147. kirkjuráðsfundur 7. janúar 2010
Hópur:
Kirkjuráð
Dagsetning:
01/07/2010 (All day)
Staður:
Biskupsstofa 1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar og staða verkefnaMætt voru auk biskups, Karls Sigurbjörnssonar, kirkjuráðsmennirnir, sr. Halldór Gunnarsson, sr. Kristján Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir. Jóhann E. Björnsson, boðaði forföll á síðustu stundu og ekki var unnt að boða varamann. Þá sátu fundinn Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri og sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritaði fundargerð. Fundargerð síðasta fundar var samþykkt. Rætt var um niðurskurð ríkisins á fjárlögum 2010 á greiðslum samkvæmt samningi ríkis og kirkju um kirkjujarðir og launagreiðslur til starfsmanna kirkjunnar frá 1997 og 2006. Upplýst var, að frumvarp það til tímabundinna breytinga á þjóðkirkjulögum nr.78/1997, sem dómsmála- og mannréttindaráðherra lagði fyrir kirkjuþing 2009 og var samþykkt þar, verður lagt fram á Alþingi fljótlega. Samþykkt frumvarpsins er forsenda þess að unnt sé að lækka framangreind framlög. 2. FjármálFjárhagsáætlanir Jöfnunarsjóðs sókna, Kirkjumálasjóðs og Kynningar- , fræðslu- og útgáfusjóðs árið 2010. Kirkjuráð samþykkti ofangreindar fjárhagsáætlanir Jöfnunarsjóðs, kirkjumálasjóðs og kynningar- , fræðslu- og útgáfusjóðs með fyrirvara um tilteknar upplýsingar er snúa að skerðingu á fjárlögum 2010. Ekki var unnt að ljúka úthlutun úr Jöfnunarsjóði sókna þar sem dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur ekki lokið við breytingar þær á reglugerð um sjóðinn sem kirkjuráð óskaði eftir að gerðar yrðu. Engu að síður er unnt að upplýsa sóknir um úthlutun úr Jöfnunarsjóði sókna. Erindi Reyðarfjarðarsóknar Erindið var til umfjöllunar á síðasta fundi og var þá frestað til þessa fundar. Erindið var afgreitt með úthlutun úr Jöfnunarsjóði sókna 2010. Kirkjumiðstöðin á Akureyri (Hjálparstarf kirkjunnar og ÆSKÞ). Biskup greindi frá hugmynd sem komið hefur fram hjá vígslubiskupi á Hólum að Hjálparstarf kirkjunnar ráði starfsmann í hlutastarf með aðsetur í kirkjumiðstöðinni á Akureyri og að kirkjumálasjóður leggi fram fjárhæð til þess að gera þetta kleift. Kirkjuráð taldi ekki unnt að verða við þessu að sinni. Biskup gerði grein fyrir því að árlegur styrkur að fjárhæð 1,2 millj. kr. á fjárlögum til ÆSKÞ hafi fallið niður. Kirkjuráð samþykkti að hækka starfshlutfall framkvæmdastjóra ÆSKÞ úr 50% í 60%. Um leið minnkar starfshlutfall sama starfsmanns hjá Biskupsstofu úr 20% í 10% starf eins og fram kemur í fjárhagsáætlun kirkjumálasjóðs 2010. Embættiskostnaður presta. Lagt var fram yfirlit yfir tillögur um breytingar á akstri presta og prófasta skv. breytingum á starfsreglum um rekstrarkostnað presta og vegna prófastsstarfa sem samþykkt var á kirkjuþingi 2009. Samkvæmt starfsreglunum annast Biskupsstofa um flokkun embætta samkvæmt framangreindu að höfðu samráði við stjórn Prestafélags Íslands. Kirkjuráð samþykkti tillögu Biskupsstofu vegna aksturs- og ferðakostnaðar presta að viðbættum tryggingargjöldum samtals um kr. 70 millj. á árinu 2010. Þá samþykkti kirkjuráð að þegar um er að ræða annan ferðakostnað eða akstur vegna prestsþjónustu sem biskup felur viðkomandi vegna sérstakra aðstæðna, þá skuli samið fyrirfram um fasta greiðslu en ekki er lengur greitt samkvæmt akstursdagbók. Þá samþykkti kirkjuráð samkvæmt framangreindum starfsreglum, skrifstofukostnað 139 presta og 12 prófasta, hempur og búferlaflutningar samtals um kr. 74 millj. Samkvæmt breytingunum á starfsreglunum sem tóku gildi 1. jan. 2010 féll niður húsaleigustyrkur til presta, en aksturskostnaður var hækkaður, svo og skrifstofukostnaður. Helgisiðastofa í Skálholti. Samþykkt var að veita embætti vígslubiskups í Skálholti aukið fjárframlag úr kirkjumálasjóði til að mæta kostnaði af láni sem hvílir á Helgisiðastofu. 3. FasteignirInnleiðing starfsreglna um prestssetur og aðrar fasteignir þjóðkirkjunnar. Guðmundur Þór gerði grein fyrir fyrsta fundi í fasteignanefnd sem haldinn var 6. jan. s. l. Auk Guðmundar Þórs sitja í fasteignanefnd, kirkjuþingsfulltrúarnir, Lárus Ægir Guðmundsson, Skagaströnd og Helga Halldórsdóttir, Vík í Mýrdal. Biskup og skrifstofustjóri sátu fundinn í upphafi. Nefndin tók til starfa 1. jan. 2010. Guðmundur Þór kynnti nýja framsetningu á eignasafni kirkjumálasjóðs sem einkum eru prestssetur og prestssetursjarðir. Kristján Björnsson lagði fram drög að erindisbréfi fyrir fasteignanefnd en honum hafði verið falið að semja drög að því á síðasta fundi kirkjuráðs. Fasteignanefnd tekur yfir hlutverk stjórnar prestssetra og bygginga- og listanefndar sem voru lagðar niður svo og fasteignahóps kirkjuráðs sem starfar ekki lengur. Drögin að erindisbréfinu verða lögð fyrir fasteignanefnd til umsagnar og var málinu að öðru leyti frestað. Skipan sviðsstjóra fasteignasviðs. Frestað. Samþykktir kirkjuþings 2009 um kaup og sölu fasteigna. Málinu var frestað á síðasta fundi. Kirkjuþing 2009 heimilaði kaup kirkjumálasjóðs á eftirtöldum fasteignum: Hamrahlíð 12 á Vopnafirði, Hofsprestakalli í Múlaprófastsdæmi. Króksholt 1 á Búðum, Fáskrúðsfirði, Kolfreyjustaðarprestakalli í Austfjarðarprófastsdæmi. Barmahlíð 7 á Sauðárkróki, Sauðárkróksprestakalli í Skagafjarðarprófastsdæmi. Gengið hefur verið frá kaupsamningum um ofangreindar eignir. Kirkjuþing 2009 heimilaði sölu eftirtalinna fasteigna í eigu kirkjumálasjóðs: Jörðin Útskálar, Kjalarnessprófastsdæmi. – Kaupsamningur hefur verið undirritaður. Jörðin Hvoll í Saurbæ, Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi. – Stefnt er að því að selja eignina í vor. Jörðin Prestbakki II, Húnavatnsprófastsdæmi. – Stefnt er að því að selja eignina í vor. Jörðin Borgarhóll í Akrahreppi, hjáleiga Miklabæjar í Skagafirði. – Kirkjuráð ákvað á síðasta fundi að fresta sölu um óákveðinn tíma. Árnes I í Trékyllisvík á Ströndum í Húnavatnsprófastsdæmi. – Áður en til hugsanlegrar sölu kemur þarf að hnitasetja jörðina og afmarka land fyrir kirkjurnar og kirkjugarðinn. Verður það gert síðar á árinu. Háls II, Þingeyjarprófastsdæmi. - Málinu frestað. Á kirkjuþingi 2009 voru einnig samþykkt makaskipti á tveimur landspildum úr landi prestssetursjarðarinnar Grenjaðarstaðar, Þingeyjarprófastsdæmi. Önnur er um 10,3 hektarar að stærð og hin um 7,1 hektari að stærð. Í stað þeirra falla í hlut Grenjaðarstaðar sambærilegar spildur úr landi grannjarðarinnar Aðalbóls. – Kirkjuráð vísaði málinu til fasteignanefndar. Tröð, Gnúpverjahreppi – heimild til sölu með fyrirvara um samþykki kirkjuþings. Kirkjuráð samþykkti að heimila framkvæmdastjóra sölu á hinu aflagða prestssetri í Tröð, Suðurprófastsdæmi (áður Árnesprófastsdæmi), ef viðunandi verð fæst og með fyrirvara um samþykki kirkjuþings. Almennt umboð til framkvæmdastjóra og aðstoðarframkvæmdastjóra kirkjuráðs. Kirkjuráð skrifaði undir 26 samhljóða eintök umboða er veita framkvæmdastjóra og aðstoðarframkvæmdastjóra kirkjuráðs heimild til að undirrita skjöl vegna fasteigna kirkjumálasjóðs. Umboðin verða send til þinglýsingar hjá öllum sýslumannsembættum landsins. 4. Önnur málErindi frá Hrepphólasókn, Suðurprófastsdæmi, vegna breytinga á skipan prestakalla og prófastsdæma á kirkjuþingi 2009. Sóknarnefnd Hrepphólasóknar, Suðurprófastsdæmi, hefur sent bréf, dags. 17. desember 2009, þar sem gagnrýnd eru vinnubrögð vegna skipulagsbreytinga sem samþykktar voru á kirkjuþingi 2009 og sem varða sóknina beint. Annars vegar sameining Hruna- og Stóra-Núpsprestakalla og hins vegar sameining Árness-, Rangárvalla- og Skaftafellsprófastsdæma. Kirkjuráð tekur undir meginsjónarmið sóknarnefndar um að betur megi standa að kynningu og samráði er varðar breytingar á skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma. Skipun starfshóps sem móti samskiptastefnu kirkjunnar. Málið var kynnt á síðasta fundi kirkjuráðs og var frestað. Kirkjuráð samþykkti að óska eftir því við biskup Íslands að hann geri tillögu fyrir næsta fund kirkjuráðs um það hverjir verði skipaðir í starfshóp til að móta samskiptastefnu kirkjunnar. Fjölskylduþjónusta kirkjunnar. Ráðning forstöðumanns úr hópi starfsfólks til eins árs. Beiðni frá starfsmanni um lækkun starfshlutfalls. Í ákvæði til bráðabirgða í starfsreglum um Fjölskylduþjónustu kirkjunnar segir: “Þrátt fyrir ákvæði 4. gr. ræður kirkjuráð forstöðumann úr röðum starfsmanna stofnunarinnar tímabundið”. Kirkjuráð samþykkti að skipa Elísabetu Bertu Bjarnadóttur, félagsráðgjafa hjá Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, sem forstöðumann til loka árs 2010. Þar sem Fjölskylduþjónusta kirkjunnar lýtur faglegri forystu biskups Íslands, og heyrir að öðru leyti undir Kirkjuráð munu biskupsritari og aðstoðarframkvæmdastjóri kirkjuráðs vera tengiliðir stofnunarinnar gagnvart biskupi og kirkjuráði hvað varðar starfsemi og rekstur. Lögð var fram beiðni Guðlaugar K. Magnúsdóttur, félagsráðgjafa hjá Fjölskylduþjónustu kirkjunnar um lækkun starfshlutfalls um 20%. Málinu var vísað til forstöðumanns sem samkvæmt 4. gr. starfsreglnanna ræður starfsfólk stofnunarinnar í samráði við biskup Íslands. Fleira ekki rætt og fundi slitið kl 15,30. Næsti fundur kirkjuráðs verður haldinn 28. janúar n.k. og hefst kl 10 á Biskupsstofu.
|
|||||||||