Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

 

Verkefni

Prófastsdæmið sinnur ýmsum sameiginlegum verkefnum á svæðinu eins og fræðslu, þjónustu og kynningarmálum.

Hér eru tilgreind verkefni á vegum prófastsdæmisins sem flokkuð eru eftir Stefnu og starfsáherslum þjóðkirkjunnar til 2010. Auk þess eru tilvísanir í frekari umfjöllun þar sem það á við.

A-1-3. Stefna og hlutverk

Á síðustu árum hefur þjóðkirkjan í framhaldi af stefnumótun sinni tekið ákveðna þætti til skoðunar og mótað stefnu í starfi sínu. Hér fylgir samantekt á helstu þáttum.

B-4. Helgihald

Boðið er upp á fjölbreytt helgihald á svæðinu. Á síðustu árum hafa unnið sér sess æðruleysis- og kvöldmessur. Þá eru reglulegar fyrirbænar- og hádegisstundir í kirkjunum á Akureyri. Helsta þróunarverkefnið nú er kvöld- og ferðamannakirkjan sem hefur meginaðsetur í Akureyrarkirkju. Þá er orðin hefð fyrir jólasöngvum í kirkjunum á Akureyri með lestrunum níu. Öflugt kórastarf er rekið í tengslum við helgihaldið á svæðinu.

B-5. Boðun

Prédikunarsafn prófastsdæmisins

Stefnt er að því að birta hér á vefnum prédikunarsafn presta og djákna í prófastsdæminu og hafa þegar birst nokkrar ræður á vefnum. Er hér að finna undir hverju prestakalli tilvísanir í ræður og pistla sem prestar og djáknar hafa birt á www.tru.is.

Prédikunarundirbúningur Prestafélags Íslands

Héraðsprestur heldur utan um prédikunarundirbúning prestafélags Íslands. Vikulega undirbýr einn úr vinnuhópi ritskýringu og ábendingar varðandi texta næstkomandi sunnudags og sendir til félaga í PÍ. Dæmi um það er hér að finna fyrir Biblíudaginn 2005 skrifað af Guðmundi Guðmundssyni, héraðspresti: Prédikunarundirbúningur.

B-6. Fræðsla

Fræðslustefnu þjóðkirkjunnar var samþykkt á kirkjuþingi 2004 og tók gildi 1. júlí 2005. Starfar prófastsdæmi í anda þessarar stefnu og hefur undanfarin ár boðið upp á námskeið í samræmi við hana. Þá hefur ÆSKEY verið með margháttað starf fyrir börn- og unglinga.

Æskulýðsmál

  • Æskulýðssamband Eyjafjarðarprófastsdæmis
  • Æskulýðsráð sambandsins og prófastsdæmisins
  • Sunnudagaskólar
  • Barnastarf
  • Æskulýðsfélög

Leiðarþing unga fólksins 2005

Stefnt er að Kirkjuþingi unga fólksins í tengslum við Kirkjudaga um jónsmessu 2005. Skipuð hefur verið undirbúningsnefnd til að koma á Leiðarþingi í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmum. Það á að vera laugardaginn 9. apríl næstkomandi í Akureyrarkirkju. Hér eru frekari upplýsingar á vef prófastsdæmisins og hér á kirkjan.is.

Fræðslumál

Samstarf kirkju og skóla

Könnun – Kristinfræði í grunnskólum Eyjafjarðarsýslu í febrúar 2000

Í febrúar 2000 var gerð könnun á kristinfræði í grunnskólum Eyjafjarðarsýslu á vegum Eyjafjarðarprófastsdæmis. Það var starfshópur um málefni barna- og unglinga sem stóð að baki verkefninu. Sara Helgadóttir, kennari, vann með nefndinni og héraðspresti að könnuninni. Það var hluti af lokaverkefni hennar í kennaranáminu við HA. Hugmyndin með verkefninu er annars vegar að koma af stað umræðu um kristinfræði í grunnskólunum og kanna hvernig prófastsdæmið geti stutt við það veigamikla starf sem unnið er í skólunum. Hins vegar verða niðurstöðurnar lagðar til grundvallar við stefnumótun í fræðslumálum kirkjunnar á svæðinu. Hér eru niðurstöðurnar birtar.

Niðurstöður

B-7. Kærleiksþjónusta og hjálparstarf

Kærleiksþjónusta – Vinaheimsóknir í Eyjafjarðarprófastsdæmi

Á vegum Eyjafjarðarprófastsdæmis hefur verið boðið upp á vinaheimsóknir til aldraðra frá því 1996. Verkefnið hefur vaxið og nú er starfsmaður í 60% starfi sem heldur utan um vinheimsóknir kirkjunnar. Á annan tug sjálfboðaliða heimsækja reglulega aðila um lengri tíma. Sjá frekari umfjöllun undir þjónustu.

Neyðarskipulag vegna stórslysa

Unnið er að skipulagi í prófastsdæminu í tengslum við flugslysaæfingu í maí 2005. Unnið er með Guðrúnu Eggertsdóttur, djákna og ráðgjafa biskupsstofu varðandi flugslysaæfinguna 2005 að koma þessu skipulagi á. Fyrsti áfángi er Fræðslufundur vegna flugslysaæfingar 2005 á Akureyri 3. mars nk.

Umræða um kærleiksþjónustu og hjálparstarf veturinn 2006

Haldið var málþing um kærleiksþjónustu kirkjunnar 2. febrúar 2006. Erindin af því námskeiði má lesa hér á vefnum.

B-8. Menning

Skráning kirkjumuna í Eyjafjarðar og Þingeyjarprófastsdæmum

Á árunum 1999-2004 hefur staðið yfir skráning kirkjumuna á svæðinu. Upphafið að verkefninu voru kirkjumunasýningar í tengslum við kristnihátíð. Haldin hafa verið málþing um varðveislu og skráningu kirkjumuna í samstarfi við Safnahúsið á Húsavík (2002) og Minjasafnið á Akureyri (2004), Þjóðminjasafns Íslands og Forleifavernd ríkisins. Þá var unnið að skráningunni við undirbúning vísitasíu biskups í Þingeyjarprófastsdæmi 2002 og Eyjafjarðarprófastsdæmi 2004. Út úr þessari vinnu hafa komið leiðbeiningar fyrir kirkjuverði og umsjónamenn kirkjumuna. Heildarskrá yfir kirkjumuna á svæðinu sem varðveitt er hjá prófastsdæmunum og í vísitasíugerð biskupsembættisins.

B-9. Samkirkjulegt starf

Alþjóðleg, samkirkjuleg bænavika er haldin ár hvert í janúar í samtarfi við kristin trúfélög á Akureyri. Undirbúningsnefnd hefur verið kölluð saman að frumkvæði Samstarfsnefndar kristinni trúfélaga á Íslandi. Í janúar 2005 var efnið undirbúið af kirkjudeildum í Slóvakíu. Hér er að finna tengingar við fréttir og upplýsingar sem eru hér á vefnum.

C-10. Fjármál, húsnæði og aðstaða

C-11. Starfsmannamál

C-12. Upplýsingamál

Vefsíða Eyjafjarðarprófastsdæmis

Eyjafjarðarprófastsdæmi heldur úti vefsíðu http://www.kirkjan.is/eyjafjardarprofastsdaemi/. Héraðsprestur hefur umsjón með síðunni með starfsfólki prófastsdæmisins. Síðan er undir vef þjóðkirkjunnar http://www.kirkjan.is/ og unnin í samráði við vefstjóra þjóðkirkjunnar. Prestar og starfsmenn þjóðkirkjunnar geta komið fréttatilkynningum og öðru efni á framfæri við Guðmund héraðsprest á netfangið: gudmundur.gudmundsson@kirkjan.is

D-13. Skipulagsmál

     

    Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6680 / 462 6702 , fax 462 6704 · Kerfi RSS