smellið á litaða textann og lesið áfram.

Guðmundur Guðmundsson, 25/2 2005

Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur, heimsækir Eyjafjarðarprófastsdæmi 16-17. febrúar

Steinunn JóhannesdóttirSteinunn Jóhannesdóttir flytur síðasta erindið um Hallgrím Pétursson að Rimum í Svarfarðardal fimmtudaginn 17. febrúar klukkan 20:30 í fyrirlestrarröðinni í samstarfi við Húsabakkaskóla. Yfirskrift erindisins er: Skáldið Hallgrímur Pétursson. Daginn áður miðvikudaginn 16. febrúar heimsækir hún Grunnskólann í Ólafsfirði með umfjöllun um Hallgrím sem ungling og ungan mann. Einnig verður dagskrá um Reisubók Guðríðar í samstarfi við Amtbókasafnið á Akureyri þann sama daga klukkan 17:15 sem er öllum opin eins og erindið að Rimum.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 12/2 2005

Fundur um breytingar á löggjöf varðandi kirkjugarða 15. febrúar í Höfðakapellu

HöfðakapellaÞriðjudaginn 15. febrúar verður fundur fyrir sóknarnefndarfólk um breytingar á lögum varðandi kirkjugarði klukkan 20:30. Þar mun Smári Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Aureyrar fara í saumana á téðum lögum.

Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 12/2 2005

Forsíðumynd:
Frá æskulýðsmóti á Hrafnagili vorið 2012 á vegum ÆSKEY

Víðförli er fréttabréf þjóðkirkjunnar. Hann er sendur í tölvupósti til áskrifenda einu sinni í viku. Hægt er að gerast áskrifandi á vefnum.


Um Hjálparstarf kirkjunnar (Smella á mynd til að horfa)


SAMRÆÐUKVÖLD Í FEBRÚAR OG MARS
(Smella á mynd til að fylgjast með)


Skrifstofa: Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri
Sími 462 6680 og 462 6702

Póstfang: Pósthólf 205, 602 Akureyri

Viðtalstímar:
Guðmundur Guðmundsson
Héraðsprestur
Símatími á mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12
Viðtöl eftir samkomulagi í Sigurhæðum eða Akureyrarkirkju
Sími 462 6702 og 897 3302

Ásta Garðarsdóttir
Umsjónarmaður vinaheimsókna
sími: 860 4967
netfang: astaga@simnet.is

Vinnusvæði starfsfólks

Þriðjudagur

Starfsmannafundur í Akureyrarkirkju kl. 9
Starfsmannafundur í Glerárkirkju kl. 10

Dagskrá ...